Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Akureyri 30-22 Haukar unnu öruggan sigur á Akureyri 30-22 á heimavelli sínum að Ásvöllum í dag og náðu fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar. Oddur Gretarsson meiddist að því er virtist illa í fyrri hálfleik og dró það allan kraft úr leik gestanna og Haukar lönduðu öruggum sigri. Handbolti 27. október 2012 00:01
Umfjöllun og viðtöl: Valur - ÍR 22-22 Valur og ÍR gerðu jafntefli í afar skemmtilegum háspennuleik í 6. umferð N1-deildar karla í handbolta í kvöld. Handbolti 25. október 2012 19:15
Umfjöllun og viðtöl: HK - Fram 24-30 Íslandsmeistarar HK töpuðu þriðja leiknum í röð í N1 deild karla í kvöld þegar Framarar sóttu tvö stig í Digranesið. Handbolti 25. október 2012 19:15
Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - FH 24-25 FH vann eins marks sigur á Aftureldingu 25-24 að Varmá í kvöld í N1 deild karla í handabolta. Eins og tölurnar gefa til kynna var leikurinn jafna og spennandi en Afturelding missti boltann þegar tíu sekúndur voru eftir og misstu af tækifæri til að ná jafntefli. Handbolti 25. október 2012 19:15
Miðstöð Boltavaktarinnar | Allir leikirnir í N1-deild karla á sama stað Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í N1-deild karla samtímis. Handbolti 25. október 2012 19:15
Rothöggið ætlar að þagga niður í Loga Geirs Logi Geirsson snýr aftur á handboltavöllinn í kvöld í fyrsta skipti í langan tíma. Hann má búast við erfiðum móttökum í Mosfellsbæ þar sem stuðningsmannalið Aftureldingar, Rothöggið, hefur verið endurvakið. Handbolti 25. október 2012 14:26
Gunnar tekur við af Óskari | Erlingur kemur í þjálfarateymið Eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum þá getur Óskar Bjarni Óskarsson ekki haldið áfram sem aðstoðarlandsliðsþjálfari í handbolta. HSÍ hefur nú staðfest þá frétt. Handbolti 24. október 2012 12:07
Haukar selja auglýsingar á kústana sína Það er ekki auðvelt verk að reka íþróttastarf á Íslandi og þurfa menn að leita ýmissa leiða til að afla fjár. Handknattleiksdeild Hauka hefur nú farið nýja og skemmtilega leið. Handbolti 22. október 2012 14:00
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Valur 28-23 | Haukar enn ósigraðir Haukar unnu öruggan heimasigur á Valsmönnum í N1-deild karla í handbolta í dag. Haukar höfðu frumkvæðið frá upphafi til enda og unnu fimm marka sigur 28-23. Hafnfirðingar eru enn ósigraðir í deildinni í vetur. Handbolti 21. október 2012 16:30
Úrslit dagsins í N1-deild kvenna Fjórir leikir fóru fram í N1-deild kvenna í dag. FH og HK eru komin upp í sex stig eftir leiki dagsins en Fylkir hafði betur gegn Aftureldingu í botnslag deildarinnar. Handbolti 20. október 2012 16:19
Umfjöllun og viðtöl: Fram - ÍR 34-27 Fram vann öruggan sigur á ÍR 34-27 í fimmtu umferð N1 deildar karla í handbolta í dag. Jafnræði var með liðunum fyrsta stundarfjórðunginn en þá sigu Framarar fram úr og unnu öruggan og sannfærandi sigur. Handbolti 20. október 2012 13:00
Umfjöllun og viðtöl: Akureyri - Afturelding 23-28 Afturelding vann sinn fyrsta sigur í N1-deild karla í kvöld. Liðið gerði sér þá lítið fyrir og lagði Akureyri fyrir norðan. Handbolti 18. október 2012 12:28
Afmælisleikur hjá FH-ingum í kvöld FH-ingar halda upp á 83 ára afmæli félagsins í dag og í kvöld fær liðið Íslandsmeistara HK í heimsókn í Kaplakrikann í fyrsta leik fimmtu umferðar N1 deildar karla í handbolta. Handbolti 17. október 2012 15:00
Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - HK 28-23 FH sigraði Íslandsmeistara HK í uppgjöri liðanna sem léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í vor 28-23. Segja má að FH hafi fellt HK á eigin bragði því varnarleikur FH og markvarsla lagði grunninn að sigrinum eftir að HK hafði verið 14-12 yfir í hálfleik. Handbolti 17. október 2012 13:24
Haukar töpuðu fyrri leiknum með fimm mörkum Haukar töpuðu 30-25 á móti úkraínska liðinu HC Motor Zaporozhye í fyrri leik liðanna í 2. umferð EHF-keppni en báðir leikirnir fara fram úti í Úkraínu um helgina. Leikurinn í kvöld taldist vera heimaleikur Úkraínumanna. Handbolti 13. október 2012 17:30
Umfjöllun: HK - Akureyri 21-22 Akureyri sigraði Íslandsmeistara HK í Digranesi 22-21 þar sem Oddur Gretarsson skoraði sigurmarkið á síðustu sekúndu leiksins. Þjálfari og leikmenn HK var brjálaðir út afleita dómara leiksins í leikslok þar sem þeim fannst þeir yfirsjást línu og tvígrip á leikmenn Akureyrar. Handbolti 13. október 2012 15:15
Engir leikir hjá Eyjamönnum í dag Handknattleikssambandið hefur þurft að fresta tveimur leikjum í meistaraflokki karla og kvenna í dag þar sem ófært er frá Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá HSÍ en vonir stóðu til að nóg væri að seinka leikjunum fram á kvöld. Handbolti 13. október 2012 13:47
Víkingar byrja vel í 1. deild karla Víkingar hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína í 1. deild karla í handbolta og eru eina liðið með fullt hús eftir þrjár fyrstu umferðirnar. Víkingar unnu 25-24 útisigur á Gróttu í gærkvöldi. Handbolti 13. október 2012 12:37
Ófært frá Eyjum - tveir leikir í dag í hættu Handknattleikssamband Íslands hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem kemur fram að tveimur leikjum í meistaraflokki í dag hefur verið seinkað til kl.18 vegna ófærðar frá Vestmannaeyjum. Handbolti 13. október 2012 12:24
HSÍ færir bikarúrslitaleikina eftir að mótið er byrjað Stjórn Handknattleikssambands Íslands hefur ákveðið að færa bikarúrslitaleiki HSÍ frá 23. febrúar til 9.mars 2013 en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá HSÍ. Bikarúrslitaleikurinn hefur farið fram í febrúar undanfarin ár en nú verður breyting á því. Handbolti 12. október 2012 18:15
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Fram 23-23 Valur og Fram skildu jöfn 23-23 í einvígi Reykjavíkurliðanna að Hlíðarenda í kvöld í spennandi og jöfnun leik. Valsmenn voru þremur mörkum yfir í hálfleik 13-10 en þriggja mínútna leik kafli í seinni hálfleik þar sem Fram mest þremur leikmönnum fleiri á vellinum kom Fram aftur inn í leikinn. Handbolti 11. október 2012 19:30
Umfjöllun og viðtöl: ÍR - FH 28-25 ÍR vann glæsilegan sigur á FH-ingum í bráðskemmtilegum spennuleik í Austurbergi í kvöld. Það var hart tekist á og mikil spenna nánast allt til loka leiksins. Handbolti 11. október 2012 13:46
Logi: Þetta er mín lokatilraun "Ég mun aldrei snerta handbolta aftur um ævina ef þetta gengur ekki upp,“ segir handknattleikskappinn Logi Geirsson, sem hefur ákveðið að rífa skóna niður úr hillunni. Hann spilar sinn fyrsta leik með FH á ný í lok mánaðarins. Handbolti 11. október 2012 07:00
Umfjöllun og viðtöl: Afturelding-Haukar 22-27 | Myndir Haukar eru enn í efsta sæti N1-deildar karla og Afturelding er enn stigalaust eftir eina leik kvöldsins í deildinni. Sigur Hauka í kvöld var aldrei í neinni hættu. Handbolti 10. október 2012 11:58
Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - Valur 20-26 Valur vann sanngjarnan sex marka sigur á Aftureldingu 26-20 í uppgjöri botnliða N1 deildar karla í handbolta í dag. Valsmenn voru baráttuglaðir á sama tíma og Mosfellingar virkuðu ragir og hræddir og því aldrei spurning hvort liðið færi með sigur af hólmi. Handbolti 6. október 2012 15:30
Miðstöð Boltavaktarinnar | Allir leikirnir í N1 deild karla á einum stað Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í N1-deild karla samtímis en þá fara þrír af fjórum leikjum 3. umferðarinnar fram. Handbolti 4. október 2012 19:15
Forseti Mojkovac baðst afsökunar á því að leikmaður liðsins skallaði Haukamann Haukum barst í gær formleg afsökunarbeiðni frá Vlatko Rakocevic, forseta HC Mojkovac vegna framferði eins leikmanna liðsins, Boris Savic í Evrópuleik Hauka og Mojkovac um miðjan september síðastliðinn en þetta kemur fram á heimasíðu Hauka. Handbolti 4. október 2012 16:15
Umfjöllun og viðtöl: FH - Fram 24-29 Fram unnu í kvöld sinn fyrsta sigur í N1-deild karla með sterkum 5 marka sigri í Kaplakrika, 24-29. Jafnræði var með liðunum lengst af en góðar lokamínútur gerðu útslagið í sigri gestanna. Handbolti 4. október 2012 12:38
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - HK 22-22 Bikarmeistarar Hauka og Íslandsmeistarar HK skildu jöfn í hörkuleik í Hafnarfirði í kvöld. HK-ingar eru þó örugglega talsvert ánægðari með sitt stig en Haukarnir að þessu sinni. Handbolti 4. október 2012 12:36
Umfjöllun og viðtöl: Akureyri - ÍR 32-23 Akureyringar eru enn taplausir og með fimm stig af sex mögulegum í húsi eftir níu marka sigur á ÍR, 32-23, í Höllinni á Akureyri í 3. umferð N1 deildar karla í kvöld. Bjarni Fritzsson skoraði 11 mörk á móti sínum gömlu félögum og Jovan Kukobat var mjög góður í markinu. Handbolti 4. október 2012 12:33