Íslensk tunga
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 17 ›
Vífilsstaðir: Press 1 for English Vífilsstaðir, Öldrunardeild H Landspítala, eru fjölþjóðlegt samfélag starfsmanna sem veita 42-45 rosknum Íslendingum aðhlynningu, sinna þeim á allan hátt, allan sólarhringinn, þörfum líkama og sálar. Obbinn af þessum vistmönnum er fólk sem fæddist fyrir 17. júní 1944, þótt lýðveldisbörnum fjölgi óðum í röðum þessara skjólstæðinga því „enginn stöðvar tímans þunga nið“. Skoðun 27.10.2022 11:01
„Það væri náttúrulega bara stórslys“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að það yrði menningarlegt stórslys ekki aðeins fyrir Íslendinga heldur veröldina alla ef íslensk tunga dæi út og enska væri tekin upp hér á landi. Katrín ræddi málefni íslenskunnar í Íslandi í dag, sem sjá má hér að ofan. Í innslaginu er að sönnu farið um víðan völl – líkt og fyrirsögnin ber með sér. Innlent 27.10.2022 08:56
Bein útsending: Erlendar konur á vinnumarkaði í brennidepli á Jafnréttisþingi Jafnréttisþing fer fram í Hörpu í dag. Samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna skal ráðherra boða til jafnréttisþings á tveggja ára fresti þar sem fjalla skal um jafnrétti kynjanna. Innlent 26.10.2022 08:46
Að gefa fágæta og forna gjöf sem nýtist alla daga ársins í öllum veðrum Þeir eru margir sem vilja búa á Íslandi, hér er oft rigning og rok en hér ríkir sæmilegur friður og hefur svo verið um langt skeið. Að taka myndarlega á móti fólki sem kemur til landsins til að vinna eða mennta sig ætti að vera okkur öllum mikið metnaðarmál. Skoðun 26.10.2022 08:31
Íslenska í ensku hagkerfi Umfangsmiklar breytingar hafa orðið á íslensku samfélagi á stuttum tíma. Breytingarnar koma í kjölfar þess að okkur hefur tekist að byggja upp öfluga atvinnugrein sem þjónustar fjölda ferðamanna sem sækja Ísland heim. Skoðun 21.10.2022 13:00
Bein útsending: Maður, manneskja, man eða menni? Eiríkur Rögnvaldsson flytur þriðja fyrirlestur hádegisraðar RIKK – Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands á haustmisseri 2022 en yfirskrift raðarinnar er sú sama og á vormisseri: Hinsegin Ísland í alþjóðlegu samhengi. Fyrirlestur Eiríks nefnist „Maður, manneskja, man eða menni?“ og mun hann fjalla um merkingu orðsins maður í sögulegu samhengi og vandkvæði á að nota það í kynhlutlausri merkingu. Innlent 19.10.2022 11:31
„Ótvírætt mesta ógn sem hefur stafað að sjálfstæði Íslands seinustu áratugi“ Ofurvald enskrar tungu og litlir hvatar fyrir nýja íbúa á Íslandi til að læra íslensku er ótvírætt mesta ógn sem stafað hefur að sjálfstæði landsins síðustu áratugi. Ný íslensk sjálfstæðisbarátta þurfi að hefjast á því að margfalda íslenskukennslu nýrra íbúa með aðstoð hins opinbera. Innlent 19.10.2022 09:58
Tungumálið er lykillinn að fullveldinu Stríð geisar í Evrópu og orkukreppa sem afleiðing þess. Víða um lönd hafa lýðskrumarar náð sterkri stöðu með því að höfða til fordóma hrædds fólks sem er ógnað. Þá getum við prísað okkur sæl sem búum á Íslandi þar sem engin pólitísk kreppa ríkir og ekki sömu blikur á lofti í orkumálum. Í bili virðist efnahagslegu og stjórnmálalegu sjálfstæði Íslands ekki ógnað. Skoðun 19.10.2022 09:00
Mikilvægt að huga að íslensku í auglýsingum Á árunum 1993 til 2005 hafa 35 mál verið tekin fyrir hjá neytendastofu vegna tungumáls í auglýsingum sem beint er til íslenskra neytenda. Samkvæmt lögum skulu þesskonar auglýsingar vera á íslensku. Eitt slíkt mál er nú til skoðunar hjá neytendastofu en aðeins hafa átta mál verið tekin fyrir síðan 2005. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra segir beitingu laga mikilvæga í þessum efnum. Neytendur 16.10.2022 14:23
Til varnar tungunni Frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti lýðveldisins sagði gjarnan að íslensk tunga gerði okkur að þjóð. Ég gæti ekki verið meira sammála. En móðurmálið á undir högg að sækja. Íslenska er að sönnu örmál og við þurfum því að kosta kapps um að vernda hana og styrkja. Skoðun 16.10.2022 13:01
„Gerðu ljósið í eldhúsinu rautt”: Tæknin komin mun lengra en fólk heldur Fjallað var um meiriháttar framfarir á sviði íslenskrar máltækni í Íslandi í dag, þar sem tekið var hús á fyrirtækinu Miðeind. Þar er nú hægt að biðja snjalltæki um að slökkva og kveikja ljós, skipta um lag í hátölurum og einnig má leiðrétta ófullkominn texta sjálfvirkt með miklum árangri. Allt á íslensku. Innlent 14.10.2022 07:33
Viltu segja nafnið á eldfjallinu sem gaus 2010? Þessari spurningu er ég oft beðin að svara í starfi mínu sem landvörður. Og ýmsum fleiri spurningum sem snúa að framburði íslenskunnar, orðum í málinu og nafnavenjum svo eitthvað sé nefnt. Skoðun 12.10.2022 12:00
Aftur byrjuð að ávarpa farþega fyrst á íslensku Flugliðar í áhöfn flugvéla Icelandair eru aftur farnir að ávarpa farþega fyrst á íslensku og að því loknu á ensku við flugtak og lendingu. Með þessu er horfið aftur til þess sem áður var, en fyrir nokkrum árum var fyrirkomulaginu breytt og farþegar fyrst ávarpaðir á ensku. Innlent 10.10.2022 06:31
Tvítyngi? Væri ekki nær að tala um fjöltyngi eða þvoglutyngi? Í nútímasamfélagi gusast yfir okkur ný orð sem við eigum oft fullt í fangi með að meðtaka. Eintyngi, tvítyngi, fjöltyngi eru dæmi um slíkt. Hvað þýðir t.d. að vera tvítyngdur? Það þýðir að eiga foreldra/uppalendur sem eru með sitthvort móðurmálið t.d. dönsku og íslensku. En hvað þýðir þá að vera fjöltyngdur? Það hlýtur þá að þýða að einstaklingurinn elst upp við fleiri en tvö tungumál. Skoðun 3.10.2022 12:01
Þurfa að kunna íslensku til að komast í hestafræði á Hólum Um fjörutíu prósent nemenda sem komast að í hestafræði við Háskólann á Hólum eru útlendingar, og það þrátt fyrir að það sé inntökuskilyrði að geta talað íslensku. Rektor segir skólann útskrifa að minnsta kosti tíu sendiherra á hverju vori. Innlent 1.10.2022 22:11
Haukfránn og Trippa-Jón Ein af mínum bernskuminningum er þátturinn Spítalalíf sem gerðist í Kóreustríðinu og lýsti á gamansaman hátt vinnu lækna við erfiðar aðstæður. Helstu söguhetjurnar voru kallaðar Haukfránn, Trippa-Jón, Kossvör og Bruni læknir og hægt er að skoða gömul dagblöð þar sem blaðamenn skemmta sér vel yfir þessum íslensku nöfnum. Einstaka maður var brúnaþungur og fannst þau hallærisleg, benti á að þátturinn héti MASH og erlendu nöfnin væru allt önnur. Skoðun 28.9.2022 10:02
Íslenskukennsla á vinnutíma – er allra hagur Umræðan um erlent vinnuafl og íslenskunám rís hátt um þessar mundir og er það vel, enda er um mikilvægt málefni að ræða sem hefði gjarnan mátt taka meira pláss íslensku samfélagi hingað til. Íslenskunám á vinnustað á vinnutíma er nokkuð sem ég get mælt með fullum fetum, eftir að hafa reynt slíkt fyrirkomulag í Hannesarholti. Skoðun 28.9.2022 08:01
Íslenska stoltið Við tökum íslenskri tungu sem sjálfsögðum hlut. Hún er þarna og hefur alltaf verið þarna og við teljum mörg að hún verði alltaf til staðar. En tungumálið er lifandi fyrirbæri sem þroskast og þróast með tímanum. Því meira sem íslenska er notuð því meira lifandi er hún og þar af leiðandi hraustari. Skoðun 20.9.2022 15:01
Hrella starfsfólk matvöruverslana með fáránlegum spurningum Fjallað var um útgáfu okkar tíma af hinni klassísku földu myndavél í Íslandi í dag á miðvikudag. Þar voru sýnd brot af TikTok-aðgangi íslenskra ungmenna, sem leggja það í vana sinn áhorfendum sínum til gamans að hrella starfsfólk matvöruverslana með óraunhæfum spurningum um staðsetningu ákveðinna vöruflokka. Lífið 19.9.2022 10:27
Sláandi munur á færni leikskólabarna Börn af annarri kynslóð innflytjenda ná mun verri tökum á íslensku en áður var talið. Þetta sýnir ný rannsókn á vegum Háskóla Íslands en vísindamennirnir segja stöðuna grafalvarlega og kalla eftir íslenskukennslu í leikskólum. Innlent 17.9.2022 20:01
Þjóðtunga á köldum klaka „Að búa á Íslandi án þess að tala íslensku er meistaranám í höfnun, bæði félagslega og á atvinnumarkaðnum, með enga prófgráðu í sjónmáli” segir Michelle Spinei í áhugaverðri grein sem hún birti nýlega á visir.is. Þar lýsir hún af eigin raun þrautagöngu einstaklings af erlendum uppruna við að ná tökum á íslensku máli. Það lærdómsferðalag var „hlykkjóttur og grýttur malarvegur fullur af slæmum fallbeygingum”, eins og hún orðar það. Skoðun 16.9.2022 12:00
Íslenska er aðgengismál! Hér er Fjallkona Ísafjarðar að borða banana. Ég er fyrst og fremst mjög þakklát fyrir þann heiður að hafa fengið að vera fjallkona bæjarins í ár, en núna vil ég nota tækifærið og þessa óvenjulegu mynd til að taka þátt í heitu umræðunni um íslensku tunguna og útlendinga. Skoðun 15.9.2022 08:31
Íslenskukennsla fyrir erlent starfsfólk Ég hef alllengi verið búsettur í Þýskalandi og á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar kom fjöldi svokallaðra „Gastarbeiter“ frá Tyrklandi til að vinna láglaunavinnu í Þýskalandi. Skoðun 15.9.2022 07:30
Forsetinn telur bagalegt að Siri skilji ekki íslensku Forseti Íslands gerði stöðu íslenskunnar og fortíðarþrá meðal annars að umtalsefni þegar hann setti Alþingi í dag. Tryggja þyrfti stöðu tungumálsins í stafrænum heimi og sýna þeim sem hingað flyttu og vildu læra íslensku umburðarlyndi. Innlent 13.9.2022 19:20
Ég tala ekki gótt Íslensku Já, ég veit. Það á að segja „ég tala ekki góða íslensku”. Málið er ekki að mig langi til að skrumskæla þetta fallega tungumál í hvert skipti sem ég opna munninn, málið er bara það að ég er að læra (og ég er einnig að eldast þannig að heilinn minn er ekki nærri því jafn skarpur og hann var áður fyrr). Skoðun 13.9.2022 08:30
Íslenskukennsla og kjarasamningar Smágrein sem ég skrifaði hér á föstudaginn hefur valdið meira uppþoti en ég hafði ímyndað mér, allt út af einni málsgrein: „Þess vegna væri upplagt að verkalýðshreyfingin gerði þá kröfu í væntanlegum samningum að erlendu starfsfólki yrði gefinn kostur á vandaðri íslenskukennslu í vinnutíma.“ Skoðun 12.9.2022 15:01
Konur af erlendum uppruna gagnrýna ummæli Sólveigar Önnu harðlega Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að þau gagnrýni harðlega þau ummæli sem formaður Eflingar lét falla í viðtali við Ríkisútvarpið í dag. Samtökin segja ummælin skaðleg áratugalangri baráttu þeirra sem hafa flutt hingað til Íslands um að fá aukinn aðgang að vönduðum íslenskunámskeiðum af hendi atvinnurekenda. Innlent 11.9.2022 21:13
Segir orð Sólveigar Önnu sýna hroka Formaður Bandalags háskólamanna segir fráleitt að afskrifa þá kröfu í kjarasamningum að erlendu starfsfólki verði gefinn kostur á að læra íslensku á vinnutíma. Hann segir að orð Sólveigar Önnu sýna hroka, enda sé íslenskukennsla öllum í hag. Honum detti ekki til hugar að afskrifa slíkar hugmyndir þá þegar. Innlent 11.9.2022 17:24
„Alls ekki verið nóg gert“ Forsætisráðherra segir alls ekki hafa verið gert nóg í að styðja við íslenskukennslu fyrir útlendinga hér á landi. Stjórnvöld og atvinnulíf geti gert betur og fólk eigi að geta sótt íslenskunám á vinnutíma án hás kostnaðar. Prófessor emeritus vill að íslenskukennsla verði sett í kjarasamninga. Innlent 10.9.2022 21:28
Ferðamennirnir kjósa íslenskuna en Íslendingar frekar skoðanalausir Erlendir ferðamenn virðast upp til hópa kjósa að íslenskir veitingastaðir, skemmtistaðir og verslanir heiti íslenskum nöfnum. Landsmenn virðast ekki hafa jafnsterkar skoðanir á málunum. Innlent 10.9.2022 09:01