Íþróttir
107 108 109 110 111 112 113 114 115 … 334 ›
Sissoko verður frá í þrjá mánuði Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur greint frá því að miðjumaðurinn Mohamed Sissoko verði frá keppni í þrjá mánuði eftir að hann fór úr axlarlið í leik gegn Birmingham í gærkvöld. Sissoko fer í aðgerð vegna meiðsla sinna í næstu viku og hefur Rafa Benitez þegar lýst yfir áhyggjum sínum af yfirvofandi fjarveru þessa duglega leikmanns sem spilar flesta leiki með liðinu. Enski boltinn 9.11.2006 18:20
Njarðvíkingar töpuðu í Rússlandi Njarðvíkingar töpuðu í dag fyrsta leik sínum í Áskorendakeppni Evrópu í körfubolta þegar liðið lá 101-80 fyrir liði Samara frá Rússlandi, en leikið var ytra. Brenton Birmingham skoraði 28 stig fyrir Njarðvík og Jeb Ivey 21 stig. Körfubolti 9.11.2006 18:15
Leik ÍBV og Stjörnunnar frestað Þrír leikir fara fram í DHL deild kvenna í handbolta í kvöld en leik ÍBV og Stjörnunnar sem fara átti fram í Eyjum hefur verið frestað vegna ófærðar. Akureyri og Grótta eigast við á Akureyri og er sá leikur þegar hafinn, en klukkan 19 mætast FH og Valur í Kaplakrika og þá tekur Fram á móti HK. Handbolti 9.11.2006 18:10
Orðinn leiður á ásökunum um leikaraskap Enski landsliðsmaðurinn Andy Johnson hjá Everton segist vera orðinn leiður á því að vera sakaður um leikaraskap í vítateigum andstæðinganna og segist vísvitandi vera búinn að breyta leikstíl sínum til að reyna að afsanna það orðspor sem hann hefur skyndilega fengið á sig í úrvalsdeildinni. Enski boltinn 9.11.2006 16:53
Forssell í hnéuppskurð Lið Birmingham í ensku 1. deildinni verður án finnska framherjans Mikael Forssell næstu þrjá mánuðina eða svo eftir að hann fór í aðgerð vegna hnémeiðsla. Þetta er ekki sama hné og hélt honum frá keppni í átta mánuði fyrir tveimur árum, en það er líklega það eina sem forráðamenn Birmingham geta huggað sig við í dag. Enski boltinn 9.11.2006 16:47
Kenyon Martin þarf í uppskurð Meiðslavandræði Denver Nuggets í NBA deildinni virðast engan endi ætla að taka og í gær kom í ljós að framherjinn Kenyon Martin þarf enn og aftur í uppskurð á hné og óvíst er hvenær hann getur snúið aftur til keppni. Martin fór í uppskurð á vinstra hné fyrir rúmu ári, en að þessu sinni er það hægra hnéð sem gaf sig. Körfubolti 9.11.2006 15:17
Benitez vill fara til Ítalíu Breska dagblaðið Sun hefur það eftir umboðsmanni Rafa Benitez, knattspyrnustjóra Liverpool, að Rafa hafi mikinn áhuga á því að þjálfa á Ítalíu því knattspyrnan þar í landi henti hans leikstíl best. Enski boltinn 9.11.2006 15:35
Hedman til reynslu hjá Chelsea Englandsmeistarar Chelsea hafa fengið fyrrum landsliðsmarkvörð Svía, Magnus Hedman, til reynslu hjá félaginu í kjölfar meiðsla Petr Cech. Hedman lék áður með skoska liðinu Celtic auk þess sem hann spilaði með Coventy á Englandi. Hann er 33 ára gamall, en hann lagði skóna á hilluna í fyrra. Enski boltinn 9.11.2006 15:24
Stórleikur Oberto tryggði San Antonio sigur Argentínumaðurinn Fabricio Oberto átti stórleik í nótt þegar San Antonio lagði Phoenix 111-106 eftir framlengdan leik í San Antonio. Oberto skoraði 22 stig, hirti 10 fráköst og hitti úr öllum 11 skotum sínum í leiknum. Dallas er enn án sigurs eftir tap gegn LA Clippers. Körfubolti 9.11.2006 14:53
Knattspyrnusambandið rannsakar meint veðmál Enska knattspyrnusambandið ætlar að hefja formlega rannsókn í kjölfar þess að fyrrum starfsmaður hjá veðmangarafyrirtækinu Victor Chandler hélt því fram að fleiri en einn knattspyrnustjóri í ensku úrvalsdeildinni stundaði að veðja á úrslit leikja í deildinni, en slíkt er með öllu óheimilt. Enski boltinn 9.11.2006 14:43
McFadden neitar sökum Enski knattspyrnudómarinn Graham Poll var enn og aftur í sviðsljósinu í gær þegar hann vísaði James McFadden hjá Everton af velli eftir aðeins 19 mínútur í bikarleiknum gegn Arsenal í gærkvöld. Poll gaf þá skýringu að McFadden hafi brúkað munn við sig, en leikmaðurinn vísar því alfarið á bug. Enski boltinn 9.11.2006 14:33
Enn meiðist Martin Laursen Danski varnarmaðurinn Martin Laursen hjá Aston Villa verður frá keppni í nokkurn tíma eftir að hafa þurft að fara meiddur af velli í leiknum gegn Chelsea í gær. Laursen hefur átt við þrálát hnémeiðsli að stríða allar götur síðan hann gekk í raðir enska liðsins árið 2004. Leikmaðurinn sjálfur segir meiðslin ekki alvarleg, en Villa missti Gareth Barry einnig í meiðsli í gær. Enski boltinn 9.11.2006 14:28
Freddy Adu verður til reynslu hjá United Manchester United er nú í viðræðum við bandaríska úrvalsdeildarliðið DC United um að fá framherjann efnilega Freddy Adu til reynslu í þessum mánuði. Adu þessi er aðeins 17 ára gamall og talinn mikið efni. Hann hefur einnig verið orðaður við Chelsea og talið er að félögin muni jafnvel gera kauptilboð í hann í janúar. Enski boltinn 9.11.2006 14:23
Sissoko frá í mánuð Miðjumaðurinn Mohamed Sissoko verður frá keppni í að minnsta kosti einn mánuð eftir að hann fór úr axlarlið í bikarleiknum gegn Birmingham í gærkvöldi. Sissoko er landsliðsmaður Malí og hefur verið nokkuð óheppinn með meiðsli síðan hann gekk í raðir Liverpool. Enski boltinn 9.11.2006 14:16
Sacramento - Detroit í beinni Leikur Sacramento Kings og Detroit Pistons verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan hálf fjögur í nótt. Þarna eru á ferðinni tvö af sterkari liðum deildarinnar og því kjörið fyrir nátthrafna að stilla á NBA TV í nótt. Körfubolti 8.11.2006 23:59
Bayern tapaði fyrir botnliðinu Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen töpuðu mjög óvænt 1-0 fyrir botnliði Hannover í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Það var Szabolcs Huszti sem skoraði mark félaga Gunnars Heiðars Þorvaldssonar eftir varnarmistök Bayern, sem er nú sex stigum á eftir toppliði Werder Bremen. Stuttgart er í öðru sætinu eftir 2-0 sigur á Hamburg í gær. Fótbolti 8.11.2006 23:52
Bikarmeistararnir úr leik Óvænt úrslit urðu í spænska bikarnum í kvöld þegar titilhafarnir Espanyol féllu úr keppni gegn þriðjudeildarliði Rayo Vallecano 2-1 samanlagt. Barcelona kláraði smálið Badalona í beinni á Sýn 4-0 og samanlagt 6-1, þar sem Javier Saviola skoraði tvívegis. Sport 8.11.2006 23:47
Tottenham áfram eftir framlengingu Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham var síðasta liðið til að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum enska deildarbikarsins í kvöld þegar liðið lagði Port Vale 3-1 á heimavelli sínum eftir framlengdan leik. Tom Huddlestone skoraði tvö marka Tottenham og Jermain Defoe eitt. Enski boltinn 8.11.2006 23:31
Auðvelt hjá Chelsea Chelsea burstaði Aston Villa 4-0 í enska deildarbikarnum í kvöld og er komið áfram í næstu umferð keppninnar líkt og Liverpool sem vann Birmingham 1-0 og Arsenal sem lagði Everton 1-0. Leikur Tottenham og Port Vale fór í framlengingu þar sem staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma. Enski boltinn 8.11.2006 21:51
Allt eftir bókinni í kvöld Fjórir leikir voru háðir í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld og þá var einn leikur í kvennaflokki. Segja má að úrslit kvöldsins hafi verið nokkuð eftir bókinni, en toppliðin unnu sigur í sínum leikjum. Körfubolti 8.11.2006 21:30
HK á toppinn HK skellti sér á toppinn í dhl deild karla í kvöld með sigri á Haukum 26-21 í Digranesi. HK hefur 9 stig í efsta sæti deildarinnar en Valsmenn hafa 8 stig og eiga leik til góða. Haukar eru í sjötta sætinu með 4 stig eftir 6 leiki. Handbolti 8.11.2006 20:49
Liverpool yfir gegn Birmingham Liverpool hefur yfir 1-0 gegn Birmingham þegar flautað hefur verið til leikhlés í virðureign liðanna í enska deildarbikarnum. Það var danski landsliðsmaðurinn Daniel Agger sem skoraði mark Liverpool í uppbótartíma, en Mohamed Sissoko þurfti að fara meiddur af velli eftir 26 mínútur. Leikurinn hefur verið fjörlegur og er í beinni útsendingu á Sýn. Enski boltinn 8.11.2006 20:36
Bindur miklar vonir við íslenska knattspyrnumenn Einn litríkasti knattspyrnumarkvörður heims, Bruce Grobbelaar segir að Ísland verði á meðal sterkustu knattspyrnuþjóða innan tíu ára. Grobbelar dúkkaði óvænt upp á knattspyrnumóti í Egilshöll um síðustu helgi. Íslenski boltinn 8.11.2006 20:18
Ferrari vill halda Schumacher í vinnu Forráðamenn Ferrari vilja ólmir halda í sjöfaldan heimsmeistara Michael Schumacher þó hann hafi lagt stýrið á hilluna á dögunum og er Schumacher nú með tilboð í höndunum um að gerast aðstoðarmaður Jean Todt liðsstjóra. Þjóðverjinn er sagður ætla að hugsa málið í nokkrar vikur áður en hann tekur ákvörðun um framhaldið. Formúla 1 8.11.2006 19:49
Björgólfur staðfestir samstarf við Eggert Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem hann staðfestir að hann sé maðurinn sem standi á bak við meirihluta þess fjármagns sem Eggert Magnússon hefur verið að raka saman til að gera kauptilboð í enska knattspyrnufélagið West Ham. Enski boltinn 8.11.2006 18:51
Farinn aftur til Tottenham Landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson hefur nú snúið aftur til London þar sem hann ætlar sér að halda áfram að vinna sér sæti í liði Totteham. Emil gerði gott mót með Malmö í Svíþjóð sem lánsmaður á síðustu mánuðum, en samkvæmt heimasíðu félagsins hefur hann ákveðið að reyna aftur fyrir sér á Englandi. Enski boltinn 8.11.2006 17:18
Stórt tap hjá Keflvíkingum Keflvíkingar töpuðu fyrsta leik sínum í Áskorendakeppni Evrópu í körfubolta 107-74 gegn Mlekana Kurin frá Tékklandi ytra í kvöld. Tékkneska liðið er mjög sterkt og því var við ramman reip að draga fyrir Keflvíkinga, sem auk þess voru án Magnúsar Gunnarssonar sem var að eignast sitt fyrsta barn með konu sinni. Körfubolti 8.11.2006 18:27
Malbranque í byrjunarliði Tottenham Franski miðjumaðurinn Steed Malbranque verður að öllum líkindum í byrjunarliði Tottenham í kvöld þegar liðið mætir Port Vale í enska deildarbikarnum. Malbranque hefur enn ekki spilað leik fyrir Tottenham síðan hann gekk í raðir liðsins í sumar eftir uppskurð við kviðsliti. Enski boltinn 8.11.2006 17:15
Carmelo Anthony gaf Syracuse 200 milljónir Framherjinn Carmelo Antony hjá Denver Nuggets gaf í gær gamla háskólanum sínum 200 milljónir króna sem varið verður til byggingar nýrrar æfingaaðstöðu fyrir körfuboltalið skólans. Anthony varð háskólameistari með liðinu árið 2003 á sínu eina ári í háskóla áður en hann gaf kost á sér í NBA deildina. Körfubolti 8.11.2006 16:55
Veigar tilnefndur sem besti leikmaðurinn Veigar Páll Gunnarsson hjá norska liðinu Stabæk er einn þriggja leikmanna sem tilnefndir hafa verið sem leikmaður ársins í norsku úrvalsdeildinni. Þeir Robert Koren hjá Lilleström og Steffen Iversen hjá Rosenborg eru einnig tilnefndir sem leikmenn ársins. Fótbolti 8.11.2006 17:24