
Indland

Modi framlengir útgöngubann
Forsætisráðherra Indlands hefur tilkynnt indversku þjóðinni að útgöngubannið, sem í gildi er, verði framlengt til 3. maí.

Óttast að kórónuveiran fari eins og eldur í sinu um stærsta fátækrahverfi Indlands
Heilbrigðisstarfsmenn Mumbai hafa verið á hlaupum síðan til að reyna að koma í veg fyrir faraldur í fátækrahverfinu þar sem nærri því milljón manna búa saman á tveimur ferkílómetrum.

Óðagot á Indlandi vegna útgöngubannsins
Lögreglumenn á Indlandi hafa barið fólk sem ætlaði að kaupa mat eftir að útgöngubanni var komið á til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar í gærkvöldi. Skelfing greip um sig eftir ræðu Narendra Modi, forsætisráðherra, í gær þegar fólk óttaðist að það yrði matarlaust.

Þriggja vikna útgöngubann sett á rúmlega milljarð manna á Indlandi
Íbúar Indlands, sem eru um 1,3 milljarður manna, eiga að halda sig heima við næstu þrjár vikurnar samkvæmt tilskipun stjórnvalda. Útgöngubannið er talið eitt það strangasta sem sett hefur verið í heiminum vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

Fjórir teknir af lífi vegna hópnauðgunarinnar í Delí
Fjórir karlmenn hafa verið teknir af lífi eftir að hafa verið dæmdir til dauða vegna hópnauðgunar og morðs í höfuðborginni Delí sem skók Indland árið 2012.

Á þriðja tug brúðkaupsgesta látnir eftir rútuslys á Indlandi
Að minnsta kosti 24 eru látnir eftir að rúta fór út af veginum og hafnaði í fljóti í vestanverðu Indlandi.

Tuttugu látnir eftir óeirðirnar í Delí
Til til átaka kom fyrst á sunnudagskvöld þegar íbúar í borginni mótmæltu nýjum lögum um ríkisborgararétt sem eru sögð sett til höfuðs múslimum í landinu.

Sjö létu lífið í mótmælum í Delí
Fólkið hafði komið saman til að mótmæla umdeildum nýjum lögum í landinu sem varða ríkisborgararétt og var tækifærið nýtt til mótmæla á meðan Donald Trump Bandaríkjaforseti kom í sína fyrstu opinberu heimsókn til Indlands.

Mikið um dýrðir í fyrstu opinberu heimsókn Trump til Indlands
Tónlistarmenn á kameldýrum og þúsundir manna með Trump-grímur tóku á móti Bandaríkjaforseta og konu hans við upphaf Indlandsheimsóknar þeirra í dag.

Hélt 23 börnum í gíslingu eftir að hafa boðið þeim í „afmælisveislu“
Subhash Batham hafði haldið 23 börnum í gíslingu eftir að hafa talið þeim trú um að hann væri að halda afmælisveislu fyrir ársgamla dóttur sína.

Lögregla í Delhi ber ekki kennsl á árásarmenn en ákærir slasaða stúdenta í staðin
Enginn úr hópi árásarmanna hefur verið handtekinn en formaður stúdentaráðs háskólans, sem var barin í höfuðið með járnteini í árásinni sem gerð var á sunnudag, hefur verið ákærð fyrir tvö ótengd mál.

Aftökudagur ákveðinn í víðfrægu nauðgunarmáli í Indlandi
Dómstólar í Indlandi hafa ákveðið hvenær taka á fjóra menn, sem dæmdir voru fyrir hópnauðgun og morð ungrar konu í Indlandi árið 2012, af lífi.

Indverskir stúdentar mótmæla árás á háskóla
Indverskir stúdentar leituðu í dag út á götur og mótmæltu árás sem gerð var á háskóla í Delhi af grímuklæddum mönnum á sunnudag.

Kaldasti dagur Delí síðan mælingar hófust
Kuldabylgja gengur nú yfir norðurhluta Indlands.

Norskri konu vísað frá Indlandi vegna mótmæla
Tveimur útlendingum hefur verið skipað að yfirgefa landið fyrir að styðja mótmælendur gegn umdeildum lögum ríkisstjórnar Indlands.

Harðnandi mótmæli á Indlandi
Mikill fjöldi Indverja hefur mótmælt af krafti síðustu daga eftir að þingið samþykkti umdeilt frumvarp um ríkisborgararétt fyrir innflytjendur aðra en múslima. Forsætisráðherrann segir málið snúast um að skýla ofsóttum.

Rúmlega fjörutíu látnir eftir bruna í verksmiðju
Tugir eru látnir eftir að mikill eldur kom upp í verksmiðju í indversku höfuðborginni Nýju-Delí í morgun.

Lést af sárum sínum eftir að kveikt var í henni á leið í dómsal
Kona á Indlandi, sem hópur manna bar eld að þegar hún var á leið í dómsal til að bera vitni gegn meintum nauðgurum sínum, er látin af völdum sára sinna.

Skotnir til bana grunaðir um að nauðga og myrða unga konu
Lögreglan á Indlandi skaut í morgun fjóra menn til bana sem allir voru grunaðir um að nauðga og síðan myrða unga konu sem starfaði sem dýralæknir í Hyderabad héraði í síðustu viku.

Fjórar fjölskyldur grófust undir múr sem hrundi
Sautján manns hið minnsta létu lífið eftir að hafa orðið undir þegar múr hrundi í bæ í suðurhluta Indlands.

Kveiktu í líki konunnar eftir hópnauðgun
Fjórir menn játuðu í gær á sig að hafa hópnauðgað og myrt 27 ára gamla konu í suðurhluta Indlands. Brennt lík hennar fannst undir brú í Hyderabad, höfuðborg indverska fylkisins Andhra Pradesh, og eru mennirnir taldir hafa kveikt í líki hennar.

Fjarlægðu 7,4 kílóa nýra úr manni
Nýrað var skorið úr 56 ára gömlum manni sem glímdi við lífshættulegan nýrnasjúkdóm sem gerði það að verkum að annað nýrað blés út með þessum hætti.

Tugir látnir eftir að fellibylur skall á Bangladess og Indland
Fellibylurinn Bulbul skall á Bangladess og Indland um helgina.

Dæmir hindúum í hag í deilunni um guðshúsin í Ayodhya
Hæstiréttur Indlands hefur dæmt á þann veg að heimilt verði að reisa nýtt hindúahof á svæði sem hindúar og múslimar hafa deilt um um margra alda skeið.

Notast við skömmtunarkerfi í Nýju-Delí
Gríðarleg mengun er nú í indversku höfuðborginni Nýju-Delí.

Vinna að björgun drengs sem setið hefur fastur í brunni síðan á föstudag
Viðbragðsaðilar á Indlandi vinna nú hörðum höndum að björgunaraðgerðum í Tamil Nadu í suðurhluta landsins hvar Sujith Wilson, drengur sem talinn er vera á þriðja aldursári hefur setið fastur á botni 26 metra djúps brunnar síðan á föstudag.

Hindíkennsla í Háskólanum
Nám hófst í hindí við Háskóla Íslands í haust og á bilinu 10 til 15 nemendur eru skráðir í fyrstu áfangana.

Fjórir drukknuðu eftir sjálfumyndatöku
Nýgift kona og þrír fjölskyldumeðlimir hennar drukknuðu þegar fólkið var að taka sjálfu, eða selfie, út í miðju uppistöðulóni á Indlandi á dögunum.

Yfirvöld í Katar rannsaka ekki dauðsföll hundruð erlendra verkamanna
Yfirvöld í Katar hafa ekki rannsakað skyndileg dauðsföll hundruð erlendra verkamanna þar í landi.

Tískufyrirmyndin Gandhi
Í gær voru liðin 150 ár frá fæðingu stjórnmála- og trúarleiðtogans Mahatma Gandhi. Hann er kannski þekktur fyrir eitthvað annað en að vera tískufyrirmynd en samband hans við föt var mjög djúpstætt og táknrænt.