Fréttir
288 289 290 291 292 293 294 295 296 … 334 ›
Pólóníum finnst í konu Litvinenkos Leifar af geislavirka efninu pólóníum 210 hafa fundist í Marinu Litvinenko, eiginkonu Alexanders Litvinenko, fyrrverandi KGB-njósnara sem lést úr eitrun í síðustu viku. Erlent 2.12.2006 10:00
Eldsupptök í svefnherbergi Eldur kviknaði í íbúð á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi í nótt. Eldurinn kom upp í svefnherbergi íbúðarinnar og náði sá sem þar býr að koma sér út. Vel gekk að slökkva eldinn. Eldsupptök eru ókunn. Innlent 2.12.2006 09:48
3.091 heimsforeldri á Íslandi Á meðan útsendingu stóð skráðu 3.901 manns sig sem heimsforeldri en um það snerist dagur Rauða nefsins. Er fjöldi heimsforeldra á Íslandi þá kominn í 11.601 úr 7650 en takmarkið var að ná 10.000 manns. Innlent 1.12.2006 23:40
Royal misstígur sig í Mið-Austurlöndum Frambjóðandi Sósíalista í forsetakosningunum á næsta ári, Segolene Royal, reyndi í dag að draga úr yfirlýsingu sinni að hún væri sammála Hizbolla liðum um að utanríkisstefna Bandaríkjamanna væri "geðveikisleg". Hún er nú á ferðalagi um Mið-Austurlönd til þess að reyna að sýna fram á að hún geti staðið sig vel í utanríkismálum. Innlent 1.12.2006 23:34
Bandaríkin reyna að stilla til friðar í Sómalíu Bandaríkin hafa beðið öryggisráð Sameinuðu þjóðanna um að styrkja stjórnina í Sómalíu með herliði frá Afríkubandalaginu sem myndi ekki innihalda hermenn frá nágrannaríkjum eins og Eþíópíu. Tillaga sem Bandaríkjamenn hafa gert leggur líka til að slakað verði á vopnasölubanninu sem Sómalía býr við svo að friðargæsluliðar geti komið með vopn til landsins og styrkt her þess. Erlent 1.12.2006 23:31
3.067 nýjir heimsforeldrar Klukkan 22:45 í kvöld voru 3.607 manns búin að skrá sig sem heimsforeldri en um það snýst dagur Rauða nefsins. Er fjöldi heimsforeldra á Íslandi þá kominn í 11.257 úr 7650. Fólk er enn hvatt til þess að skrá sig en síminn er 562-6262 og er líka hægt að skrá sig á netinu á slóðinni www.rauttnef.is og stendur söfnunin til miðnættis. Innlent 1.12.2006 22:53
Röntgentæki á flugvöllum framtíðarinnar Alþjóðlegi flugvöllurinn í Phoenix í Arizona í Bandaríkjunum mun nú taka upp gegnumlýsingartæki sem nota á á farþega. Grunsamlegir farþegar verða þá beðnir um að standa fyrir framan það á meðan mynd er tekin af þeim og sést þá allt sem undir fötum manns er. Erlent 1.12.2006 22:44
Ammóníakleki í Hafnarfirði Klukkan 17:13 í dag fékk slökkvilið Reykjavíkur tilkynningu um að 50 lítrar af ammóníum hefðu lekið úr frystitæki í fiskvinnslufyrirtæki í Hafnarfirði. Starfsmenn tóku eftir þess og létu vita og fóru síðan menn frá slökkviliðinu í eiturefnabúningum og lokuðu fyrir lekann. Engin hætta var á ferðum og engin slys urðu á fólki. Innlent 1.12.2006 22:15
Smokkur sem er spreyjað á Þýskir kynfræðslukennarar áætla að þróa smokk sem verður spreyjað á kynfæri karlmanna og á hann að passa á allar stærðir þeirra. Jan Vinzenz Krause frá þýsku Smokkastofnununni, sem er ráðgefandi aðili um notkun smokka, sagði að varan ætti að hjálpa fólki að lifa einfaldara og öruggara kynlífi. Erlent 1.12.2006 22:00
Calderon orðinn forseti Mexíkó Felipe Calderon var vígður í embætti sem forseti Mexíkó í dag. Athöfnin fór fram í þinghúsinu en stjórnarandstöðuþingmenn höfðu tekið sér stöðu í húsinu nokkrum dögum áður og klukkutíma fyrir athöfnina tóku þeir völdin og lokuðu hurðinni inn í þingsalinn. Calderon fór þá inn bakdyramegin ásamt fráfarandi forseta og var vígður á fáeinum mínútum og hljóp síðan aftur út. Erlent 1.12.2006 21:46
687 nýjir heimsforeldrar Klukkan 21:20 í kvöld voru 687 manns búin að skrá sig sem heimsforeldri en um það snýst dagur Rauða nefsins. Er fjöldi heimsforeldra á Íslandi þá kominn í 8337 úr 7650 en takmarkið er að ná 10.000 manns. Fólk er hvatt til þess að skrá sig en síminn er 562-6262 og er líka hægt að skrá sig á netinu á slóðinni www.rauttnef.is og stendur söfnunin til miðnættis. Innlent 1.12.2006 21:26
Lögreglumenn handteknir á Spáni Yfirvöld á Spáni hafa handtekið sjö manns, þarf af fjóra lögregluþjóna, í úthverfi Madrídar vegna gruns um að þeir hafi tekið þátt í sölu á sprengiefnum eins og þeim sem notuð voru í sprengjuárásinni á lestarkerfi Spánverja í mars 2004. Mennirnir eru einnig grunaðir um að selja eiturlyf. Erlent 1.12.2006 20:54
Scaramella ekki í lífshættu Mario Scaramella, ítalski öryggissérfræðingurinn sem fundaði með Alexander Litvinenko daginn sem hann veiktist, fékk mun minni skammt af geislavirka efninu pólóníum í sig en Litvinenko og hefur efnið engin áhrif haft á heilsu Scaramella. Sjúkrahús í Lundúnum þar sem Scaramella var prófaður sagði þetta í tilkynningu nú fyrir skömmu. Erlent 1.12.2006 20:49
South Park er heimspekilegur þáttur? Nýlega var gefin út heimspekibók sem fjallar um South Park sjónvarpsþættina. Hún er hins vegar ekki að gera lítið úr þáttunum heldur fjallar bókin um að South Park þættirnir séu í raun og veru mjög í ætt við heimspeki kunnra fræðimanna eins og John Stuart Mills, sem skrifaði Frelsið, og Sókratesar. Erlent 1.12.2006 20:37
Evrópusambandið og Rússar ræðast við Búist er við því að stórveldafundur verði í næstu viku þar sem rætt verður um hvernig þær refsiaðgerðir sem á að setja á Íran verði en þetta sögðu utanríkisráðherrar Rússlands og Evrópusambandsins, Sergey Lavrov og Javier Solana, í dag. Rússar hafa gefið til kynna að þeir séu því fylgjandi að settar verði þvinganir á Íran til þess að koma í veg fyrir að þeir þrói kjarnavopn. Erlent 1.12.2006 20:27
Pólóníum í ættingja Litvinenkos Leifar af geislavirka efninu pólóníum hafa fundist í kvenkyns ættingja Alexander Litvinenko, hinum fyrrverandi rússneska njósnara, sem var myrtur í síðasta mánuði. Hún er þó ekki talin vera í bráðri hættu þar sem magnið sem í henni fannst var það lítið og var hún ekki lögð inn á sjúkrahús. Erlent 1.12.2006 20:16
SÞ að sjá um kosningar í Nepal Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna brást fljótt við hjálparbeiðni frá stjórnvöldum og uppreisnarmönnum í Nepal um að samtökin myndu taka að sér að sjá um væntanlegar kosningar þar í landi sem og umsjón með herjum og vopnum beggja aðila. Erlent 1.12.2006 19:55
Rússar og Aserar deila Forseti Asera, Ilham Aliyev, sagði í dag að Aserbaídsjan myndi draga mikið úr olíuflutningum sínum í gegnum rússneskt landsvæði vegna þess að Rússar ætla sér að minnka það gas sem Aserbaídsjan fær frá þeim. Tilkynningin frá Rússum kom stuttu eftir að Aserar ákváðu að auka gasframleiðslu sína til þess að mæta aukinni gasþörf í Georgíu eftir að Rússar minnkuðu sendingar sínar þangað. Erlent 1.12.2006 19:36
Verðlaunin fólgin í brosi barnanna Njörður P. Njarðvík hefur lyft grettistaki til hjálpar munaðarlausum börnum í Afríku. Þetta sagði Kári Stefánsson við hátíðlega athöfn í Iðnó í dag þegar hann afhenti barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna í annað sinn. Heiðursverðlaunin hlýtur Njörður fyrir ómetanlegt starf í þágu munaðarlausra barna í Togo í Afríku, en þar hefur hann unnið að uppbyggingu barnaþorps og byggingu skóla. Innlent 1.12.2006 19:15
Á fimmta hundrað manns taldir af Óttast er að yfir 400 manns hafi farist þegar fellibylurinn Durian gekk yfir Filippseyjar í gær. Við rætur eldfjallsins Mayon lentu heilu þorpin undir miklum aur- og grjótskriðum. Erlent 1.12.2006 19:01
Hækkun áfengisgjalds yfirgengileg Ísland og Noregur eru með hæstu áfengisgjöld í veröldinni, en ef frumvarp fjármálaráðherra um tæplega 60% hækkun áfengisgjalds gengur í gegn mun Ísland tróna eitt á toppnum. Hækkunin er yfirgengileg aðgerð að mati framkvæmdastjóra Félags íslenskra stórkaupmanna, og hefði í för með sér að minnsta kosti þriggja milljarða tekjuaukningu fyrir ríkissjóð. Innlent 1.12.2006 19:07
Hundruð þúsunda mótmæltu Staða líbönsku ríkisstjórnarinnar veiktist enn frekar í dag þegar hundruð þúsunda stuðningsmanna Hizbollah-samtakanna fylktu liði í Beirút og kröfðust afsagnar hennar. Fólkið ætlar ekki að láta af mótmælum fyrr en stjórnin er öll. Erlent 1.12.2006 18:59
Tómlegt í Háskóla Íslands í tilefni fullveldisdags Í dag er fullveldisdagur Íslendinga en nú eru 88 ár frá því við urðum fullvalda þjóð. Það má spyrja sig hversu djúpt þjóðerniskenndin ristir, því í dag mættu innan við þrjátíu manns á málþing Stúdentaráðs Háskóla Íslands í hátíðarsal skólans í tilefni af fullveldisdeginum. Forseti Íslands lét ekki sitt eftir liggja, en það er ljóst að hin íslenska fornaldarfrægð hefur líklega fallið í skuggann af öðrum viðburðum á þessum degi, eins og alþjóða alnæmisdeginum og degi rauða nefsins. Innlent 1.12.2006 18:54
Meirihluti sprakk í Árborg Slitnað hefur upp úr meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í sveitarfélaginu Árborg. Báðir aðilar segja að trúnaðarbrestur hafi verið viðvarandi frá kosningunum í vor. Meðal annars steytti á kröfu framsóknarmanna um að hækka laun bæjarfulltrúa. Innlent 1.12.2006 18:54
Glæpamenn vegna heilagalla Líffræðilegur galli í blóðflæði í heilanum, frekar en andlegt ástand, gæti útskýrt af hverju sumt fólk verður glæpasjúkt. Vísindamenn frá Kings College í London fylgdust með viðbrögðum sex síbrotamanna, sem höfðu framið morð, nauðganir og alvarlegar líkamsárásir, á meðan þeim voru sýndar myndir af hræddum andlitum. Erlent 1.12.2006 18:50
Ólund í Frjálslyndum Margrét Sverrisdóttir fullyrðir að gagnrýni hennar á rasísk ummæli Jóns Magnússonar hafi ráðið því að hún var rekin úr starfi framkvæmdastjóra þingflokks Frjálslynda flokksins í gærkvöld. Þessu vísar Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins á bug. Bæði vísa frá sér spurningum um klofning í flokknum. Innlent 1.12.2006 18:48
Þrjátíu gefa kost á sér Þrjátíu manns eru í framboði í forvali Vinstri grænna í þremur kjördæmum höfuðborgarsvæðisins sem fram fer á morgun. Fyrstu tölur verða birtar upp úr klukkan tíu annað kvöld. Innlent 1.12.2006 18:35
Norðmenn að veiða 1.052 hvali á næsta ári Norskir hvalveiðimenn fengu í dag leyfi til þess að veiða allt að 1.052 hvali á næsta ári sem er mesti kvóti undanfarna tvo áratugi. Greenpeace fordæmdi veiðarnar og sögðu kvótann tilgangslausann þar sem aðeins hefðu veiðst um 546 hrefnur á þessu ári. Erlent 1.12.2006 17:54
Bush hittir leiðtoga síta í Írak George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, mun á mánudaginn halda fund með einum helsta leiðtoga síta múslima í Írak, Abdul Aziz al-Hakim. Munu viðræðurnar fara fram í Hvíta húsinu í Washington. Mikil spenna og átök hafa verið undanfarið á milli súnní og síta múslima í Írak og er þetta liður í átaki Bush varðandi ástandið í Írak. Erlent 1.12.2006 17:32
Hundruð þúsunda mótmæla í Líbanon Hundruð þúsunda Líbana fóru út á götur Beirút í dag til að mótmæla sitjandi ríkisstjórn Fúad Siniora, sem nýtur stuðnings Bandaríkjamanna og kröfðust afsagnar hans. Erlent 1.12.2006 17:14