Vetrarólympíuleikar 2018 í PyeongChang

Skautadrottning með 197 hraðasektir á árinu
Hin rússneska Alina Zagitova vann Ólympíugull þegar hún var aðeins fimmtán ára gömul. Nú sjö árum síðar er hún að koma sér fréttirnar á allt annan máta.

Fyrir níu mánuðum stórslasaður á sjúkrahúsi en fékk nú Ólympíugull um hálsinn
Sverre Lunde Pedersen varð Ólympíumeistari í liðakeppni karla í skautaati á Vetrarólympíuleikunum í Peking sem er ótrúleg staðreynd miðað við það hvernig hlutirnir litu út hjá honum síðasta sumar.

Fremsta skíðakona heims sendi lesendum karlablaðsins skýr skilaboð
Bandaríska skíðakonan Mikaela Shiffrin er að margra mati fremsta skíðakona heims í dag en hún fór óvenjulega leið í samskiptum sínum við eitt frægasta karlablað heims sem sóttist eftir þokkafullum myndum af henni.

Átta keppendur og sextán manna hópur frá Íslandi á HM í alpagreinum
Ísland sendir fjölmennan hóp á heimsmeistaramótið í alpagreinum sem fer fram í Åre í Svíþjóð í næsta mánuði.

Svigið efst í forgangsröðuninni
Hilmar Snær Örvarsson varð á dögunum fyrsti Íslendingurinn til að vinna til gullverðlauna á heimsbikarmóti á skíðum þegar hann bar sigur úr býtum í svigi. Hann fylgdi því eftir með því að lenda í 4. sæti á HM.

Silfurverðlaunahafi hlaut alvarleg brunasár eftir slys á heimili sínu
Hollenski skautahlauparinn Sjinkie Knegt liggur slasaður á sjúkrahúsi eftir að hafa hlotið alvarleg brunasár eftir slys á heimili sínu.

Ólympíuverðlaunahafi stunginn til bana
Vildi ekki missa baksýnisspeglana og galt með lífi sínu.

Hilmar hafnaði í þrettánda sæti
Náði góðum árangri í svigi á Ólympíumóti fatlaðra í Pyeongchang í Suður-Kóreu.

Misstu fæturna í sama slysinu og berjast nú um gull í Suður-Kóreu
Bandaríkjamennirnir Nikko Landeros og Tyler Carron eru blóðbræður sem berjast um gull á vetrar-Paralympics í PyeongChang.

Hilmar Snær í tuttugasta sæti í PyeongChang
Hilmar Snær Örvarsson hefur lokið sinni fyrri grein á Vetrar-Paralympics í PyeongChang en hann tók þá þátt í stórsvigskeppninni.

Krabbameinsaðgerð í janúar en gull á ÓL í mars
Hin hollenska Bibian Mentel-Spee var greind með krabbamein í júlí, fór í aðgerð í janúar en var að vinna gull á Vetrarólympíuleikum fatlaðra í gær. Ótrúleg saga.

Datt á 115 km/h en ætlar sér gull á ÓL í PyeongChang
Hin 19 ára gamla breska skíðakona Millie Knight er ansi mögnuð. Þessi óttalausa, blinda stúlka er mætt á sína aðra Vetrarólympíuleika í Suður-Koreu og ætlar sér stóra hluti.

Gáfu borgarstjóranum Ísland
Íslenski keppnishópurinn á Vetrarólympíumóti fatlaðra var í dag boðinn velkominn í Ólympíuþorpið.

Stóra leyndarmál Rússa á ÓL 2018 er nú komið fram í dagsljósið
Rússar máttu ekki keppa undir fána þjóðar sinnar á Ólympíuleikunum í Pyeongchang og þeir keppendur frá Rússlandi sem fengu yfir höfuð grænt ljós frá Alþjóðaólympíunefndinni urðu að keppa undir merkjum hennar.

Rússland gæti fengið lífstíðarbann frá frjálsum íþróttum
Ef Rússar mæta ekki kröfum alþjóða lyfjaeftirlitsins munu þeir aldrei aftur fá að keppa á alþjóðlegum frjálsíþróttamótum eftir að nefnd sem skoðaði lyfjamál Rússa lagði fram tillögu um að framlengja banni þeirra.

Rússar aftur með á Ólympíuleikunum
Rússar hafa ekki fengið að keppa undir fána Rússlands á síðustu tveimur Ólympíuleikum en nú segjast Rússar hafa fengið aftur fullt keppnisleyfi á Ólympíuleikunum.

Upplifir sex ára gamlan draum í PyeongChang
Fyrir fimm árum síðan sagði hinn þrettán ára Hilmar Snær Örvarsson í viðtölum að hann ætlaði á Vetrarólympíuleikana árið 2018. Í dag er vika þangað til að Hilmar Snær heldur til PyeongChang ásamt fríðu föruneyti og keppir fyrir Íslands hönd.

Tók vitlausa beygju og missti af verðlaunum á Ólympíuleikunum
Það fara ekki allir sáttir heim af Ólympíuleikunum í Pyeongchang í Suður-Kóreu.

Norðmenn banna sigurvegara fyrir 13 ára aldur og það er greinilega að ganga upp
Norðmenn eru sigurvegarar vetrarólympíuleikanna í PyeongChang enda fékk engin þjóð fleiri verðlaun (39) eða fleiri gullverðlaun (14). Norðmenn slógu stóru þjóðunum við og settu met yfir flest verðlaun hjá einni þjóð á einum vetrarleikum.

Lykill að velgengni Norðmanna á ÓL: „Engir skíthælar leyfðir“
Ef þú ert leiðinlegur eða með einhverja stjörnustæla þá er ekki pláss fyrir þig í hópi afreksfólks Norðmanna. Þetta segir einn besti skíðamaður norsku þjóðarinnar og verðlaunahafi á Ólympíuleikunnm í Pyeongchang.

The Simpsons spáði fyrir um gull Bandaríkjamanna í krullu
Spádómsgáfa sjónvarpsþáttanna The Simpsons er ótrúleg. Þættinum tekst meira að segja að spá fyrir um óvænt gullverðlaun á Ólympíuleikum.

Tonga-maðurinn stal senunni í síðasta skiptið
Tonga-maðurinn Pita Taufatofua kann þá list vel að stela senunni og koma sér í heimsfréttirnar. Hann gerði það í síðasta sinn á Ólympíuleikum í gær.

Versti árangur Bandaríkjanna á ÓL í 20 ár
Bandaríkjamenn urðu aðeins í fjórða sæti á verðlaunalista vetrarólympíuleikanna í Pyeongchang og horfa nú til Norðmanna til að bæta sig fyrir næstu leika í Peking 2022.

Freydís Halla náði bestum árangri Íslendinganna á ÓL
Rétt rúmlega helmingur keppenda Íslands á Ólympíuleikunum í Pyeongchang í Suður Kóreu náðu að klára sínar greinar á leikunum sem var slitið í gær. Alpagreinakonan Freydís Halla Einarsdóttir náði bestum árangri Íslands á leikunum.

Leikmenn gullliðs Rússa sungu sjálfir sönginn sem mátti ekki spila
"Við vissum alltaf að við myndum láta verða af þessu ef við næðum að vinna gullið,“ sagði Ilya Kovalchuk, einn af Ólympíumeisturum Rússa í íshokkí.

Banni Rússa aflétt
Alþjóðaólympíunefndin hefur ákveðið að aflétta ólympíubanni Rússa eftir leikana í Pyeongchang ef engin fleiri tilfelli um ólöglega lyfjanotkun koma upp.

Íkorni þvældist fyrir snjóbrettakeppninni
Íkorni olli usla í keppni í snjóbrettaati á Vetrarólympíuleikunum í PyeongChang í Suður Kóreu í dag.

Snorri kláraði ekki 50km gönguna
Snorri Einarsson lauk ekki keppni í síðustu grein sinni á Vetrarólympíuleikunum í PyeongChang í Suður Kóreu. Hann hætti eftir níu kílómetra af 50km skíðagöngu.

Kanadískur íþróttamaður rændi bíl í PyeongChang
Kanadískur Ólympíufari komst í vandræði í PyeongChang en hann hefur verið ákærður ásamt konu sinni og umboðsmanni fyrir að ræna bíl.

Sögulega lélegt hjá bandarísku skautadrottningunum
Á sama tíma og Rússar unnu tvöfalt í listdansi kvenna á skautum á Ólympíuleikunum í Pyeongchang í Suður-Kóreu í nótt þá var ekki boðið upp á rismikla frammistöðu hjá bandarísku stelpunum.