

Fréttir af starfsemi veitingastaða á Íslandi.
Uppselt er í sumar og vel fram á haustið í mat í Friðheimum í Bláskógabyggð vegna mikillar aðsóknar ferðamanna á staðinn. Vínstofan er nýr veitingastaður á Friðheimum þar sem þyngsti bar landsins er en hann er úr tíu tonnum af grjóti.
Sigvaldi Jóhannesson, betur þekktur sem Silli, gerði sér lítið fyrir og átti besta götubitann á Götubitahátíðinni fjórða árið í röð. Hann segist ætla sér stóra hluti á evrópsku götubitahátíðinni í ár en ætlar að leggja spaðann á hilluna að því loknu.
Götubitahátíðin fer fram í fjórða sinn nú um helgina. Skipuleggjandi hátíðarinnar segir alla geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Matur sem átti að duga alla helgina kláraðist í gær og þurftu starfsmenn vagnanna að eyða nóttinni í að undirbúa meiri mat.
Bjórglösin á mörgum börum miðbæjarins hafa minnkað. Stór bjór, sem áður var í fimm hundruð millilítra glösum, er nú kominn í fjögur hundruð millilítra glös. Um er að ræða tuttugu prósent minnkun bjórglasa. Neytendur, sérstaklega þeir í yngri kantinum, eru ósáttir við þessa þróun enda hefur bjórverðið hækkað töluvert á sama tíma.
Talið er að umfangsmikil hópsýking sem upp kom hjá starfsfólki og gestum á veitingastað Hamborgarafabrikkunnar í Kringlunni hafi verið af völdum nóróveiru. Þetta er niðurstaða embættis sóttvarnalæknis en nokkuð hefur verið á reiki hvort um nóróveirusýkingu hafi verið að ræða eða bakteríu sem veldur líkum einkennum og hefur greinst í álíka hópsýkingum.
Gestir Hamborgarafabrikkunnar greindust sannarlega með nóróveiru. Frá þessu greinir Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir í samtali við mbl.is en áður var talið að um bakteríusýkingu hefði verið að ræða.
Líkur eru á að hópsmit á Hamborgarafabrikkunni hafi ekki verið af völdum nóróveiru heldur annarrar þekktar bakteríu, sem áður hefur valdið hópsmiti á veitingastöðum.
Rekstraraðilar Hamborgarafabrikkunnar hafa ákveðið að loka veitingastað sínum á Höfðatorgi í dag og grípa til sóttvarnarráðstafana vegna mögulegrar nóróveirusýkingar á staðnum. Þetta staðfestir framkvæmdastjóri Fabrikkunnar í samtali við Vísi.
Hamborgarafabrikkan í Kringlunni opnaði aftur í gær eftir að hafa lokað um stund eftir að hátt í hundrað tilkynningar bárust heilbrigðiseftirliti vegna mögulegrar nóróveirusmita. Framkvæmdastjóri segir sólahringsvinnu hafa falist í því að sótthreinsa staðinn og henda matvælum. Heilbrigðiseftirlitið segir rannsókn á uppruna veikindanna enn standa yfir.
Hátt í hundrað tilkynningar hafa borist heilbrigðiseftirliti vegna mögulegra nóróveirusmita. Líkur eru á óvenju stóru hópsmiti á veitingastöðum Hamborgarafabrikkunnar.
Síðasti sjens til að fá sér kaffi, snúð og pizzu á Álftaneskaffi er á morgun. Skúli Guðbjarnarson hefur rekið veitinga- og kaffihúsið ásamt eiginkonu sinni Sigrúnu Jóhannsdóttur, síðustu átta árin. Þau ætla nú að skella í lás og taka sér frí í ár til að undirbúa næstu verkefni.
Veitingastaðnum Álftaneskaffi verður lokað í hinsta sinn á föstudag eftir átta ára starfsemi. Sigrún Jóhannsdóttir, annar eigenda staðarins, segir tímabært að hjónin hætti rekstrinum og að eitthvað nýtt og spennandi muni taka við á nesinu.
Hamborgarafabrikkan kannar hvers vegna veitingahúsagestir í Kringlunni urðu veikir eftir að hafa snætt á veitingastaðnum um helgina. Framkvæmdastjórinn segir allar slíkar ábendingar teknar alvarlega. Staðnum hefur verið lokað í dag á meðan unnið er að sótthreinsun og sósur sendar í greiningu. Ekki sé rétt að lirfa hafi fundist í hamborgara staðarins.
Málskotsbeiðni eiganda skemmtistaðarins The English Pub í máli gegn íslenska ríkinu hefur verið hafnað. Landsréttur úrskurðaði að djammbannið hafi verið löglegt.
Domino's á Íslandi hefur samið við hið nýstofnaða hugbúnaðarfyrirtæki Apparatus um þróun og rekstur apps Domino's. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Þau Randy Santel og Katina Dejarnett eru þessa stundina stödd á Íslandi en þau eru bæði atvinnumenn í kappáti. Í dag tóku þau mataráskorun á Gastrotruck í Mathöll Granda en á þriðjudaginn er stefnan sett á hamborgarastaðinn 2 Guys.
Íbúum Hlíðahverfis brá í brún við að sjá nýjan verðlista hverfisbarsins. Nú kostar bjórinn þar hvorki meira né minna en tvö þúsund og fimmhundruð krónur. Tvö þúsund á tilboði frá klukkan fimm til níu, þá er sælustund (e. happy hour).
Hún er rétt rúmlega fimmtug og hefur nú þegar afrekað ótrúlega margt. Byrjaði með manninum sínum aðeins 16 ára, menntaði sig sem leikskólakennari og elskaði það starf, en rak hinn geysivinsæla veitingastað Friðrik V um árabil með eiginmanninum.
Guðrún Kristmundsdóttir, eigandi Bæjarins beztu, segist sjálf bíða í röð eftir pylsu. Það hafi hins vegar Kardashian-systurnar ekki gert á sínum tíma. Hún segir vinsældir Bæjarins beztu vera miklar, það stafi af vinnu sem farið var í fyrir mörgum árum síðan.
Veru mathöll, sem rekin hefur verið í Grósku í Vatnsmýri í Reykjavík, verður lokað á laugardaginn 1. júlí.
Karlmaður hljóp særður inn á Pósthús Mathöll við Pósthússtræti í miðbæ Reykjavíkur í kvöld. Rekstrarstjóri mathallarinnar segir hann hafa verið með stungusár. Starfsfólk hafi byrjað að hlúa að honum eftir að hann kom í andyrið. Fljótlega eftir það hafi viðbragðsaðilar verið mættir á svæðið.
Besti veitingastaður í heimi er í Perú. Þetta var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Valencia á Spáni í vikunni. Þetta er í 21. sinn sem besti veitingastaður heims er tilnefndur og í fyrsta sinn sem veitingastaður í Suður-Ameríku hlýtur nafnbótina.
Ólafur Grétar Laufdal Jónsson veitingamaður lést í gær 78 ára að aldri. Þetta staðfestir fjölskylda Ólafs.
Meirihluti veitingastaða í Veru mathöll í Grósku er nú lokaður. Stefnt er að því að nýir komi þeirra í stað. Framkvæmdastjóri Grósku segir þar breytinga og endurskipulagningu að vænta, mathöllin muni vera áfram á sínum stað í húsinu.
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gær um fjóra svartklædda menn með grímur sem fóru að skemmtistað í miðborginni og brutu þar fimm rúður.
Veitingastaðurinn Jómfrúin hefur opnað dyr sínar á Keflavíkurflugvelli. Jakob Einar Jakobsson, eigandi Jómfrúarinnar, segir markmiðið vera að fanga sömu stemningu og ríkt hefur á Lækjargötunni í áratugi.
„Markmið okkar er að endurvekja stemninguna sem var áður á B5, sjarmann og glamúrinn sem einkenndi staðinn, sem á sínum tíma var besti næturklúbbur borgarinnar,“ segir Vesta Mikute unnusta viðskiptamannsins Sverris Einars Eiríkssonar. Saman reka þau nú skemmtistaðinn Bankastræti Club.
Veitingastaðirnir Dill og Óx fá að halda sínum Michelin-stjörnum og á verðlaunahátíð Michelin í Finnlandi í gærkvöldi fékk veitingastaðurinn Moss í Bláa lóninu stjörnuna eftirsóttu í fyrsta sinn.
Öllum 27 veitingastöðum alþjóðlegu pitsukeðjunnar Domino's í Danmörku hefur verið lokað.
Sverrir Einar Eiríksson, sem um þessar mundir er helst kenndur við Nýju vínbúðina, er nýr eigandi skemmtistaðarins Bankastræti club. Birgitta Líf Björnsdóttir er ekki lengur í eigendahópi staðarins.