Ferðamenn fastir í bíl á Þingvallavegi Björgunarsveitir voru kallaðar út á tíunda tímanum í kvöld. Innlent 14. janúar 2020 23:34
Ákærður fyrir stórfellda líkamsárás gegn sautján ára kærustu sinni og ofbeldi gegn annarri átján ára stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært tvítugan karlmann fyrir stórfellda líkamsárás gegn sautján ára kærustu sinni. Hann er einnig ákærður fyrir ofbeldisbrot og hótanir gegn annarri átján ára stúlku. Innlent 13. janúar 2020 18:30
Hinn grunaði á Spáni á langan sakaferil að baki Íslendingurinn sem handtekinn var á Spáni um helgina, grunaður um að hafa orðið stjúpföður sínum að bana aðfaranótt sunnudags, heitir Guðmundur Freyr Magnússon. Innlent 13. janúar 2020 16:00
Varð fyrir slysaskoti úr kindabyssu Lögregla og sjúkraflutningamenn voru kölluð að sveitabæ í Rangárvallasýslu í gær þar sem skot hafði hlaupið úr kindabyssu og hæft framhandlegg manns sem var að aðstoða þann sem hélt á byssunni við að aflífa kind. Innlent 13. janúar 2020 12:36
Sex umferðaróhöpp í borginni á rúmum klukkutíma Færð var afar slæm á höfuðborgarsvæðinu í gær, snjóþungt og hvasst. Innlent 13. janúar 2020 08:02
Banaslys á Reykjanesbraut Banaslys varð á Reykjanesbraut í gærkvöldi nærri Álverinu í Straumsvík skömmu fyrir klukkan hálf tíu í gærkvöldi. Innlent 13. janúar 2020 07:02
Íslendingur grunaður um að hafa myrt sambýlismann móður sinnar Íslendingur á fertugsaldri en nú grunaður um að hafa orðið manni að bana á Spáni í nótt. Innlent 12. janúar 2020 19:54
Hafa áhyggjur af pennum með ofskynjunarlyfi sem eru nýjung á fíkniefnamarkaði Svokallaðir DMT pennar sem innihalda ofskynjunarlyf eru nýjung á íslenskum fíkniefnamarkaði og ganga kaupum og sölum á netinu. Innlent 12. janúar 2020 19:54
Handtekinn í annað sinn þá grunaður um að hafa ógnað fólki með hníf Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt. Í morgun voru alls níu aðilar vistaðir í fangaklefa. Innlent 12. janúar 2020 07:21
Grunur leikur á íkveikju í Vesturbergi 4 Sterkur grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða en enginn hefur verið handtekinn. Innlent 10. janúar 2020 23:15
Rannsaka meint brot tveggja lyfjafræðinga Landlæknir, Lyfjastofnun og lögreglustjórinn á Suðurnesjum rannsaka öll meint brot tveggja lyfjafræðinga. Eru þeir grunaðir um umfangsmikið lyfjamisferli sem varðar sölu lyfseðilsskyldra lyfja. Innlent 10. janúar 2020 20:30
Laus á aðfangadag eftir tíu vikur í gæsluvarðhaldi grunaður um gróf brot gegn börnum Karlmaður sem grunaður er um gróf kynferðisbrot gegn börnum á suðvesturhorninu og sat í gæsluvarðhaldi í tíu vikur vegna þeirra var látinn laus úr varðhaldi á aðfangadag. Innlent 9. janúar 2020 07:00
Í vímu undir stýri og hafnaði í snjóskafli Þá fundust fíkniefni í fórum ökumanns og farþega bílsins. Innlent 9. janúar 2020 06:49
Átján ára stunginn fimm sinnum á nýársnótt Átján ára karlmaður var stunginn fimm sinnum með hnífi aðfaranótt nýársdags. Innlent 8. janúar 2020 18:43
Eðlilegt að lögregla rannsaki hvers vegna farið var af stað Veðurfræðingur leggur áherslu á að strax hafi verið ljóst í gærmorgun að veður yrði slæmt á svæðinu en hópurinn lagði af stað eftir hádegi í gær. Innlent 8. janúar 2020 11:32
Í gæsluvarðhald grunaður um hnífstunguárás Karlmaður á miðjum aldri, sem var handtekinn í íbúð fjölbýlishúss í Garðabæ á laugardagskvöld eftir að tilkynning barst um alvarlega líkamsárás, var í fyrradag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 17. janúar Innlent 7. janúar 2020 15:46
Tilkynnt um hugsanlega sprengju á leikskólalóð Leikskólastjóri á leikskóla í Breiðholti tilkynnti lögreglu um hugsanlega sprengju með kveikiþræði á lóð leikskólans um klukkan hálftvö í dag. Innlent 6. janúar 2020 22:06
Lucky Strike-jakki Spessa kominn í leitirnar Jakkinn flaut uppá yfirborðið og rataði til eiganda síns. Innlent 6. janúar 2020 08:59
Hnífsstunga í Garðabæ: Mennirnir tengjast fjölskylduböndum Maður var í gær handtekinn af vopnaðri sérsveit lögreglu eftir að hafa stungið annan mann með hnífi í Garðabæ. Innlent 5. janúar 2020 13:23
Flugeldasprengju kastað inn á pall Fjöldi mála kom inn á borð lögreglu í gærkvöldi og nótt. Innlent 5. janúar 2020 08:35
Björgunarsveitir hafa sinnt fleiri en 120 verkefnum Hundrað sjötíu og tveir björgunarsveitarmenn sinntu verkefnum á suðvesturhorni landsins en þeim bárust um hundrað og tuttugu aðstoðarbeiðnir. Þá barst aðgerðarstjórn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á þriðja tug aðstoðarbeiðna. Innlent 4. janúar 2020 18:30
Handtekinn eftir að hafa ekið á tvær bifreiðar sviptur ökuréttindum Nokkuð var um það að lögreglan stöðvaði bifreiðar í gærkvöld og nótt þar sem ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum. Innlent 4. janúar 2020 07:45
Lögregla segir að rannsóknin sé í fullum gangi og miði vel Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir rannsókn á máli Kristjáns Gunnars Valdimarssonar, lögmanns og lektors við Háskóla Íslands, í fullum gangi. Þá miði henni vel. Innlent 3. janúar 2020 14:58
Landsréttur hafnar sömuleiðis kröfu lögreglu um gæsluvarðhald Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að hafna gæsluvarðhaldskröfu lögreglunnar á höfðuborgarsvæðinu yfir Kristjáni Gunnari Valdimarssyni, lögfræðingi og lektor við Háskóla Íslands. Innlent 3. janúar 2020 14:29
Lögreglan á Norðurlandi vestra sjálfbær Gunnar Örn Jónsson lögreglustjóri segir fyrirliggjandi tölur sem sýni að hegningarlagabrot séu fæst þar nyrðra. Innlent 3. janúar 2020 14:06
Fundu fjallgöngubúnað Andris í bílnum Leit lögreglu og björgunarsveita að Lettanum Andris Kalvan í Heydal á Snæfellsnesi hefur haldið áfram í dag. Innlent 3. janúar 2020 13:21
Nýbúið að lagfæra veginn þar sem rútan valt Vegurinn þar sem slysið varð í gærkvöldi, liggur í gegnum þjóðgarðinn. Hann var endurbættur nýverið á um átta kílómetra kafla til austurs, frá þjónustumiðstöðinni. Vegurinn var opnaður aftur fyrir umferð um miðjan september í fyrra. Innlent 3. janúar 2020 12:00
Köstuðu flugeldum inn í anddyri fjölbýlishúss Nokkrar tilkynningar bárust lögreglunni á Suðurnesjum um áramótin vegna óæskilegrar meðferðar á flugeldum. Innlent 3. janúar 2020 08:19
Bílbelti björguðu miklu á Gjábakkavegi: Nítján í rútunni sem valt – einn fluttur á slysadeild Varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu segir alveg ljóst að bílbelti hafi bjargað því að ekki fór verr. Allir sem voru um borð í rútunni voru í bílbeltum og það varnaði því að fólk slasaðist ekki meira. Innlent 3. janúar 2020 02:57
Dómarar við Landsrétt fjalla áfram um gæsluvarðhaldskröfu lögreglu á morgun Landréttur hefur ekki komist að niðurstöðu vegna úrskurðar héraðsdóms Reykjavíkur um að hafna gæsluvarðhaldi yfir Kristjáni Gunnari Valdimarssyni sem grunaður er um kynferðis- og ofbeldisbrot gegn þremur konum. Úrskurðar er að vænta í fyrsta lagi á morgun. Innlent 2. janúar 2020 19:00