
Líkamsmeðferðirnar sem stjörnurnar stunda á alvöru Singles Day tilboðum
Singles DAY er tekinn með trompi í ár hjá The House of Beauty
Allt það nýjasta úr heimi tískunnar og fréttir af sviði hönnunar.
Singles DAY er tekinn með trompi í ár hjá The House of Beauty
Á næstu dögum opnar Kringlan nýtt og glæsilegt svæði á 3ju hæð. Paolo Gianfrancesco frá THG Arkitektum bauð Arnari Gauta í heimsókn og útskýrði metnaðarfullar gjör breytingar á hæðinni sem hefur verið gríðarleg áskorun fyrir arkitekta og verkfræðinga.
Íslandsdeild Amnesty International selur sokka eftir íslenska hönnuði til styrktar mannréttindastarfsins. Á hverju ári er ný hönnun kynnt fyrir jólin.
Litadýrð, glans og glimmer einkenna nýja línu Hildar Yeoman, Hidden People, sem frumsýnd er þessa dagana á Airwaves. Hátíðarhöld hófust í verslun Yeoman á Laugarveginum í gær þegar tónlistarkonan JFDR spilaði fyrir gesti.
Parið Karlotta Halldórsdóttir og Skúli Bragi Geirdal fékk hugmynd um að opna hönnunarstúdíó þar sem þau sátu í eldhúsinu heima hjá sér einn daginn. Þeirra fyrsta verkefni er punktaleturs-veggplaköt í samstarfi við Blindrarfélag Íslands en hluti af ágóðanum fer til félagsins.
Það var mikil stemmning í opnunarpartýi Kölska þegar ný og glæsileg herrafataverslun opnaði í Síðumúla 31 um helgina. Kölski sérhæfir sig í fínni herrafatnaði og þá aðallega sérssniðnum jakkafötum.
Íþróttavöruframleiðandinn Adidas hefur ákveðið að endurgera fræga skó sem Zinedine Zidane lauk ferlinum í.
Júlíana Dögg Önnudóttir Chipa segist með aldrinum hafa orðið meiri skvísa í klæðaburði en heldur alltaf í þægindin og segir öllu máli skipta að líða vel í flíkinni hverju sinni. Uppáhalds flíkin hennar er frakki sem amma hennar keypti árið 1983 en Júlíana Dögg er viðmælandi vikunnar í Tískutali.
Fatasmásölurisinn Shein hefur rutt sér rúms á íslenskum markaði. Föt fyrirtækisins hafa mælst eitruð og umhverfisfótspor þeirra er gríðarlegt. Ungir umhverfissinnar hafa áhyggjur af stöðunni og markaðstorg fyrir notaðar flíkur hefur tekið vörur fyrirtækisins úr umferð.
Laufskálavarða þjónustuhús eftir STÁSS Arkitekta er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2022. Verðlaunin fara fram í Grósku þann 17. nóvember.
Aftur til fortíðar kemur strax upp í hugann þegar skoðaðar eru myndirnar af eign til sölu í Bjarmalandi í Reykjavík.
Universal Thirst, stofnendur Kalapi Gajjar og Gunnar Vilhjálmsson, er tilnefnt til Hönnunarverðlaun Íslands 2022. Verðlaunin fara fram í Grósku þann 17. nóvember.
Leikkonan Lili Reinhart á ekki von á því að henni verði boðið á Met Gala tískuviðburðinn á næsta ári. Ástæðan eru ummæli sem hún lét falla um stórstjörnuna Kim Kardashian eftir viðburðinn í maí.
Plastplan, stofnendur Björn Steinar Blumenstein og Brynjólfur Stefánsson, er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2022. Verðlaunin fara fram í Grósku þann 17. nóvember.
Tónlistarmanninum og fatahönnuðinum Ye, áður Kanye West, var vísað á dyr þegar hann mætti óboðinn í höfuðstöðvar Skechers í Los Angeles í gær. Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu segir að Ye og föruneyti hans hafi verið fylgt út eftir stutt samtal.
Hljóðhimnar eftir Þykjó er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2022. Verðlaunin fara fram í Grósku þann 17. nóvember.
Þýski íþróttavöruframleiðandinn Adidas ætlar að slíta samstarfi sínu við tónlistarmanninn Kanye West vegna endurtekinnar særandi hegðunar hans. West hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum og í viðtölum og spúið gyðingahatri.
Verkefnið Áríðandi tilraunir á raunveruleikanum eftir Sól Hansdóttur er tilnefnt til Hönnunaverðlauna Íslands 2022. Verðlaunin fara fram í Grósku þann 17. nóvember.
Áreynslulaust og afslappað virðast vera einkennisorð tískunnar um þessar mundir, ef marka má tískudrottningarnar Sunnevu Einarsdóttur og Birtu Líf Ólafsdóttur. Fallhlífabuxur, blazer jakkar af kærastanum og sólgleraugu keypt á bensínstöð eru á meðal þess sem stelpurnar spá að verði heitt á næstunni.
Danski fatahönnuðurinn Ilse Rohde Jacobsen, sem meðal annars þekkt er fyrir hönnun á regnkápum, stigvélum, kjólum og öðrum fatnaði, er látin 62 ára að aldri.
Verkefnið Snert á landslagi eftir Tinnu Gunnarsdóttur er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2022. Verðlaunin fara fram í Grósku þann 17. nóvember.
Ljósmyndarinn, áhrifavaldurinn og lífskúnstnerinn Stefán John Turner lítur á tískuna sem list en hann hefur mikinn áhuga á klæðaburði. Hann hugsar alltaf um heildar lúkkið þegar hann verslar og eyðir ekki miklum tíma í að velja föt hverju sinni þar sem hann segir það stundum koma best út að klæða sig í flýti. Stefán John Turner er viðmælandi vikunnar í Tískutali.
Hversu hrikalega svekkjandi að klæða sig upp, gera sig til og taka svo eftir blettum eftir farða í fötunum. Farða sem smitast í úlpu- eða skyrtukragann eða blett eftir varalit eða maskara í hvítu skyrtunni.
Ný gjafasett BIOEFFECT voru afhjúpuð á Hafnartorgi í gær. Hönnuður þeirra er listakonan Kristjana S Williams.
Tónlistarkonan Emilíana Torrini rifjar upp erfiða upplifun sína af myndatöku sem hún fór í hjá tískutímaritinu Vogue þegar hún var aðeins tuttugu ára gömul.
Ljósmyndarinn Viðar Logi hefur verið að gera öfluga hluti í hinum skapandi heimi síðastliðin ár en að undanförnu hefur samstarfsverkefni hans og Bjarkar Guðmundsdóttir sérstaklega vakið athygli. Blaðamaður náði tali af Viðari Loga og fékk smá innsýn í hans skapandi og listræna hugarheim.
Ég á mér þann draum að íslensk hönnun njóti verðskuldaðrar viðurkenningar. Góð hönnun er ekki bara fögur vara sem nýtist okkur og gleður sálina. Hún er líka öflugur drifkraftur sem hvetur til nýsköpunar, eykur verðmætasköpun og sjálfbærni og bætir lífsgæði.
Stórborgin London er þekkt fyrir mikinn fjölbreytileika þar sem ólíkir menningarheimar mætast í hringiðu af list, tísku, tónlist, góðum mat og áhugaverðu fólki. Blaðamaður kíkti í helgarferð til þeirrar menningarmiðju sem London er og skrifaði niður nokkra skemmtilega hluti sem hægt er að gera þar.
Rósa María Árnadóttir er fagurkeri og lífskúnstner sem elskar tjáningarformið sem tískan býr yfir. Hún passar sig að elta ekki allar tískubylgjur heldur fylgja sínu eigin innsæi og sínum stíl og segir áhugann á tísku líklega koma frá móður sinni, sem er mikil smekkkona. Rósa María er viðmælandi vikunnar í Tískutali.
„Við erum ennþá í smá sjokki yfir því að Ferm Living hafi stolið hönnuninni okkar,“ segir íslenska hönnurnarteymið Stúdíó Flétta á Instagram. Þær ásaka danska merkið Ferm Living um að stela hönnuninni sinni. Í færslunni báru þær saman hönnun merkisins við sína eigin.