N1-deild karla: Sigrar hjá Haukum, Fram og Val Fjórir leikir fóru fram í N1-deild karla í kvöld. Akureyri vann FH og Haukar, Fram og Valur unnu einnig góða sigra í kvöld. Handbolti 18. mars 2010 22:56
Jónatan: Greddan var okkar megin Jónatan Magnússon segir að Akureyringa hafi einfaldlega hungrað meira í sigur en FH-inga. Akureyri vann leik liðanna í kvöld 33-30. Handbolti 18. mars 2010 21:56
Einar Andri: Akureyringar voru beittari Einar Andri Einarsson kennir slakri vörn um lélegan leik FH í fyrri hálfleik gegn Akureyri í kvöld. Markmenn liðanna vörðu aðeins tvö skot í fyrri hálfleik en Akureyri vann leikinn 33-30. Handbolti 18. mars 2010 21:40
Rúnar: Liðið er að þróast mikið Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar, var brosmildur eftir góðan sigur á FH í kvöld. Lokatölur 33-30 fyrir liðinu hans, sem hefur farið vaxandi og sýnt miklu betri leik en til að mynda fyrir áramót. Handbolti 18. mars 2010 21:32
Umfjöllun: Akureyri drap FH-grýluna Akureyri vann góðan 33-30 sigur á FH í N-1 deild karla í handbolta í kvöld. Akureyri var miklu betra í fyrri hálfleik og leiddi 18-12 eftir hann en seinni hálfleikur var spennandi. Akureyri hélt haus á lokakaflanum og landaði sigrinum. Handbolti 18. mars 2010 20:51
Aron og Björgvin bestir í umferðum 8-14 HSÍ hélt blaðamannafund í dag og tilkynnti um úrvalslið umferða 8-14 í N1-deild karla. Handbolti 15. mars 2010 12:34
Geir Sveinsson tekur við Gróttuliðinu Handknattleiksdeild Gróttu hefur ráðið Geir Sveinsson til að stýra liðinu út yfirstandandi tímabil í N1 deild karla en þetta kom fyrst fram í hádegisfréttum Bylgjunnar. Handbolti 14. mars 2010 12:15
Grótta rak Halldór Ingólfsson eftir að hann tók tilboði Hauka Samkvæmt heimildum íþróttadeildar Stöðvar 2 hefur handknattleiksdeild Gróttu rekið þjálfarann Halldór Ingólfsson, skömmu eftir að hann tók boði um þjálfa Hauka að loknu yfirstandandi keppnistímabili í N1 deild karla. Handbolti 13. mars 2010 13:45
Oddur: Eins og létt æfing Oddur Gretarsson átti enn einn stórleikinn fyrir Akureyri í kvöld. Hann skoraði tólf af 36 mörkum liðsins sem fékk aðeins á sig 21 mark gegn Stjörnunni. Liðið er þar með aftur komið í annað sæti N-1 deildarinnar. Handbolti 12. mars 2010 21:32
Patrekur sér ljósa punkta þrátt fyrir fimmtán marka tap Þrátt fyrir fimmtán marka tap sá Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, nokkra ljósa punkta í leik liðsins gegn Akureyri í kvöld. Lokatölur voru 36-21 þar sem Stjörnumenn gerðu aragrúa mistaka. Handbolti 12. mars 2010 21:21
Umfjöllun: Akureyri valtaði yfir Stjörnuna Leikur Akureyrar á Stjörnunni í N-1 deild karla í handbolta í kvöld var aldrei spennandi. Akureyri vann með fimmtán marka mun og gerði hreinlega lítið úr arfaslökum Garðbæingum. Lokatölur 36-21 sem segir margt um leikinn. Handbolti 12. mars 2010 21:00
Halldór Ingólfsson tekur við Haukum Halldór Ingólfsson, þjálfari Gróttu, verður næsti þjálfari Hauka samkvæmt öruggum heimildum íþróttadeildar. Samkvæmt sömu heimildum verður leikmönnum Gróttu tilkynnt þetta í kvöld. Handbolti 12. mars 2010 17:41
Bjarni: Erum með lið sem er að verða gott „Við höfum áður verið yfir gegn Haukum og ekki klárað leikinn. Þá vorum við ekki að spila nógu vel og það voru löggildar skýringar á því. Við fórum yfir okkar mistök í þeim leik og sem betur fer lærðum við af mistökunum," sagði FH-ingurinn Bjarni Fritzson sem átti flottan leik í sigri FH á Haukum í N1-deild karla í kvöld. Handbolti 11. mars 2010 22:02
Aron: Mjög hissa á því hvernig við vorum að spila Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, var ekki par sáttur við frammistöðu sinna drengja sem steinlágu fyrir FH í kvöld, 31-25. Handbolti 11. mars 2010 21:53
Fram vann Val - HK upp í annað sæti með sigri á Gróttu Góður lokasprettur Fram tryggði liðinu sigur gegn Valsmönnum í N1-deildinni í kvöld. Framarar unnu 26-25 eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik og nældu í dýrmæt stig í baráttunni fyrir lífi sínu í deildinni. Handbolti 11. mars 2010 21:14
Umfjöllun: FH svaraði loksins fyrir sig FH-ingar sofa vel í nótt eftir ljúfan 31-25 sigur á erkióvinum sínum í Haukum í kvöld. Eftir þrjú töp í röð tókst FH-ingum loksins að snúa taflinu sér í vil og vinna leikinn. Handbolti 11. mars 2010 20:56
Þorgerður og Lúðvík bæjarstjóri á grillinu í Krikanum Það er þjóðhátíð í Hafnarfirði í kvöld þegar FH tekur á móti Haukum í Krikanum. Venju samkvæmt verða þekktir einstaklingar á grillinu og munu þeir grilla hamborgara ofan í svanga Hafnfirðinga. Handbolti 11. mars 2010 14:15
Handboltastríð Hafnarfjarðar - fjórði þáttur í kvöld Það verður stórleikur í Kaplakrika í kvöld í þegar Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar mætast í fjórða sinn á þessu tímabili. Íslands- og bikarmeistarar Hauka eru á toppi N1-deildar karla og hafa unnið alla þrjá leiki liðanna í vetur en allir leikirnir hafa samt verið jafnir og æsispennandi. Handbolti 11. mars 2010 14:00
Sveinbjörn í tveggja leikja bann Aganefnd HSÍ dæmdi í gær markvörð HK, Sveinbjörn Pétursson, í tveggja leikja vegna óíþróttamannslegrar framkomu í leik Stjörnunnar og HK. Handbolti 10. mars 2010 14:00
HK í fjórða sætið HK vann stórsigur á Stjörnunni, 25-38, þegar liðin áttust við í Mýrinni í kvöld í N1-deild karla. Handbolti 7. mars 2010 22:14
Birkir Ívar: Gekk ágætlega miðað við aldur og fyrri störf „Það gekk bara ágætlega í dag miðað við aldur og fyrri störf," sagði maður leiks Gróttu og Hauka, Birkir Ívar Guðmundsson. Handbolti 7. mars 2010 19:11
Umfjöllun: Sigurbergur skaut Gróttu í kaf Í dag fór fram einn leikur í N1-deild karla í handbolta. Grótta fékk meistara Hauka í heimsókn á Seltjarnarnesið. Leiknum lauk með, 22-26, sigri Haukamanna en Gróttu-liðið var vel og lengi með yfirhöndina í leiknum. Þeir fóru þó illa að ráði sínu og misstu menn klaufalega útaf undir lok leiksins og það varð þeim að falli. Handbolti 7. mars 2010 17:34
Rúnar Sigtryggsson: Við lögðum þetta upp sem úrslitaleik Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar brosti út að eyrum þegar hann rak á eftir strákunum sínum eftir sigurinn á HK í kvöld og sagði þeim að drífa sig í stutta sturtu ef þær ætluðu að ná fluginu til baka. Handbolti 4. mars 2010 22:53
Elvar Friðriksson: Þetta var hrikalega leiðinlegt og grimmilegt „Við mættum hérna með okkar lið og ætluðum bara að svara fyrir þessa vitleysu sem fram fór í höllinni um síðustu helgi. En svona getur þetta verið, það vantaði ekki dramatíkina í þetta," sagði Elvar Friðriksson, leikmaður Vals, eftir grátlegt tap gegn Haukum í kvöld, 25-24, þar sem Haukamenn stálu sigrinum í lokin. Handbolti 4. mars 2010 22:45
Björgvin: Við ætlum okkur að reyna vera liðið sem hampar þessum bikar „Þetta var alvöru baráttuleikur. Þetta Valslið er mjög gott og það þýðir ekkert að gefa eftir á móti þeim," sagði Björgvin Þór Hólmgeirsson, stórskytta Haukamanna, eftir dramatískan sigur, 25-24, gegn Valsmönnum í kvöld. Handbolti 4. mars 2010 22:39
Umfjöllun: Dramatík á Ásvöllum - Sigurbergur hetja Hauka Í kvöld tóku Haukar á móti Val í N1-deild karla í handbolta. Það voru Haukamenn sem fögnuðu vel og innilega eftir að hafa skorað sigurmarkið úr vítakasti í blálokin. Leikurinn var jafn og spennandi en heimamenn mörðu sigur, 25-24. Handbolti 4. mars 2010 21:13
Framarar unnu óvæntan sigur á FH-ingum Botnlið Fram vann óvæntan 31-30 sigur á FH í N1 deild karla í handbolta í kvöld og Safarmýrarpiltar eru langt frá því að vera búnir að gefast upp í barátunni um halda sæti sínu í deildini. Handbolti 4. mars 2010 21:08
Gunnar Magnússon: Þeir voru miklu hungraðri og miklu betri en við Gunnar Magnússon, þjálfari HK, var allt annað en sáttur með sína menn eftrir 30-34 tap fyrir Akureyri á heimavelli í N1 deild karla í handbolta í kvöld í einum af úrslitaleikjunum um síðustu sætin inn í úrslitakeppnina. Handbolti 4. mars 2010 20:50
Rúntaði með búningana um bæinn og rataði ekki upp í Digranes Akureyringar létu ekki óvenjulegan undirbúning fyrir leik sinn á móti HK í N1- deild karla í kvöld hafa mikinn áhrif á sig. Akureyri vann gríðarlegan mikilvægan útisigur á HK í Digranesi í baráttunni um sæti inn í úrslitakeppnina en þeir fengu þó ekki keppnisbúningana fyrr en rétt fyrir leik. Handbolti 4. mars 2010 20:43
Akureyringar í góðum málum eftir öruggan sigur á HK Akureyringar eru í góðum málum í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni eftir fjögurra marka sigur á HK, 34-30, í Digranesi í N1 deild karla í handbolta í kvöld. Akureyri var í 4. sætinu og með eins stigs forskot á HK fyrir leikinn en nú komið með þriggja stiga forskot á fimmta sætið. Handbolti 4. mars 2010 19:32