Rússland
53 54 55 56 57 58 59 60 61 … 99 ›
Andrés Ingi segir rússnesk stjórnvöld „móðgunargjarna brjálæðinga í Kreml“ Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra fékk óvæntan stuðning frá minnihlutanum á þingfundi í dag. Þingmenn úthúðuðu Pútín úr ræðustól þingsins og kölluðu hann ítrekað illvirkja. Þá voru rússnesk sendiráð um víða veröld kölluð falsfréttaveitur. Innlent 23.3.2022 17:03
Vaktin: Kallar eftir allsherjarmótmælum um allan heim á morgun Sérstakur leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins, G-7 ríkjanna og Evrópusambandsins fer fram í Brussel á morgun en forseti Úkraínu kallar eftir allsherjarmótmælum um allan heim. Þetta sagði Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, í daglegu ávarpi sínu í nótt. Erlent 23.3.2022 06:47
Sigurður Ingi sér ekki fyrir sér að biðja Rússa afsökunar Innviðaráðherra sér ekki fyrir sér að biðja rússneska sendiráðið á Íslandi afsökunar á ummælum sem hann lét falla um „illmennin í Kreml“ á flokksþingi Framsóknarflokksins um helgina. Hann muni kannski íhuga það ef Rússar láta af hernaði í Úkraínu. Innlent 23.3.2022 11:28
Aftur til fortíðar? Skortur og raðir í Rússlandi Refsiaðgerðir bandamanna gegn Rússum eru farnar að bitna á almennum borgurum, sem þurfa nú að greiða töluvert meira fyrir innfluttan varning en áður, ekki síst vegna gengislækkunar rúblunnar. Erlent 23.3.2022 08:58
Bandaríkjamenn gagnrýna „hættulegt“ tal Rússa um notkun kjarnorkuvopna John Kirby, talsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins, fordæmdi ummæli talsmanns stjórnvalda í Moskvu á CNN í gær, þar sem hann sagði að kjarnorkuvopnum yrði mögulega beitt ef „tilvistaleg ógn“ steðjaði að Rússum. Erlent 23.3.2022 06:19
Krefja Sigurð Inga um afsökunarbeiðni vegna ummæla um „illmennin í Kreml“ Rússneska sendiráðið í Reykjavík fer fram á það að Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra biðjist afsökunar á ummælum sem hann lét falla á flokksþingi Framsóknarflokksins um helgina um „illmennin í Kreml.“ Sendiráðið segist líta á ummæli ráðherrans sem afskipti af innanríkismálum Rússlands og að það sé ekki við hæfi að hann tjái sig um þau mál. Innlent 22.3.2022 23:58
Úkraínuforseti kallar rússneska hermenn áróðursþræla Forseti Úkraínu hvetur Vesturlönd til að herða enn á refsiaðgerðum sínum og auka stuðning þeirra við Úkraínu. Hann kallar rússneska hermenn þræla sem skjóti að frjálsu fólki í borgum sem þeir hafi hertekið. Barist er á götum Mariupol þar sem talið er að hersveitir Téténa leggi Rússum lið. Erlent 22.3.2022 19:21
Vaktin: Von á hertum refsiaðgerðum síðar í vikunni Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur ítrekað ákall sitt eftir viðræðum við Vladimir Pútín Rússlandsforseta, sem hann segir lykilinn að því að binda enda á stríðið. Fulltrúar Rússlands segja samningaviðræður ekki enn komnar á það stig. Erlent 22.3.2022 06:53
Fangelsisvistin lengd um níu ár og Navalní færður í hámarksöryggisfangelsi Alexei Navalní, pólitískur andstæðingur Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, hefur verið dæmdur í níu ára fangelsi og verður færður í hámarksöryggisfangelsi. Hann var í morgun dæmdur sekur um stórfellt fjármálamisferli í tengslum við samtök hans gegn spillingu í Rússlandi sem yfirvöld hafa skilgreint sem öfgasamtök. Erlent 22.3.2022 13:10
Sjá engin ummerki um undiröldu gegn Pútín Vladimír Pútin, forseti Rússlands, getur enn reitt sig á hollustu hinnar pólitísku elítu í Rússlandi. Það er þrátt fyrir fordæmalausar refsiaðgerðir vegna innrásar Rússa í Úkraínu og að innrásin hafi verið fordæmd um mest allan heim. Erlent 22.3.2022 11:59
Tengja 91 milljarðs króna snekkju við Pútín Glæsisnekkja sem metin er á um 91 milljarð króna og liggur við bryggju á Ítalíu er í eigu Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Það er samkvæmt bandamönnum Alexeis Navalní, pólitísks andstæðings Pútíns sem situr í fangelsi nærri Moskvu. Viðskipti erlent 22.3.2022 09:43
Navalní fundinn sekur um fjármálamisferli Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní, einn helsti gagnrýnandi Vladimírs Pútín Rússlandsforseta, var í morgun fundinn sekur um stórfellt fjármálamisferli. Erlent 22.3.2022 08:00
Biden segir Pútín „kominn út í horn“ og hann íhugi notkun efnavopna Falskar ásakanir Rússa um að Úkraína hafi verið að þróa og búi að lífefna- og efnavopnum er „augljóst merki“ um að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hyggist beita slíkum vopnum. Erlent 22.3.2022 06:30
Íslenskt útgerðarfyrirtæki segir Rússa hafa reynt að fjárkúga sig Útgerðarfyrirtækið Vinnslustöðin segir Rússa hafa reynt að beita sig fjárkúgun í tvígang á síðasta áratug. Fyrirtækið á gott samband við hvítrússneskan ólígarka sem fyrirtækið segir að hafi aðstoðað sig úr vandanum á sínum tíma. Viðskipti innlent 21.3.2022 23:30
Tveir rússneskir íþróttamenn í langt bann Rússneskur fimleikamaður og rússneskur skákmaður voru í dag dæmdir í langt keppnisbann af alþjóðasamböndum sínum fyrir að sýna Valdimír Pútín stuðning. Sport 21.3.2022 16:30
Facebook og Instagram lokað í Rússlandi vegna ofstækis Rússneskur dómstóll hefur skipað Meta, móðurfyrirtæki Facebook, að stöðva starfsemi Facebook og Instagram í Rússlandi án fyrirvara. Í úrskurðinum er vísað til „ofstækisvirkni“ og Meta skilgreint sem ofstækisfélag. Viðskipti erlent 21.3.2022 14:24
Veltir því fyrir sér hvort Ólafur Ragnar afsaki gjörðir Pútíns Prófessor í stjórnmálafræði veltir því fyrir sér hvort að afsökun fyrir gjörðir Pútíns felist í ummælum Ólafs Ragnars Grímssonar, þess efnis að stækkun Atlantshafsbandalagsins hafi leitt til stríðsins í Úkraínu. Innlent 21.3.2022 12:00
Segja Rússa ætla að svelta Úkraínumenn til hlýðni Jack Watling, sérfræðingur hjá hugveitunni Royal United Services Institute í Lundúnum, segir átökin í Úkraínu vera að færast í annan fasa. Rússar muni einbeita sér að einni borg í einu og freista þess að svelta Úkraínumenn til hlýðni. Erlent 21.3.2022 11:01
Vaktin: Segjast hafa sannanir fyrir stríðsglæpum Rússa „Það er ekki til umræðu að gefast upp, að leggja niður vopn. Við höfum þegar greint Rússum frá þessu. Í stað þess að eyða tíma í átta blaðsíðna bréfasendingar, opnið bara leið úr borginni.“ Erlent 21.3.2022 06:33
Hóta að draga þá sem ekki gefast upp í Maríupól fyrir herdómstól Varnarmálaráðuneyti Rússlands sendi í kvöld út yfirlýsingu þar sem verjendum Maríupól var gert að leggja niður vopn og yfirgefa borgina. Þeir sem geri það ekki verði dregnir fyrir herdómstól í Rússlandi. Erlent 20.3.2022 23:53
Er Roman Abramovich portúgalskur gyðingur? Portúgölsk stjórnvöld rannsaka hvernig á því stendur að rússneska auðjöfrinum Roman Abramovich var veittur portúgalskur ríkisborgararéttur í fyrra. Rabbíni gyðinga í Porto hefur verið handtekinn vegna málsins. Erlent 20.3.2022 16:31
Vaktin: Krefjast uppgjafar Maríupól Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir umsátur Rússa um Maríupól og árásir þeirra á borgina „hrylling sem verður minnst um ókomnar aldir“. Rússar hafa lagt til flóttaleiðir frá borginni á morgun. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. Erlent 20.3.2022 07:14
Ungt fólk streymir frá Rússlandi Ungt fólk streymir frá Rússlandi í tuga þúsunda tali. Stór hluti þessa hóps er menntaður og hefur unnið í tæknigeira Rússlands. Mörg þeirra hafa farið til Armeníu. Erlent 20.3.2022 15:44
Segja Úkraínumenn hafa stöðvað Rússa Úkraínumenn eru sagðir hafa stöðvað sókn Rússa og er útlit fyrir langvarandi átök sem einkennast af þrátefli með tilheyrandi mannfalli og eyðileggingu. Erlent 20.3.2022 12:03
Svona er lífið í 53 stiga frosti í köldustu borg heims Fyrir nokkrum árum var Ragnar á ferð í Yakutiu í Síberíu, en ríkið er þekkt fyrir miklar öfgar í hita og kulda. Höfuðborg ríkisins, Yakutsk, er kaldasta borg heims, og Ragnar vildi skrásetja lífið í kuldanum í borginni og á túndrunni í nágrenni borgarinnar. Menning 20.3.2022 07:00
Segja hundruð þúsunda föst í Mariupol þar sem lík hrannist upp á götum úti Björgunaraðgerðir í úkraínsku borginni Mariupol, í suðurhluta landsins, hafa gengið afar erfiðlega vegna stöðugra átaka víðsvegar um borgina. Talið er að um 300.000 manns séu föst í borginni, sem Rússar sitja um. Erlent 19.3.2022 23:31
Engin ákvörðun tekin um stöðu hvítrússneska ólígarksins Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvort hvítrússneski ólígarkinn verði áfram á skrá yfir kjörræðismenn Íslands. Þetta segir utanríkisráðherra sem eftir helgi verður boðaður á fund með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vegna málsins. Innlent 19.3.2022 21:30
Pútín vill styrkja stöðu sína fyrir fund með Selenskí Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er ekki tilbúinn til viðræðna við Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Hann vill líklega styrkja stöðu sína fyrir mögulegar viðræður. Erlent 19.3.2022 17:01
Vaktin: Pútín sagður búinn að sætta sig við að geta ekki velt Selenskí úr sessi Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur kallað eftir raunverulegum og sanngjörnum friðarviðræðum. Úkraínumenn hafa ítrekað að forgangskröfur þeirra séu varanlegt vopnahlé og brotthvarf Rússa frá Úkraínu. Erlent 19.3.2022 07:27
Segir Pútín óttast frelsi og lýðræði í Úkraínu Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir Vladimír Pútín, forseta Rússlands, hafa ráðist inn í Úkraínu, því frjáls og lýðræðisleg Úkraína væri ógn gagnvart alræðisstjórn hans í Rússlandi. Erlent 19.3.2022 13:41