Íþróttir
91 92 93 94 95 96 97 98 99 … 334 ›
Bryant fór hamförum gegn Utah Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt sem leið og það var Kobe Bryant hjá LA Lakers sem stal senunni eins og svo oft áður þegar hann skaut lið Utah Jazz í kaf upp á sitt einsdæmi í 132-102 sigri Lakers. Bryant skoraði 52 stig í leiknum, þar af 30 stig í þriðja leikhlutanum einum saman. Körfubolti 1.12.2006 14:45
Við vinnum Tottenham Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur verið mikið í sviðsljósinu undanfarna daga og vælir nú sáran undan leikjaniðurröðun í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur þó litlar áhyggjur af grannaslagnum við Tottenham á morgun og á þar ekki von á neinu öðru en sigri. Enski boltinn 1.12.2006 14:35
Henrik Larsson lánaður til Manchester United Sænska markamaskínan Henrik Larsson hefur samþykkt að fara til Manchester United sem lánsmaður í janúar. Larsson er 35 ára gamall og hefur leikið með liði Helsingborg í heimalandi sínu síðan hann varð Evrópumeistari með Barcelona í vor. Enski boltinn 1.12.2006 14:25
Tap hjá Haukastúlkum Haukastúlkur töpuðu 94-67 fyrir liði Gran Canaria á Kanaríeyjum í Evrópukeppninni í körfubolta í kvöld, eftir að hafa verið undir 55-35 í hálfleik. Ifeoma Okonkwo skoraði 22 stig og hirti 9 fráköst fyrir Hauka og Helena Sverrisdóttir skoraði 21 stig og hirti 7 fráköst. Haukaliðið er því á botni F-riðilsins án sigurs eftir fjóra leiki. Körfubolti 30.11.2006 22:13
LA Lakers - Utah Jazz í beinni í nótt Það verður mjög athyglisverður leikur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í nótt þar sem LA Lakers tekur á móti Utah Jazz. Liðin hafa bæði byrjað leiktíðina vonum framar og situr Utah í efsta sæti deildarinnar. Körfubolti 30.11.2006 22:04
Newcastle tryggði sér toppsætið Enska úrvalsdeildarliðið Newcastle tryggði sér í kvöld toppsætið í H-riðli í Evrópukeppni félagsliða þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Frankfurt á útivelli. Þetta var síðasti leikur liðsins í riðlinum, en Newcastle hefur gengið ágætlega í Evrópukeppninni til þessa líkt og hinum ensku liðunum sem leika í sömu keppni. Fótbolti 30.11.2006 21:55
Keflvíkingar steinlágu á heimavelli Karlalið Keflvíkinga í körfubolta steinlá á heimavelli sínum fyrir tékkneska liðinu Mlekarna Kunin 108-78 í Áskorendakeppni Evrópu. Keflvíkingar hafa unnið einn leik í riðlinum en tapað þremur. Körfubolti 30.11.2006 21:10
Geir gefur kost á sér Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem hann segist með formlegum hætti gefa kost á sér til formennsku hjá knattspyrnusambandinu eftir að Eggert Magnússon lætur af störfum snemma á næsta ári. Geir er einn fjölmargra manna sem nefndir hafa verið til sögunnar sem hugsanlegir eftirmenn Eggerts. Íslenski boltinn 30.11.2006 20:36
HSÍ fellir niður sekt Hattar Handknattleikssamband Íslands hefur ákveðið að fella niður 250.000 króna sekt til handa handknattleiks deild Hattar eftir að liðið mætti ekki til leiks gegn ÍBV í 1. deildinni á dögunum. Eyjamönnum var dæmdur 10-0 sigur í leiknum, en þau úrslit munu standa. Formaður handknattleiksdeildar Hattar og Formaður HSÍ segja að sátt hafi náðst í málinu. Handbolti 30.11.2006 19:31
Terry ákærður fyrir ummæli sín Aganefnd enska knattspyrnusambandsins hefur ákært John Terry, fyrirliða Chelsea, fyrir ummæli sín í garð Graham Poll dómara eftir að hann vísaði Terry af velli í leik Tottenham og Chelsea fyrr í þessum mánuði. Terry hefur verið veittur frestur til 15. desember til að svara fyrir sig í málinu. Enski boltinn 30.11.2006 18:53
James íhugaði að raka af sér hárið Markvörðurinn David James hjá Portsmouth segist hafa íhugað að raka af sér allt hárið á dögunum eftir að nýjasta hárgreiðslan hans varð miðpunktur athyglinnar í breskum fjölmiðlum um síðustu helgi. Hárgreiðslu James var líkt við vel smurða hárgreiðslu Ofurmennisins. Enski boltinn 30.11.2006 17:31
Gatlin reynir fyrir sér í NFL Spretthlauparinn Justin Gatlin sem á yfir höfði sér ævilangt keppnisbann fyrir steranotkun, reyndi fyrir sér í herbúðum Houston Texans í NFL deildinni í gær. Gatlin er sagður hafa staðið sig ágætlega og ætlar að reyna fyrir sér hjá fleiri liðum á næstunni, en hann hefur ekki spilað ruðning síðan hann var í háskóla. Sport 30.11.2006 16:54
Shevchenko er ekki á leið til Ítalíu Adriano Galliani hjá AC Milan, segir að ekkert sé til í þeim fullyrðingum bresku blaðanna að framherjinn Andriy Shevchenko sé á leið aftur til AC Milan. "Við höfum ekki verið í neinum viðræðum við Chelsea um að fá leikmanninn aftur til okkar," sagði Galliani á heimasíðu ítalska félagsins. Fótbolti 30.11.2006 16:09
Nesta og Serginho undir hnífinn? Svo gæti farið að varnarmennirnir Alessandro Nesta og Serginho hjá ítalska liðinu AC Milan þyrftu báðir að fara í aðgerð fljótlega vegna þrálátra meiðsla sem hafa hrjáð þá lengi. Nesta kom inn sem varamaður í leik gegn Messina á dögunum en kenndi sér meins í öxlinni og þarf nú líklega í uppskurð. Sömu sögu er að segja af Serginho, nema hvað hann er meiddur í baki. Fótbolti 30.11.2006 15:25
Enn eitt áfallið fyrir Valencia Spænska stórliðið Valencia varð fyrir enn einu áfallinu í dag þegar úrugvæski landsliðsmaðurinn Mario Regueiro meiddist á hné á æfingu og verður frá keppni í 6-7 mánuði. Meiðslin eru nákvæmlega þau sömu og félagi hans Edu lenti í fyrir aðeins tveimur vikum, en nú eru 8 af fastamönnum liðsins á sjúkralista. Fótbolti 30.11.2006 15:18
Af hverju að fara til Englands? Argentínski framherjinn Hernan Crespo hjá Inter Milan á Ítalíu segist ekki skilja af hverju framherji sem er sáttur í herbúðum liðs síns á Ítalíu ætti að láta sér detta í hug að flytja til Englands og spila í ensku úrvaldseildinni. Þessi orð lét hann falla í samtali við breska blaðið Mirror þegar hann svar spurður út í vandræði Andriy Shevchenko hjá Chelsea. Enski boltinn 30.11.2006 15:06
Keflavík og Haukar í eldlínunni í kvöld Tvö íslensk lið verða í eldlínunni í Evrópukeppninni í körfubolta í kvöld. Karlalið Keflavíkur tekur þá á móti tékkneska liðinu Mlekarna Kunin á heimavelli sínum í Keflavík klukkan 19:15 og Haukastúlkur sækja lið Canarias heim á Las Palmas. Körfubolti 30.11.2006 15:00
Hargreaves spilar ekki fyrr en eftir áramót Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Bayern Munchen segist ekki muni spila meira með liði sínu á árinu, en hann er að jafna sig eftir fótbrot í september. Hann útilokar ekki að ganga í raðir Manchester United í janúar. Fótbolti 30.11.2006 14:52
Mourinho segir Chelsea fara á toppinn fljótlega Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segist ekki hafa áhyggjur af því þó Manchester United hafi enn þriggja stiga forystu á sína menn á toppi ensku úrvaldsdeildarinnar og bendir á að Chelsea hafi spilað mun erfiðari leiki í deildinni til þessa. Enski boltinn 30.11.2006 14:42
Sigurganga Dallas heldur áfram Dallas vann í nótt 11. leikinn í röð í NBA deildinni þegar liðið vann auðveldan sigur á Toronto. Utah lagði San Antonio í uppgjöri efstu liðanna í deildinni og þá tapaði Cleveland enn eina ferðina fyrir einu af lakari liðum deildarinnar. Körfubolti 30.11.2006 14:25
Keflavík lagði Grindavík Keflavíkurstúlkur halda öðru sætinu efstu deild kvenna í körfubolta eftir sannfærandi sigur á grönnum sínum í Grindavík í Sláturhúsinu í kvöld. Takesha Watson skoraði 32 stig fyrir Keflavík, en Tamara Bowie skoraði 39 stig fyrir Grindavík. Körfubolti 29.11.2006 22:28
Grétar Rafn skoraði mark Grétar Rafn Steinsson skoraði annað mark hollenska liðsins AZ Alkmaar í kvöld þegar liðið tryggði sér sæti í 32-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða með því að gera 2-2 jafntefli við Liberec frá Tékklandi. Jóhannes Karl Guðjónsson var einnig í liði Alkmaar í kvöld. Fótbolti 29.11.2006 22:22
Fram lagði Fylki Fram er enn í þriðja sæti DHL deildar karla í handbolta eftir nokkuð öruggan sigur á Fylki í Safamýri 34-29 eftir að hafa leitt í hálfleik 18-12. Fylkir er í næst neðsta sæti deildarinnar. Handbolti 29.11.2006 22:18
Fyrsti sigur Fulham á Arsenal í 40 ár Fulham lagði Arsenal 2-1 á Craven Cottage í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og var þetta fyrsti sigur Fulham á grönnum sínum í fjóra áratugi. Fulham komst í 2-0 eftir rúmlega stundarfjórðung segja má að Arsenal hafi aldrei náð sér almennilega á strik eftir það. Efstu liðin, Man Utd og Chelsea, unnu bæði sigur í sínum leikjum. Enski boltinn 29.11.2006 21:59
Fulham yfir gegn Arsenal í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í viðureignunum fimm sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni. Fulham hefur yfir 2-1 gegn Arsenal á heimavelli og Manchester United hefur yfir 1-0 gegn Everton. Manchester City hefur 2-0 yfir gegn Aston Villa á Villa Park. Markaskorara má sjá á Boltavaktinni hér á íþróttasíðunni. Enski boltinn 29.11.2006 20:52
Bolton heimtar virðingu Sammy Lee, aðstoðarstjóri Bolton í ensku úvalsdeildinni, segir að félagið hafi mikinn hug á að reyna að ná einu af fjórum efstu sætunum í deildinni í vetur svo það fái loks þá virðingu sem það á skilið. Bolton hefur verið á meðal átta efstu liða í deildinni undanfarin ár og lagði Arsenal 3-1 um síðustu helgi. Liðsins bíður erfiður leikur gegn Chelsea í kvöld. Enski boltinn 29.11.2006 18:49
Tevez fékk harða refsingu frá félögum sínum í West Ham Argentínumaðurinn Carlos Tevez þurfti að taka út mjög harða refsingu frá félögum sínum í enska úrvalsdeildarliðinu West Ham eftir að hann rauk til síns heima strax eftir síðasta leik liðsins án þess að tala við kóng eða prest. Stjóri liðsins Alan Pardew sagðist ætla að láta leikmennina ráða því hvaða refsingu framherjinn fengi. Enski boltinn 29.11.2006 18:36
Bellamy sleppur Velski landsliðsframherjinn Craig Bellamy hjá Liverpool var í dag sýknaður af ákæru um líkamsárás fyrir rétti í Cardiff, en hann var ákærður fyrir að hafa ráðist að stúlku á næturklúbbi í borginni fyrr í haust. Bellamy hefur lítið geta æft með liði sínu vegna réttarhaldanna og misstir til að mynda af leik Liverpool og Portsmouth í kvöld. Enski boltinn 29.11.2006 18:25
Fram tekur á móti Fylki Einn leikur er á dagskrá í DHL-deild karla í handbolta í kvöld. Íslandsmeistarar Fram taka þá á móti Fylki í Framhúsinu í Safamýri og hefst leikurinn klukkan 20. Fram er í þriðja sæti deildarinnar, en Fylkir er í næst neðsta sæti. Þá er rétt að minna á stórleik í kvennakörfunni þar sem Keflavík tekur á móti Grindavík í Keflavík klukkan 19:15. Handbolti 29.11.2006 17:09
Fimm leikir í ensku úrvalsdeildinni í kvöld Fimm leikir verða á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld og þar verða sex efstu liðin í deildinni öll í sviðsljósinu. Efstu liðin, Manchester United og Chelsea, eiga mjög erfiða leiki fyrir höndum. Enski boltinn 29.11.2006 17:03