Forseti Íslands
1 2 3 4 5 6 7 8 … 30 ›
Svona var setning Alþingis með nýjum forseta og biskup Setningarathöfn Alþingis hefst klukkan 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu. Innlent 10.9.2024 12:49
„Þetta má aldrei gerast aftur“ Forseti Íslands kallar eftir samstilltu þjóðarátaki gegn ofbeldi í kjölfar andláts Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem stungin var til bana á Menningarnótt. Opin minningarstund var haldin í Lindakirkju í dag þar sem fólk gat heiðrað minningu Bryndísar Klöru og veitt sorg sinni útrás. Innlent 7.9.2024 19:19
„Við erum öll harmi slegin“ Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, segir nauðsynlegt að ráðast að rótum vandans vegna þeirra sorglegu atburða sem hafa átt sér stað í samfélaginu undanfarið. Íslendingar þurfi að gerast „riddarar kærleikans“ og gera kærleikann að eina vopninu í samfélaginu. Innlent 7.9.2024 12:21
Ekkert uppgjör frá tveimur framboðum og Halla og Katrín síðastar að skila Allir nema tveir frambjóðendur til embættis forseta Íslands hafa skilað til Ríkisendurskoðunar fjárhagslegu uppgjöri vegna framboðs til embættisins. Frestur til að skila inn uppgjöri rann út í gær þegar þrír mánuðir voru liðnir frá forsetakosningum. Innlent 3.9.2024 10:35
Halla og Björn hittu Macron-hjónin í París Forsetahjónin Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason hittu frönsku forsetahjónin Emmanuel og Brigitte Macron í Elysee-höll í París í gær. Innlent 29.8.2024 11:39
Halla býður á Bessastaði í fyrsta sinn Forsetasetrið að Bessastöðum verður opið almenningi í tilefni Menningarnætur, laugardaginn 24. ágúst. Það verður í fyrsta sinn sem nýr forseti, Halla Tómasdóttir, og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, bjóða almenningi að heimsækja Bessastaði síðan hún tók við embætti. Lífið 22.8.2024 18:43
Ólafur Ragnar skákar Vigdísi og Guðna Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, er efstur á tekjulista forseta, alþingismanna og ráðherra með 4,3 milljónir króna á mánuði. Guðni Th. Jóhannesson, einnig fyrrverandi forseti, er með 3,4 milljónir á mánuði og Vigdís Finnbogadóttir með 3 milljónir á mánuði. Innlent 20.8.2024 16:27
Forsetagæinn hyggst hlaupa sitt lengsta hlaup til þessa Forsetagæinn Björn Skúlason eiginmaður Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, hyggst hlaupa hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu í ár. Um er að ræða hans lengsta hlaup til þessa en hann safnar áheitum fyrir Píeta samtökin. Lífið 15.8.2024 20:01
„Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Það vakti athygli í gærkvöldi að innsetning Höllu Tómasdóttur sem sjöundi forseti lýðveldisins hafi ekki verið fyrsta frétt í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. Þess í stað var frétt um að samhæfing í viðbrögðum við jökulhlaupum væri ábótavant. Brýnar upplýsingar til almennings, að sögn vaktstjóra kvöldfrétta RÚV. Innlent 2.8.2024 18:01
Halla fann efnið í New York Halla Tómasdóttir kom að máli við Björgu Ingadóttur fatahönnuð í byrjun júní í því skyni að fá Björgu til að hanna kjóla fyrir innsetningarathöfn sína. Svo fór að Björg hannaði tvo kjóla fyrir daginn, en Halla fann efnið í annan þeirra í New York. Lífið 2.8.2024 14:30
Hópsöngur og TikTok-dans á Bessastöðum Halla Tómasdóttir tók við embætti í gær sem sjöundi forseti lýðveldisins. Öllu var til tjaldað. Að lokinni athöfn í Dómkirkjunni og Alþingissalnum tók við eftirpartí í Smiðju, nýrri viðbyggingu Alþingis, áður en leiðin lá á Bessastaði þar sem sungið var um ferðalok og stiginn TikTok-dans. Lífið 2.8.2024 13:04
Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Skiptar skoðanir hafa verið um það hvað kalla eigi Björn Skúlason, eiginmann Höllu Tómasdóttur, sem er fyrsti eiginmaður forseta Íslands. Björn sjálfur segist hafa heyrt bestu tillöguna í gær frá frú Vigdísi forseta, sem stakk upp á að hann yrði kallaður forsetagæi. Innlent 2.8.2024 07:00
„Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða sem öðrum býðst og allt svoleiðis,“ sagði Halla Tómasdóttir er hún var aftur spurð út í bílakaup þeirra hjóna á dögunum. Hún segir málið dæmi um að stundum sé mikið rætt um eitthvað sem skiptir ekki meginmáli. Hjónin hafi lært af þessu mikilvæga lexíu. Innlent 1.8.2024 22:09
Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Halla Tómasdóttir segir að tilfinningin að mæta á Bessastaði sem húsráðandi sé hlý og góð, en hún hafi auðvitað svolítil fiðrildi í maganum. Hún kveðst vilja verða forseti sem leiðir fólk saman til samtals og samstarfs, og reynir að virkja kraftinn í þjóðinni til að finna hvert við ætlum að stefna. Innlent 1.8.2024 21:50
Kjóllinn sérsaumaður fyrir athöfnina Kjóll Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, sem hún klæddist á innsetningarathöfn hennar í dag, var sérsaumaður af Björgu Ingadóttur. Lífið 1.8.2024 18:15
„Mýkri leiðir í hörðum heimi“ „Ég stend hér í dag með hjartað fullt af þakklæti, fyrir það traust sem mér og okkur hjónum er sýnt. Þakklát foreldrum mínum, sem gáfu mér gott veganesti út í lífið. Og ég er þakklát kjarkmiklu konunum sem sýndu mér ungri að aldri að með hugrekki og samtakamætti getum við hreyft við samfélaginu, og leitt framfarir.“ Innlent 1.8.2024 17:48
Undurfagur flutningur fyrir nýjan forseta Sigríður Thorlacius flutti lögin Vikivaka og Vetrarsól við embættistöku Höllu Tómasdóttur, sem varð í dag sjöundi forseti lýðveldisins. Lífið 1.8.2024 17:24
Fólk á förnum vegi: Ein felldi tár og önnur mjög spennt fyrir Höllu Landsmenn sem fréttastofa ræddi við segja Guðna Th. Jóhannesson hafa staðið sig einkar vel í embætti undanfarin átta ár. Þá eru þau spennt fyrir verðandi forseta, Höllu Tómasdóttur. Innlent 1.8.2024 14:19
Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins Halla Tómasdóttir tók við embætti forseta Íslands við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu í dag. Dagskráin hófst með helgistund í Dómkirkjunni klukkan 15:30 en embættistakan var í beinu streymi á Vísi frá klukkan 15:00. Innlent 1.8.2024 14:16
Allt að verða klárt fyrir embættistöku sjöunda forseta lýðveldisins Halla Tómasdóttir verður sett í embætti sem sjöundi forseti Íslenska lýðveldisins í dag, önnur kvenna til að gegna embættinu. Í fyrsta sinn í lýðveldissögunni verða þrír fyrrverandi forsetar viðstaddir athöfnina. Innlent 1.8.2024 12:31
Hefði horft á lokakvöldið hefði Hera Björk komist áfram Fráfarandi forseti Íslands segist hafa tekið ígrunaða ákvörðun um að horfa ekki á fyrra undankvöld Eurovision í ár en gert Heru Björk Þórhallsdóttur keppanda Íslands grein fyrir því að hún ætti ekki að þurfa að gjalda fyrir að vera fulltrúi Íslands. Innlent 31.7.2024 22:30
Guðni lítillátur þegar hann sagði að allt myndi bjargast án hans Í dag fór fram síðasti ríkisráðsfundur Guðna Th. Jóhannessonar í embætti forseta Íslands. Forsætisráðherra segir skilaboð forsetans fráfarandi á fundinum þau að ríkisstjórnin komi til með að spjara sig án hans, lítillát skilaboð sem hann segir endurspegla karakter Guðna vel. Innlent 31.7.2024 21:34
Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Guðni Th. Jóhannesson fráfarandi forseti Íslands viðraði skoðanir sínar á umdeildum bílakaupum verðandi forseta í viðtali hans síðasta dag í embætti. Hann sagði háttsemi Brimborgar óforskammaða og spurði fréttamann hvort hún myndi kaupa bíl af svoleiðis fólki. Innlent 31.7.2024 19:30
Egill telur eitt og annað óljóst við bílatilboð Ástþórs Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar gerir athugasemdir við frétt Vísir og auglýsingu Ástþórs Magnússonar hjá Islandus Bílum og fyrrverandi forsetaframbjóðanda. Hann telur ýmislegt óljóst og að Ástþór sé ekki að bjóða upp á sambærilegan bíl og þann sem Halla Tómasdóttir fær. Innlent 31.7.2024 16:41
„Þetta gekk ágætlega, takk fyrir mig“ Guðni Th. Jóhannesson segir einstakt að hafa fylgt þjóðinni síðustu átta ár, og segir embættistíð sína hafa gengið ágætlega. Hann segist ekki hafa ætlað að verða forseti, en stjörnurnar hafi raðast upp á tiltekinn hátt og hann hafi staðið frammi fyrir því að geta orðið þjóðhöfðingi. Guðni lætur af embætti forseta Íslands á morgun. Innlent 31.7.2024 16:09
Von á rúmlega þrjú hundruð gestum við embættistöku Höllu Von er á rúmlega þrjú hundruð gestum við embættistöku forseta Íslands þegar Halla Tómasdóttir verður sett í embætti á morgun. Athöfnin verður með nokkuð hefðbundnu sniði, en þó með nokkrum undantekningum. Vegna öryggiskrafna Alþingis komast færri fyrir í þinghúsinu, og því munu sérstakir gestir Höllu fylgjast með úr nýbyggingu þinghússins, Smiðju. Innlent 31.7.2024 12:31
Ekki hrifin af breytingum og óskar Höllu velfarnaðar Eliza Reid segist ekki fagna miklum breytingum en þakkar fyrir árin sem forsetafrú og óskar Höllu Tómasdóttur, sem svarin verður í embætti forseta á morgun, og eiginmanni hennar Birni velfarnaðar. Innlent 31.7.2024 11:22
Svona verða hátíðarhöldin á fimmtudaginn Vikivaki verður sunginn í Dómkirkjunni, Vetrarsól í Alþingishúsinu og almenningur getur fylgst með af risaskjá á Austurvelli. Dagskráin fyrir innsetningarathöfn Höllu Tómasdóttur liggur fyrir. Innlent 30.7.2024 16:54
Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Framkvæmdastjóri hjá Brimborg segir gríðarlegan fjölda fyrirspurna hafa borist um bílinn sem forsetahjónin keyptu af umboðinu og afsláttinn sem þau fengu af verði hans. Fólk óski nú eftir forsetaafslætti. Fyrrum forseti nemendafélags hafi fengið slíkan afslátt. Innlent 29.7.2024 19:00
„Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“ Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi með meiru rekur Islandus Bíla og hann segir mottó sitt og sinna manna vera það að vera ávallt með ódýrustu bílana. Hann býður ódýrari Volvó, ódýrari en sem nemur því sem Halla Tómasdóttir þurfti að borga fyrir sinn, afslátt sem nemur tveimur milljónum. Innlent 29.7.2024 16:00