Ásbjörn: Fullt af öðrum leikmönnum í FH sem voru líka frábærir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. apríl 2011 13:45 „
Ég er hæstánægður með þessi verðlaun enda er þetta fínasta viðurkenning fyrir mann," sagði Ásbjörn Friðriksson sem í dag var valinn besti leikmaður umferða 15 til 21 í N1 deild karla í handbolta. „Þriðja umferðin gekk mjög vel, við vorum að spila góðan handbolta og vinnum sex leiki og gerum eitt jafntefli sem segir sitt," sagði Ásbjörn sem spilar sem leikstjórnandi og stjórnar spili FH-liðsins auk þess að vera einn af markahæstu mönnum liðsins. „Ef maður spilar vel þá fær maður góða athygli en ef maður spilar illa þá fær maður að heyra það. Þannig á það að vera," sagði Ásbjörn. „Við erum að verða samæfðara lið og farnir að þekkja betur inn á hvern annan. Varnarleikurinn er líka búinn að vera mjög góður í þriðju umferðinni, markvarslan hefur síðan komið með og það hefur skilað sér," sagði Ásbjörn en FH-liðið komst nú í sína fyrst úrslitakeppni síðan árið 2005. „Við höfum lengi stefnt á að komast í úrslitakeppnina. Við komust ekki í úrslitakeppnina í fyrra og vildum bæta fyrir það núna. Það gekk ágætlega, við náðum öðru sæti sem tryggir okkur heimavöllinn á móti Fram á fimmtudaginn," sagði Ásbjörn. „Þetta eru búnir að vera hörkuleikir á móti Fram í vetur. Þeir unnu okkur tiltölulega sannfærandi í fyrsta leik en síðan er búið að vera jafnt og við höfum unnið þá í síðustu tveimur leikjum í Safamýrinni. Þetta einvígi verður mjög skemmtilegt, ég get lofað því," sagði Ásbjörn en hann var einn af þremur leikmönnum Hafnarfjarðarliðsins sem fengu verðlaun í dag. „Það er kannski ekkert óeðlilegt miðað við uppskeruna í þriðju umferð að það hafi verið nokkrir í liði umferðarinnar. Ég held að flest allir í FH-liðinu hafi spilað vel í þessari umferð og það er bara öflug liðsheild sem er að skila þessu frekar heldur en þeir leikmenn sem voru valdir núna í úrvalsliðið. Það voru fullt af öðrum leikmönnum í FH sem voru líka frábærir í þessari umferð," sagði Ásbjörn en það er hægt að sjá allt viðtalið með því að smella hér fyrir ofan.
Olís-deild karla Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport „Takk fyrir ástina“ Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Fleiri fréttir Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Sjá meira