

Þyrla Landhelgisgæslunnar og þrír björgunarbátar voru kallaðir út um klukkan 23 í gærkvöldi vegna leka í strandveiðibáti. Einn var um borð og var hann fluttur á slysadeild Landspítalans vegna áverka. Viggó M. Sigurðsson, hjá aðgerðasviði Landhelgisgæslunnar, segir að Landhelgisgæslan hafi metið það svo að hann hafi verið í bráðri hættu.
Íbúí í Vatnsholti í Reykjavík smitaðist af hermannaveiki og hefur heilbrigðiseftirlit borgarinnar gripið til aðgerða til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu.
Íslandsbankahúsið á Kirkjusandi er rústir einar. Unnið hefur verið að niðurrifi hússins í rúma tvo mánuði.
Tveir góðkunningjar lögreglunnar voru handteknir síðdegis eftir að hafa flúið lögreglu á hlaupahjóli í vesturhluta Reykjavíkur. Lögregla ók lengi eftir mönnunum á grasi við göngustíg en þeir hvikuðu hvergi á ferð sinni.
Ritað var undir samning um uppsteypu og frágang á nýju húsi heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, sem rísa mun á Landspítalalóðinni. Áætlað er að nýtt hús og endurbættur Læknagarður muni hýsa stóran hluta af starfsemi sviðsins og að framkvæmdir taki alls um fimm ár.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stóð þó nokkra ökumenn að hraðakstri um helgina. Ökumenn voru svo gott sem á öllum aldri, en sumir keyrðu svo hratt að þeir eiga yfir höfði sér ákæru.
Hundruð manna hafa gert sér ferð í sérvöruverslunina Nexus í morgun þar sem blásið var til hinnar árlegu sumarútsölu verslunarinnar. Myndarleg röð var við inngang verslunarinnar í Glæsibæ þegar hún var opnuð klukkan tíu og yfir tvö hundruð manns komu í verslunina á innan við tuttugu mínútum til að gera góð kaup.
Einn var fluttur á sjúkrahús með skurð á hendi eftir að óður hundur réðst á konu og karlmann í stigagangi fjölbýlishúss í Grafarvogi á föstudagskvöld. Konan og karlmaðurinn eru á sjötugsaldri og voru með hundinn í pössun.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um tíuleytið í gærmorgun vegna elds í bílskúr í Ártúnsholti. Eldurinn kom upp í rafmagnshlaupahjóli sem var í hleðslu innandyra.
Brotist var inn í fataverslun í miðæ Reykjavíkur í nótt. Málið er í rannsókn lögreglu.
Deildarstjóri hjá Reykjavíkurborg segir málum þar sem hundar bíta fólk og önnur dýr fara fjölgandi. Hann hefur áhyggjur af því hversu margir trassa að skrá hunda hjá sveitarfélögum.
Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir hefur verið ráðin sóknarprestur í Grafarvogsprestakalli, en hún tekur við 1. júlí af sr. Guðrún Karls Helgudóttur sem hefur verið ráðin biskup Íslands.
Borgarstjóri segir áhyggjur íbúa Grafavogs af fyrirhugaðri uppbyggingu í hverfinu óþarfar. Enginn sé að fá margra hæða blokk í bakgarðinn hjá sér.
Tilkynnt var um óðan hund sem réðst á tvo í Grafarvoginum síðastliðið föstudagskvöld. Hundurinn var handsamaður og færður í vörslu Dýraþjónustu Reykjavíkur. Deildarstjóri Dýraþjónustunnar hefur áhyggjur af því að bitmálum fari fjölgandi.
Ökumaður sem var stöðvaður í hverfi 108 í nótt fyrir að aka á 120 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst, reyndist án gildra ökuréttinda. Tveir aðrir voru stöðvaðir í nótt sem reyndust án ökuréttinda, einn þeirra var undir áhrifum fíkniefna. Þá var einn sektaður fyrir að nota ekki bílbelti við akstur.
Undirbúningur fyrir Landsmót hestamanna sem mun standa yfir dagana 1. til 7. júlí er í fullum gangi. Búist er við þúsundum áhorfenda og keppendur eru á fullu að æfa sig. Í tilefni af mótinu var haldin miðbæjarreið í dag, þar sem 60 knapar riðu hestum sínum um miðbæ Reykjavíkur. Rætt var við mótsstjóra og knapa í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Fjölskylda palestínsks drengs með skæðan vöðvarýrnunarsjúkdóm segir heim hans hafa hrunið þegar honum var tilkynnt endanlega nýverið að fjölskyldunni yrði vísað úr landi. Hundruð sýndu samstöðu með fjölskyldunni á Austurvelli í dag en drengurinn dvelur nú á Barnaspítalanum.
Tilkynnt var í dag um þjófnað í verslun í hverfi 101, þar sem fatnaði að verðmæti 92 þúsund krónum var stolið. Gerandi er ókunnur.
Séra Aldís Rut Gísladóttir, prestur í Hafnarfjarðarkirkju, hefur verið ráðin prestur við Grafarvogskirkjuprestakalls. Prestakallið þarnast nýs prests frá og með 1. júlí, þegar séra Guðrún Karls Helgudóttir verður vígð til embættis biskups Íslands.
Borgarstjóri hefur ekki áhyggjur af því sem kallaður hefur verið lítill áhugi landsmanna á parísarhjólinu við Miðbakka í Reykjavík. Fimmtán prósent þjóðarinnar reiknar með að fara hring í hjólinu í sumar.
Tíu ára dóttir Ágústu Nielsen lenti í því leiðinlega atviki í síðustu viku að vera vísað úr strætisvagni á miðri leið að því er virðist tilefnislausu. Ágústa veltir því fyrir sér hvort atvikið hafi verið tengt kynþætti dóttur hennar en faðir stúlkunnar er af erlendu bergi brotinn.
Betur fór en á horfðist þegar brotist var inn á heimili Andreu Sigurðardóttur í Laugardalnum síðdegis í dag. Hún var fyrir utan heimili sitt að framanverðu þegar maður braust inn í íbúðina bakdyramegin rétt fyrir 14 í dag, og hafði úr íbúðinni ýmis verðmæti. Fyrst hélt hún að maðurinn væri sölumaður, en þegar hún fattaði hvað væri á seiði tók hún á rás eftir manninum.
Samkvæmt tillögu menningar,- íþrótta- og tómstundaráðs, sem samþykkt var í morgun og tekin verður fyrir í borgarráði, munu sundgestir sem náð hafa 67 ára aldri greiða stakt gjald fullorðinna og gjaldflokkurinn „eldri borgarar“ verður tekinn úr gjaldskránni. Stakt gjald fullorðinna í sundlaugar Reykjavíkurborgar er 1.330 krónur. Breytingin tekur gildi frá og með 1. ágúst.
Páll Pálsson fasteignasali segir enga dramatík á fasteignamarkaði eins og er. Það sé um 30 prósent meiri sala en í fyrra, á sama tíma, en síðasta ár hafi verið lélegt. Hann segir að það hafi orðið um 8,4 prósenta hækkun á fasteignaverði síðasta árið en að stór hluti hækkunarinnar sé tilkomin á þessu ári.
Óvænt tillaga leit dagsins ljós í öldungaráði Reykjavíkurborgar þess efnis að Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrennis fengi aðeins einn fulltrúa í sjö manna öldungaráði borgarinnar í stað þriggja eins og verið hefur.
Stuðningsmenn Yazans Tamimi, ellefu ára palestínsks drengs með vöðvahrörnunarsjúkdóm, efndu í dag til gjörnings við Lækjartorg til að mótmæla fyrirhugaðri brottvísun hans úr landi.
Zeppelin arkitektar hafa auglýst eftir samstarfsaðila til að kaupa Perluna og byggja þar hótel, heilsulind og baðlón. Orri Árnason arkitekt, segir að hugmyndin sé rúmlega tíu ára gömul, en nú sé aftur tækifæri til að láta hana raungerast.
Samþykkt var á í borgarráði í dag að fjölga leikskólaplássum í leikskólanum Miðborg í miðbæ Reykjavíkur um 75. Rekstarleyfi leikskólans Miðborgar hefur verið fært upp 161 barn en sem stendur eru þar 86 börn með pláss.
Mikillar óánægju gætir meðal hóps íbúa í Grafarvogi um áform borgarinnar um uppbyggingu í hverfinu. Hópurinn óttast að græn svæði hverfi fyrir þéttri byggð og hefur stofnað undirskriftalista til að mótmæla byggingu á fjölbýlishúsi á lóð við Smárarima/Sóleyjarima.
Vegna ákvörðunar borgarinnar um þéttingu byggðar á reitnum hér hjá okkur í Sóleyjarima, Grafarvogi (og fleiri stöðum í Grafarvogi) finnst mér ég knúin til þess að benda á lýðheilsumál sem borgin státir sig af að fylgja og hafa þarf að leiðarljósi.