Körfubolti

Braut­ryðj­endur heiðraðir í Vestur­bænum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Blandaður hópur Íslandsmeistara 2. flokks kvenna 1960 og Íslandsmeistara meistaraflokks kvenna 1961:  Friðgerður Benediktsdóttir, Erla Björnsdóttir, Erna Sigurðardóttir, Guðrún Svava Svavarsdóttir, Margrét Snorradóttir Johnson, Hrafnhildur Skúladóttir, Málfríður Skúladóttir, Ingveldur Ingólfsdóttir, Margrét Georgsdóttir, Þóra R Ásgeirsdóttir, Kolfinna Sigurvinsdóttir, Vilborg Bjarnadóttir.
Blandaður hópur Íslandsmeistara 2. flokks kvenna 1960 og Íslandsmeistara meistaraflokks kvenna 1961: Friðgerður Benediktsdóttir, Erla Björnsdóttir, Erna Sigurðardóttir, Guðrún Svava Svavarsdóttir, Margrét Snorradóttir Johnson, Hrafnhildur Skúladóttir, Málfríður Skúladóttir, Ingveldur Ingólfsdóttir, Margrét Georgsdóttir, Þóra R Ásgeirsdóttir, Kolfinna Sigurvinsdóttir, Vilborg Bjarnadóttir. KR/Antonio Otto Rabasca

KR heiðraði í vikunni hóp kvenna sem skrifuðu körfuboltasögu félagsins. Um er að ræða hóp sem vann fyrsta titil KR í sögu körfuknattleiksdeildarinnar.

Lið KR sem vann fyrsta Íslandsmeistaratitil í körfubolta í sögu félagsins. Þær urðu bæði Reykjavíkur- og Íslandsmeistarar í 2. flokki kvenna árið 1961.

Liðið vann Ármann í úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn og því þótti viðeigandi að heiðra liðið fyrir leik KR við Ármann í Bónus-deild kvenna að Meistaravöllum á miðvikudagskvöldið var.

„Hópurinn hittist fyrir leik inni í bikarherbergi KR og átti góða stund saman, rifjaðir voru upp gamlir tímar og Gísli Georgsson, fyrrverandi formaður körfuknattleiksdeildar KR, var með frábært erindi sem rifjaði upp sögu deildarinnar. Síðan fór hópurinn inn í sal og horfði á KR-stúlkur sigra Ármann í Bónusdeild kvenna. Mættar voru 12 af upprunalegum 15 manna leikmannahópi, en þrjár úr hópnum eru látnar,“ segir í tilkynningu KR.

Í liði Íslandsmeistara KR á árunum 1959 til 1962 voru: Erla Björnsdóttir, Erna Sigurðardóttir, Friðgerður Benediktsdóttir, Guðrún Svava Svavarsdóttir, Gunnhildur Snorradóttir (látin), Hrafnhildur Skúladóttir, Ingibjörg Kjartansdóttir (látin), Ingveldur Ingólfsdóttir, Kolfinna Sigurvinsdóttir, Margrét Georgsdóttir, Margrét Snorradóttir Johnson, Málfríður Skúladóttir, Vilborg Bjarnadóttir, Þorbjörg Valdimarsdóttir (látin) og Þóra Ragnheiður Ásgeirsdóttir.

Þjálfari liðsins var Þórir Arinbjarnarson (látinn) og formaður deildarinnar á þessum tíma var Helgi Sigurðsson (látínn).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×