Grindavík
60 61 62 63 64 65 66 67 68 … 73 ›
Stika langstystu leiðina inn á gossvæðið Björgunarsveitarmenn eru þessa stundina að hefjast handa við að stika gönguleið frá Suðurstrandarvegi upp að Nátthagakrika sem er talin vera besta leiðin inn á gossvæðið í Geldingadal. Innlent 22.3.2021 16:38
Leiðin sem flestir mæla með að gosinu í Geldingadal Margir hafa velt því fyrir sér hvaða leið sé best að fara að gosinu í Geldingadal. Á laugardag mælti Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn með því að ganga frá Bláa lóninu. Innlent 22.3.2021 14:44
Brýnt að virða tilmæli því á morgun gæti mengun orðið lífshættuleg Náttúruvársérfræðingur segir að staðan á eldgosinu sé svipuð og í upphafi og að það sé ekkert sem bendi til þess að því ljúki í dag. Biðlað er til fólks um að virða tilmæli almannavarna því þegar lægir á morgun gæti gosmengun í Geldingadal orðið lífshættuleg. Innlent 22.3.2021 14:27
„Svo breytist vindáttin stöðugt þannig að þetta eru ekki góðar aðstæður“ „[Aðstæður á gosstöðvunum] eru ekki mjög góðar. Það er svolítið mikið rok þarna, gerir haglél og alls konar. Svo er mikil mengun þarna sem safnast fyrir í lægðum og dældum alls staðar.“ Þetta segir Samúel Þorsteinsson hjá Björgunarfélagi Akraness sem hafði verið á gosstöðvunum frá klukkan eitt í nótt. Innlent 22.3.2021 11:34
Vaknaði í Grindavík og fattaði að líklega væri verið að leita að honum Daniel Höhne, þýskur karlmaður búsettur á Íslandi, er eigandi bíls sem fannst mannlaus austan við Grindavíkurveg til móts við Bláa lónið í morgun. Hann lagði upp í göngu klukkan tólf á hádegi á sunnudag og í stað þess að fara aftur að bíl sínum ákvað hann að gista í Grindavík og sækja bílinn daginn eftir. Innlent 22.3.2021 10:51
Hleypa þurfi fólki nær og stika leiðina Tómas Guðbjartsson, hjartalæknir og útvistarmaður, segir mikilvægt að auðvelda fólki aðgang að eldgosi á borð við það sem hófst í Geldingadal á föstudaginn. Auðvitað verði að virða lokun nú þegar veður er vont og hætta á gasmengun en í framhaldinu þurfi að hugsa strax í hvaða farveg eigi að beina straumi fólks svo gróðurinn verði ekki fyrir skakkaföllum. Innlent 22.3.2021 10:27
Maðurinn fundinn sem leitað var að við gosstöðvarnar Maður sem leitað hefur verið í nágrenni gosstöðvanna í Geldingadal er fundinn. Þetta segir Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar í samtali við Vísi. Innlent 22.3.2021 10:01
„Fólk var að koma niður örmagna og að detta í ofkælingarástand“ Rúmlega 140 björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðum á Suðurnesjum í nótt vegna fólks sem hafði farið að gossvæðinu í Geldingadal og lent í miklum vandræðum þegar veður tók að versna. Innlent 22.3.2021 06:44
Slæmt veður á gossvæðinu og biðja fólk að snúa við Lögreglan á Suðurnesjum biðlar til þeirra sem hyggjast ganga að gosstöðvunum í nótt að snúa við. Afar slæmt veður er á svæðinu og er spáð versnandi veðri í nótt. Innlent 22.3.2021 01:42
Eins og „góð þjóðhátíð“ miðað við bílafjölda „Ég hef aldrei séð annan eins ágang,“ segir Hjálmar Hallgrímsson lögreglumaður um bílaumferðina sem hefur myndast á lokunarpósti á Suðurstrandarvegi, rétt austan við Grindavík. Þúsundir hafa lagt leið sína í átt að Fagradalsfjalli eftir að eldgos hófst í Geldingadal á föstudagskvöld og ber bílafjöldinn þess merki. Innlent 21.3.2021 20:21
Stríður straumur fólks í Geldingadal: Dæmi um að fólk mæti á gallabuxum og strigaskóm Fólk hefur í dag lagt leið sína í stríðum straumum að eldgosinu í Geldingadal. Lokað er fyrir bílaumferð inn á svæðið en fólki hefur verið hleypt inn á svæðið fótgangandi. Dæmi eru um að fólk hafi lagt af stað á vettvang illa búið fyrir þær aðstæður sem blasa við á svæðinu. Innlent 20.3.2021 17:51
Adrenalínfíklar í Geldingadal í nótt: „Maður lifir hvort eð er bara einu sinni“ Ævintýramaðurinn Steinn Alex Kristgeirsson fór alveg upp að gosinu í Geldingadal í nótt ásamt vinum sínum og náði af því sláandi nærmyndum. Hann segir að þeir hafi byrjað að ganga að gossvæðinu um klukkan 23:30 í gær og verið komnir þangað eftir yfir þrjár klukkustundir. Innlent 20.3.2021 13:16
„Móðir náttúra gefur okkur stórkostlega náttúrusmíð“ Kristján Már Unnarsson, fréttamaður Stöðvar 2, segir eldgosið í Geldingadal líklega vera það minnsta sem hann hafi séð hingað til. Það sé þó mjög fallegt. Innlent 20.3.2021 11:25
Ekki líklegt að gasmengun berist til Grindavíkur Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, segir að eldgosið í Geldingadal hafi létt á spennu á svæðinu og þess sé vænst að jarðskjálftum muni fækka. Enn sé þó mögulegt að þeim gæti fjölgað, þó það sé ólíklegra. Innlent 20.3.2021 10:35
Þyrluferð á gosstað Kristján Már Unnarsson, fréttamaður Stöðvar 2, er í þyrlu yfir eldgosinu í Geldingadal. Innlent 20.3.2021 09:30
Fyrstu myndir dagsins staðfesta að um lítið gos sé að ræða Fyrstu myndir úr þyrlu Landhelgisgæslunnar nú í morgun staðfesta að um lítið gos sé að ræða á Reykjanesskaga og hraunstreymið sé enn innikróað í Geldingadal við Fagradalsfjall. Þetta segir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Enn er ekki hægt að segja til um það hvort krafturinn í gosinu hafi breyst en nýjar upplýsingar liggja fyrir á tíunda tímanum. Innlent 20.3.2021 08:51
Fjórtán gistu í fjöldahjálparstöð Rauða krossins Rauði krossinn opnaði fjöldahjálparstöð í Hópsskóla í Grindavík í gærkvöldi þar sem fjórtán gistu í nótt vegna rýmingar í Krýsuvík. Enginn var í hættu. Innlent 20.3.2021 08:43
Nýjar myndir af gosinu í Geldingadal Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar tók í morgun nýjar myndir af eldgosinu í Geldingadal. Innlent 20.3.2021 08:01
Þetta vitum við um eldgosið í Geldingadal Eldgos hófst í Geldingadal við Fagradalsfjall klukkan 20:45 í gærkvöldi. Klukkan 21:36 hringdi kona inn á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar og velti því upp hvort gos væri mögulega hafið á Reykjanesskaga. Hún taldi sig hafa séð rauðan bjarma á vefmyndavél sem hún var að fylgjast með. Innlent 20.3.2021 03:28
Kristján Már fór yfir eldgos síðustu þriggja áratuga í beinni „Ég heyrði að Páll Einarsson nefndi Kröfluelda, það var einmitt fyrsta gosið sem ég dekkaði sem fréttamaður,“ sagði Kristján Már Unnarsson, fréttamaður okkar, í beinni útsendingu frá Grindavík í kvöld þar sem hann fylgdist með eldgosinu í Geldingadal. Innlent 20.3.2021 03:15
Krýsuvíkurskóli rýmdur og fjöldahjálparstöð opnuð Meðferðarheimilið Krýsuvíkurskóli var rýmt í kvöld vegna gasmengunarhættu. Þau sem þar dvöldu voru flutt í Hópsskóla í Grindavík, þar sem opnuð hefur verið fjöldahjálparstöð. Innlent 20.3.2021 01:49
Sóttu þrjá illa búna í grennd við gosið Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík sótti í kvöld illa búið fólk í grennd við eldgosið í Geldingadal við Fagradalsfjall. Önnur verkefni sveitarinnar hafa meðal annars snúið að því að fylgja vísindamönnum um svæðið og loka vegum. Innlent 20.3.2021 01:26
„Þetta er einhver heppilegasti staður á Reykjanesskaga fyrir hraungos“ Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur, segir að eldgosið sem hófst fyrr í kvöld í Geldingadal við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga sé að koma upp á heppilegasta stað á skaganum. Svo virðist sem gosið sé lítið og að því fylgi lítill órói. Innlent 19.3.2021 23:27
Fyrsta myndin af gosinu: Sprungan virðist 200 metra löng Syðri endi hrauntungunnar sem rennur úr gosinu er um 2,6 km frá Suðurstrandarvegi, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Meðfylgjandi er fyrsta myndin sem birt er af gosinu. Innlent 19.3.2021 23:09
„Það var eiginlega talið að þetta væri í rénun“ Fannar Jónasson bæjarstjóri í Grindavík segir að eldgosið sem nú er hafið við Fagradalsfjall hafi komið honum – og líklega öðrum bæjarbúum – á óvart. Í morgun hafi litið út fyrir að virknin væri í rénun. Hann segir að staðsetning gossins virðist jafnframt góð gagnvart Grindavík. Innlent 19.3.2021 22:58
Sjá mikinn og fallegan rauðan bjarma úr Grindavík „Maður sér bara mikinn og fallegan rauðan bjarma fyrir austan bæinn,“ segir Vilhjálmur Árnason þingmaður um gosið sem hafið er við Fagradalsfjall. Innlent 19.3.2021 22:39
Gos hafið í Geldingadal Eldgos er hafið í Geldingadal við Fagradalsfjall. Tilkynning þess efnis barst frá Veðurstofu Íslands til fjölmiðla klukkan 21:55 og í framhaldinu að það hefði að líkindum hafist klukkan 20:45. Lítill órói hefur sést á jarðskjálftamælum. Almannavarnir brýna fyrir fólki að vera ekki að fara ekki á staðinn. Innlent 19.3.2021 21:45
Suðurstandarvegur lokaður fram yfir helgi Ástand Suðurstrandarvegar við Festarfjall er svipað og var í gær en hefur heldur þróast til verri vegar. Í ljósi jarðskjálftavirkninnar og spár um rigningu á svæðinu næsta daga hefur verið tekin sú ákvörðun að halda veginum lokuðum að minnsta kosti fram yfir helgi. Innlent 19.3.2021 12:05
Loka fyrir umferð á Suðurstrandarvegi í kvöld og í nótt Suðurstrandarvegi verður lokað klukkan 18 á eftir og fram á morgun hið minnsta. Er það gert vegna ástands vegarins í kjölfar jarðhræringanna á Reykjanesskaga. Innlent 18.3.2021 16:21
Suðurstrandarvegur þrengdur á kafla vegna frekari skemmda Frekari skemmdir urðu á Suðurstrandarvegi í gær nálægt Festarfjalli, en sprungur hafa myndast við axlir og í fyllingu þannig að vegrið hefur ekki allsstaðar fullan stuðning. Innlent 16.3.2021 14:41