Viðskipti innlent

Kaupin sam­þykkt með skil­yrði

Árni Sæberg skrifar
María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása.
María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása. Ásar

Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Ása, áður Símans, á Öryggismiðstöð Íslands og Opnum kerfum. Samþykkið er þó háð því skilyrði að Öryggismiðstöðin bjóði ekki betri kjör á öryggisþjónustu ef kaupandi er í fjarskiptaviðskiptum við Símann.

Í tilkynningu Ása til Kauphallar segir að kaupin séu mikilvægur liður í vaxtarstefnu Ása og styrki áframhaldandi uppbyggingu samstæðunnar. Að viðskiptunum loknum sé áætlað að tekjur samstæðunnar verði allt að 50 milljarðar króna og EBITDA hátt í 10 milljarðar króna á ársgrundvelli þegar samlegðaráhrif eru að fullu komin fram.

Skilyrt samþykki

Samþykki Samkeppniseftirlitsins sé veitt á grundvelli sáttar sem Ásar og Samkeppniseftirlitið hafi undirritað og feli í sér skilyrði. Markmið þess sé að efla og vernda virka samkeppni á mörkuðum og bregðast við mögulegri röskun á samkeppni.

Í skilyrðinu felist að óheimilt verði að gera sérstök kjör til heimila á vaktaðri öryggisþjónustu háð því að viðkomandi heimili sé jafnframt í viðskiptum við félögin um talsímaþjónustu eða internetþjónustu um fastlínu. Félögunum verði þó ávallt heimilt að mæta samkeppni frá samkeppnisaðilum sem bjóða slík kjör.

Skilyrðið falli niður að fimm árum liðnum en geti fallið niður fyrr ef hlutfall internettenginga Símans ehf. fari niður fyrir skilgreind viðmið.

Enn fremur lýsi Ásar því yfir að ekki séu til staðar áform um að breyta því fyrirkomulagi að félögin séu rekin sem dótturfélög, í samræmi við yfirlýsta stefnu samstæðunnar, án þess að skilyrði þess efnis sé sett. Þá sé því lýst yfir að markmið kaupanna sé ekki að bjóða umfangsmiklar heildarlausnir þannig að útilokandi áhrif myndist á fyrirtækjamarkaði, og að félögin hafi við undirritun sáttarinnar engin áform um að bjóða blandaða vöndlun með vaktaðri öryggisþjónustu innifalinni sem sé til þess fallin að hafa útilokunaráhrif í för með sér á fyrirtækjamarkaði.

Tæplega fjórtán milljarða virði

Gert sé ráð fyrir að framkvæmd viðskiptanna eigi sér stað á næstu vikum í samræmi við kaupsamninga aðila. Samanlagt heildarvirði OK og ÖMÍ í viðskiptunum nemi 13.750 milljónum króna að viðbættum leiguskuldbindingum, sem séu áætlaðar um 1.000 milljónir króna. Endanlegt kaupverð til greiðslu ráðist þó meðal annars af stöðu nettó vaxtaberandi skulda og veltufjármuna á viðmiðunardegi uppgjörs. 

Kaupin verði fjármögnuð með hlutafé í Ásum, lánsfé og handbæru fé. Miðað sé við að um 6.025 milljónir króna verði greiddar með afhendingu á um það bil 390 milljónum hluta. Endanlegur fjöldi hluta muni þó ráðast af kaupverði eftir leiðréttingu vegna veltufjármuna og skulda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×