Lækka og festa vöruverð til ársloka IKEA á Íslandi hefur ákveðið að lækka vöruverð á rúmlega sex þúsund vörum frá og með deginum í dag og festir sömuleiðis vöruverð til ársloka 2024. Er þetta meðal annars gert til að greiða fyrir því að SA og verkalýðshreyfingin landi „skynsamlegum“ kjarasamningum sem fyrst. Neytendur 1. febrúar 2024 08:13
Kalla inn Nóa Kropp vegna hnetusmits Ákveðið hefur verið að kalla inn 200 gramma pakkningar af Nóa Kroppi. Ástæðan er blöndun sem átti sér stað við pökkun sælgætisins, sem veldur því að heslihnetur komust í kroppið. Neytendur 30. janúar 2024 18:43
Verð á brauði frá Myllunni hækkaði mest Verð á brauði, kexi og kökum hækkaði á bilinu 0-7% frá októberlokum til janúarloka í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ. Verð hækkuðu ekki í Extra og Bónus, en hækkuðu um 7% í Iceland. Þar munaði mestu um Finn Crisp vörur, sem hækkuðu um fjórðung í Iceland á þessum þremur mánuðum. Neytendur 29. janúar 2024 16:04
Styttri leið úr IKEA einungis tímabundin Glöggir viðskiptavinir IKEA hafa tekið eftir að leiðin að afgreiðslukassa verslunarinnar og út er talsvert styttri en vanalega. Þó er ekki um að ræða langtímabreytingu heldur einungis tímabundna lausn til þess að standast reglur um eldvarnir meðan á framkvæmdum stendur. Neytendur 27. janúar 2024 14:59
Kristín og Kristján Helgi til Kjör- og Krambúðanna Kristín Gunnarsdóttir og Kristján Helgi Olsen Ævarsson hafa tekið við nýjum stöðum hjá Krambúð og Kjörbúðinni á verslunar- og mannauðssviði. Kristján Helgi hefur tekið við stöðu sölustjóra Krambúða og Kjörbúða og Kristín sem rekstrarstjóri Krambúða og Kjörbúða. Viðskipti innlent 24. janúar 2024 10:06
Vika til stefnu fyrir þá sem vilja sleppa við 20 þúsund króna sekt Rétt tæplega 93% þeirra sem eiga rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla hafa nú skráð kílómetrastöðu á Mínum síðum Ísland.is eða í Ísland.is appinu. Að morgni miðvikudags hafði kílómetrastaða ríflega 47 þúsund bíla verið skráð. Neytendur 24. janúar 2024 09:50
Hjón segja pakkaferð hafa verið svindl og fá 60 þúsund endurgreitt Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur gert ferðaskrifstofu að endurgreiða hjónum 60 þúsund krónur vegna pakkaferðar sem þau fóru í síðasta sumar. Þau greiddu samtals 272 þúsund krónur fyrir ferðina, sem var auglýst sem pakkaferð á fjögurra stjörnu hóteli þar sem allt væri innifalið fyrir 130 þúsund krónur á mann. Neytendur 24. janúar 2024 08:55
„Mitt hlutverk að gera fyrirtækin mannréttindasinnaðri“ Róbert Spanó, lögmaður og fyrrverandi forseti Mannréttindadómstóls Evrópu, segir ábyrgð fyrirtækja á einkamarkaði hafa breyst mikið síðastliðin ár. Kröfur neytenda séu meiri og háværari um til dæmis sjálfbærni. Hugtakið um sjálfbærni hafi svo einnig víkkað og taki nú einnig til mannréttinda. Viðskipti innlent 24. janúar 2024 07:41
Enn fleiri sektaðir vegna fullyrðinga um CBD Neytendastofa hefur sektað Fitness Sport ehf og Ozon ehf fyrir fullyrðingar um lyfjavirkni snyrtivara sem innihalda CBD og fyrirtækin selja á heimasíðu sinni og auglýsa á samfélagsmiðlum. Fjöldi fyrirtækja hefur verið sektaður fyrir það sama undanfarið ár. Neytendur 19. janúar 2024 15:19
Dropp stal efsta sætinu af bensíninu hjá Costco Póstþjónustufyrirtækið Dropp er sigurvegari Íslensku ánægjuvogarinnar 2023. Fyrirtækið fékk hæstu einkunnina frá neytendum eða 83,9. Íslandsbanki hlaut lægstu einkunn ársins 53,9. Neytendur 19. janúar 2024 09:31
Bein útsending: Ánægjuvogin afhent Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar verða birtar í dag. Þetta er í tuttugasta og fimmta skipti sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Að þessu sinni verða birtar niðurstöður fyrir fjórtán atvinnugreinar og hafa þær sjaldan verið fleiri. Viðskipti innlent 19. janúar 2024 07:31
Segir neytendur ósátta með miklar breytingar á rafrettureglum Reglur um rafrettur taka gífurlegum breytingum um mánaðamótin. Neytendur eru alls ekki sáttir að sögn verslunareiganda sem vill meina að breytingarnar séu slæmar fyrir alla sem koma að viðskiptunum, sem og umhverfið. Neytendur 18. janúar 2024 20:00
HSÍ sendir Ölver viðvörun Handknattleikssamband Íslands hefur sent bréf til eigenda skemmtistaðarins Ölver þar sem þeim er stranglega bannað að birta myndir af landsliðsmönnum í handbolta í auglýsingum sínum. Gömul mynd af Sigga Sveins með Þrótti er í staðinn dregin fram. Innlent 18. janúar 2024 12:57
Bein útsending: Ný leiguvísitala kynnt til leiks Hús- og mannvirkjastofnun efnir til kynningarfundar um nýja vísitölu leiguverðs og upplýsingar úr nýrri leiguskrá sem stofnunin hefur sett á laggirnar. Fundinum er streymt í beinni og hefst klukkan 10. Neytendur 18. janúar 2024 09:54
Leggjast yfir umdeilt gjald sem færðist aftur yfir á almenning Hæstiréttur ætlar að leggjast yfir deilur Landsvirkjunar við Landsnet um innheimtu Landsnets á svonefndu aflgjaldi. Héraðsdómur og Landsréttur hafa þegar úrskurðað gjaldið ólögmætt. Neytendur 18. janúar 2024 09:00
Segja þeim upp sem hækka verð verulega Samkaup, sem reka um sextíu verslanir á landinu á borð við Nettó og Krambúðina, segjast hafa fengið jákvæð viðbrögð frá ýmsum samstarfsaðilum um aðgerðir gegn verðbólgu. Á næstu misserum muni fyrirtækið ræða við alla sína birgja með það að markmiði að verðlækkanir skili sér í vöruverði til almennings. Hætt verði sölu á þeim vörum sem hækkað hafi óhóflega og ódýrari sambærilegar vörur valda til sölu. Neytendur 17. janúar 2024 13:01
Karamelluskyrið rýkur upp í verði Verð á mjólkurvörum hækkaði í mörgum verslunum milli fyrstu og annarrar viku ársins samkvæmt niðurstöðum verðlagseftirlits ASÍ. Heildsöluverð á mjólk hækkaði um 1,6 prósent þann 8. janúar sem er strax farið að skila sér í meiri kostnaði fyrir neytendur. Áhugafólk um karamelluskyr finnur sérstaklega fyrir hækkun. Neytendur 17. janúar 2024 11:17
Fresta gjaldtökunni umdeildu Stjórnendur og stjórn Isavia Innanlandsflugvalla hafa ákveðið að fresta gjaldtöku á bílastæðum á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum þar til síðar á þessu ári. Neytendur 17. janúar 2024 10:44
Nespresso ekki fyrir óbreytta starfsmenn Lyfjastofnun vill koma á framfæri athugasemd en stofnunin greiðir ekki fyrir kaffineyslu starfsmanna. Þá hefur borist athugasemd frá starfsfólki LSH og er sagt að spítalinn fjármagni sannarlega ekki lúxuskaffidrykkju klínískra starfsmanna. Innlent 12. janúar 2024 13:55
Opinberir starfsmenn þamba Nespresso fyrir milljónir Samkvæmt Opnum reikningum kostar kaffineysla hið opinbera sitt. Starfsmenn ríkisins spara í engu við sig í mat og drykk og alls ekki þegar gæðakaffi er annars vegar. Innlent 12. janúar 2024 11:32
Segir söluhrun á degi einhleypra eiga sér eðlilegar skýringar Brynja Dan, forsprakki dags einhleypra á Íslandi og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Garðabæ, segir söluhrun á þessum afsláttadegi á síðasta ári eiga sér eðlilegar skýringar. Sé litið til sölu yfir dagana þrjá í kringum 11. nóvember sé ljóst að salan sé enn gríðarlega mikil. Viðskipti innlent 12. janúar 2024 07:47
Fær geymsluna á bílnum og þrifin endurgreidd að fullu Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur komist að því að fyrirtæki sem sér um geymslu og þrif bifreiða á meðan fólk ferðast þarf að endurgreiða manni 38.900 krónur og greiða 35 þúsund krónur í málskostnaðargjald. Neytendur 11. janúar 2024 08:00
Leigubílstjórar fá ekki árskort og kostnaður gæti margfaldast Isavia hefur gert breytingar á gjaldheimtu á leigubílastæðinu við Leifsstöð. Stakt gjald fyrir innakstur á stæðið helst óbreytt en árskort standa ekki lengur til boða. Ljóst er að kostnaður leigubílstjóra sem vinna mikið við að aka fólki til og frá Keflavíkurflugvelli gæti margfaldast. Viðskipti innlent 10. janúar 2024 11:02
Tónninn gjörbreyttist þegar „eiginkonan“ hafði samband Smiður sem tók að sér að smíða fallegan skáp fyrir um hálfa milljón króna tilkynnti kaupanda að vegna heilsufarsbrests gæti hann ekki lokið við verkið eins og samið var um. Þegar kaupandi hafði samband í nafni eiginkonu sinnar og ætlaði að kaupa annað verk tók smiðurinn vel í það erindi. Neytendur 10. janúar 2024 10:31
Bréfpokar undir matarleifar ekki lengur í verslunum Frá og með morgundeginum mun Sorpa hætta dreifingu bréfpoka undir matarleifar í verslunum. Áfram geta íbúar sótt bréfpokana endurgjaldslaust á endurvinnslustöðvum Sorpu og í verslun Góða hirðisins. Neytendur 9. janúar 2024 16:24
Sala á Degi einhleypra hrynur Neytendur horfðu lítið sem ekkert til Dags einhleypra (e. Singles Day) þegar þeir versluðu jólagjafir þetta árið. Viðskipti innlent 9. janúar 2024 15:54
„Computer says no“ hjá Play vegna ónýts farangurs „Mér finnast þau bara alveg ömurleg,“ segir Kristján Sævald Pétursson um viðbrögð Play en hann varð fyrir því á dögunum að taskan hans eyðilagðist í flugi með flugfélaginu. Neytendur 3. janúar 2024 14:00
Fordæmir viðbrögð Play eftir að taska gjöreyðilagðist í flugi „Við komuna á Kastrup fór ég eins og venja er að ná í töskuna mína en í stað þess að fá hana til baka eins og venjulega þá kom taskan til mín gjörsamlega í henglum brotin á alla kanta og hékk bókstaflega saman á lyginni einni saman.“ Neytendur 3. janúar 2024 10:16
Skordýr í kryddi og glerbrot í súpu Krydd sem var flutt inn af Krónunni og selt í verslunum hennar hefur verið innkallað vegna þess að skordýr fannst í því. Þá hefur Sælkerabúðin ákveðið að innkalla súpu því að í henni fundust glerbrot. Neytendur 29. desember 2023 17:08
Viðskiptafréttir ársins 2023: Sala áratugarins, vandræði Marel og heljarinnar gjaldþrot Árið sem líður var, eins og nánast öll ár, viðburðaríkt hvað varðar viðskiptin. Árið einkenndist af ítrekuðum stýrivaxtahækkunum, síhækkandi verðalagi og mikilli lækkun hlutabréfaverðs en einnig stórum sigrum í atvinnulífinu. Viðskipti innlent 29. desember 2023 15:56