Fimm þúsund skammtar frá Moderna væntanlegir í janúar og febrúar Gert er ráð fyrir að Ísland fái samtals fimm þúsund skammta af bóluefni Moderna í janúar og febrúar, sem duga fyrir 2.500 manns. Eftir það verði afhending hraðari. Alls á Ísland von á 128 þúsund skömmtum frá Moderna sem duga fyrir 64 þúsund manns. Innlent 5. janúar 2021 14:12
Segja umræðuna ekki eiga að snúast um færni starfsfólks Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins áréttar að blöndun og meðhöndlun bóluefnis Pfizer hafi að öllu leyti farið eftir leiðbeiningum markaðsleyfishafa og fyrirmælum Lyfjastofnunar og Embættis landlæknis. Umræða um blöndunina eigi ekki að snúast um færni starfsfólks heldur hvort farið sé eftir leiðbeiningum. Innlent 5. janúar 2021 14:04
137 misstu vinnuna í þremur hópuppsögnum í desember Þrjár tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í desember þar sem 137 starfsmönnum var sagt upp störfum. Þar af voru 94 starfsmenn í menningar, íþrótta og tómstundastarfsemi, 32 í iðnaði og 11 í flutningastarfsemi. Uppsagnirnar koma allar til framkvæmda í apríl 2021. Viðskipti innlent 5. janúar 2021 13:12
Hefur ekki áhyggjur af því að tilkynningarnar fæli fólk frá bólusetningu Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ekki áhyggjur af því að tilkynningar um hugsanlegar aukaverkanir af bóluefni gegn kórónuveirunni hafi áhrif á vilja þjóðarinnar til að láta bólusetja sig. Miklu máli skipti fyrir samfélagið allt að bólusetning verði almenn. Innlent 5. janúar 2021 12:51
Breska afbrigðið virðist bindast frumum líkamans af meiri krafti en aðrir stofnar Nýtt afbrigði kórónuveirunnar sem greindist fyrst í Bretlandi í haust er með fleiri stökkbreytingar en búast mætti við miðað við þann tíma sem liðinn er frá því að veiran kom fyrst fram. Þá virðast bæði smithæfni og smitstuðull afbrigðisins vera meiri en hjá öðrum stofnum veirunnar. Innlent 5. janúar 2021 12:15
Býst við fleiri smituðum á landamærum Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir tölur dagsins yfir nýsmitaða af kórónuveirunni ánægjulegar. Staðan á faraldrinum í útlöndum sé hins vegar áhyggjuefni, sem muni skila sér í fleiri smituðum á landamærum. Innlent 5. janúar 2021 12:00
Mikilvægt að fá skýringar á andlátum fyrir næsta skammt af bóluefni Fjögur andlát hafa verið tilkynnt til Lyfjastofnunar vegna mögulegra tengsla við bólusetningu við Covid-19. Sóttvarnalæknir segir mikilvægt að fá betri mynd af því hvort andlátin megi rekja til bólusetningar áður en seinni skammtur efnisins verður gefinn. Innlent 5. janúar 2021 11:58
Treysta á mat Evrópsku lyfjastofnunarinnar Íslensk heilbrigðisyfirvöld árétta að þau treysti á mat Evrópsku lyfjastofnunarinnar (EMA) á öryggi, gæðum og virkni bóluefna gegn kórónuveirunni. Þá benda stjórnvöld á að með tímabundnu neyðarleyfi, líkt og Bretland veitti fyrir notkun bóluefnis AstraZeneca, séu ekki gerðar jafnríkar kröfur til bóluefnanna og EMA gerir með skilyrtu markaðsleyfi. Innlent 5. janúar 2021 10:57
Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Allir þeir sem greindust voru í sóttkví við greiningu. Innlent 5. janúar 2021 10:56
Viðspyrna okkar allra 2021 Endurkoma erlendra ferðamanna er það sem hraðast kemur okkur út úr þeirri kreppu og atvinnuleysi sem Covid-19 skilur eftir sig. Öflug og hnitmiðuð markaðssókn fyrir Ísland er málið. Skoðun 5. janúar 2021 10:00
Besti súmóglímukappi Japans greinist með Covid-19 Japanski súmóglímukappinn Hakuho, sem er efstur á styrkleikalista Súmóglímusambandsins þar í landi, hefur greinst með Covid-19. Meistarinn, sem á rætur að rekja til Mongólíu, fór í sýnatöku eftir að hafa misst lyktarskyn sitt. Erlent 5. janúar 2021 08:24
Spillti bóluefninu því hann taldi það breyta erfðaefni manna Lyfjafræðingur í Wisconsin í Bandaríkjunum, sem eyðilagði hundruð skammta af bóluefni Moderna við Covid-19, sagðist í samtali við lögreglu sannfærður um það að bóluefnið við veirunni breytti erfðaefni manna. Erlent 4. janúar 2021 22:37
Enski boltinn rúllar áfram í útgöngubanni Enska úrvalsdeildin getur haldið áfram að rúlla þrátt fyrir að Boris Johnson, forsætisráðherra Englands, hafi í kvöld tilkynnt um að útgöngubann væri í gildi á Englandi frá og með miðnætti. Enski boltinn 4. janúar 2021 20:50
Útgöngubann á Englandi Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í kvöld um útgöngubann vegna kórónuveirufaraldursins í Englandi. Í ávarpi sem hann flutti í kvöld sagði hann útbreiðslu nýs afbrigðis veirunnar, sem herjað hefur á Bretlandseyjar og er talið 50 til 70 prósent meira smitandi en flest önnur afbrigði, vera áhyggjuefni. Erlent 4. janúar 2021 20:28
Boris Johnson kynnir hertar aðgerðir Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, mun klukkan átta kynna hertar aðgerðir vegna versnandi kórónuveirufaraldursins á Bretlandi. Búist er við að hann tilkynni um útgöngubann líkt og það sem var sett á í Skotlandi í dag. Erlent 4. janúar 2021 19:41
Yfirlæknir á Grund segir ekkert hægt að segja um bein tengsl milli bólusetningar og andláts Þrjú andlát eftir bólusetningu gegn Covid-19 hafa verið tilkynnt til Lyfjastofnunar Íslands. Karlmaður á hjúkrunarheimili lést nokkrum dögum eftir bólusetningu og segir yfirlæknir á Grund mikilvægt að fylgjast vel með áhrifum bólusetninga á fólkið í viðkvæmasta hópnum. Innlent 4. janúar 2021 19:07
Ekki hægt að segja til um orsakasamband milli bólusetninga og dauðsfalla Þrjár tilkynningar hafa borist Lyfjastofnun þess efnis að einstaklingar hafi látist eftir að hafa verið bólusettir fyrir kórónuveirunni í síðustu viku. Rúna Hauksdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar, segir ekkert benda til þess að um orsakasamband sé að ræða en tilfellin verði þó skoðuð. Innlent 4. janúar 2021 18:53
Ferðaþjónustan allt að fjögur ár að ná sér á strik Ferðaþjónustan mun líklega ekki ná að vinna sig upp úr áfalli síðasta árs fyrr en að þremur til fjórum liðnum, að mati Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Landsmenn vilja ekki að mikið fleiri ferðamenn komi til landsins en þeir voru fyrir kórónuveirufaraldurinn samkvæmt könnun sem fréttastofa lét gera fyrir áramót. Viðskipti innlent 4. janúar 2021 18:46
Tilkynnt um þrjú dauðsföll í kjölfar bólusetningar Þrír sjúklingar með undirliggjandi sjúkdóma létust hér á landi eftir að hafa verið bólusettir við kórónuveirunni í síðustu viku. Ekki er þó hægt að staðfesta að andlátin tengist bólusetningunni. Þetta kom fram í máli Rúnu Hauksdóttur forstjóra Lyfjastofnunar í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Innlent 4. janúar 2021 16:58
Nýtt upphaf - froðusnakk eða alvöru stöff? Áður en heimsfaraldur skall á heimsbyggðina var ljóst að hefðbundnar hugmyndir okkar um verðmætasköpun hefðu ekki skilað okkur sjálfbærum samfélögum og stabílum framtíðarhorfum. Skoðun 4. janúar 2021 15:00
Þau sem greinast með breska afbrigðið eru „undir smásjá“ Sóttvarnalæknir segir að aukið eftirlit sé haft með ferðalöngum frá Bretlandi á landamærum vegna hins svokallaða breska afbrigðis kórónuveirunnar. Mjög vel sé fylgst með þeim sem greinast með afbrigðið hér á landi. Innlent 4. janúar 2021 14:27
Sæta ströngu útgöngubanni út janúar Nicola Sturgeon fyrsti ráðherra Skotlands tilkynnti rétt í þessu að á miðnætti tæki gildi útgöngubann í landinu öllu út janúarmánuð. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í morgun. Erlent 4. janúar 2021 14:23
Vilja fylgja reglum en ekki „sérreglum sem virðast gilda bara um kaþólska kirkju“ Biskup kaþólskra á Íslandi hefur ákveðið að aflýsa opinberum sunnudagsmessum og vigilmessum á laugardagskvöldum. Þetta hafi verið það eina rétta í stöðunni því ekki komi til greina að vísa fólki frá messu sem vilji sækja hana. Honum finnst sóttvarnareglur sem gilda um helgihald vera ósanngjarnar. Innlent 4. janúar 2021 13:08
Jafnvel von á meira bóluefni fyrr en búist var við Sóttvarnalæknir telur að vonast megi til þess að meira bóluefni berist til landsins fyrr en talið hefur verið til þessa. Þá sé „mjög óráðlegt“ að hans mati að gefa bóluefni á annan máta en framleiðendur og rannsóknir mæla með, til dæmis í hálfum skömmtum. Innlent 4. janúar 2021 12:30
Lyfjastofnun klár um leið og leyfi Moderna liggur fyrir Búist er við því að bóluefni Moderna fái markaðsleyfi hér á landi á morgun og forstjóri Lyfjastofnunar gerir ráð fyrir að dreifing hefjist fljótlega. Íslendingar hafa samið um að fá skammta frá Moderna fyrir 64 þúsund manns. Innlent 4. janúar 2021 12:10
Biður fyrir því að sóttvarnayfirvöld „íhugi málin með visku“ „Ég lýsi yfir að þrátt fyrir góðan vilja getum við ekki fylgt öllum gildandi sóttvarnareglum í sambandi við messuhald í kirkjum okkar. Með harm í hjarta hef ég tekið þá ákvörðun að aflýsa öllum opinberum sunnudagsmessum og vigilmessum á laugardagskvöldum. Ákvörðunin tekur þegar gildi.“ Innlent 4. janúar 2021 11:46
„Hugsanlega ein alvarleg“ tilkynning um aukaverkanir vegna bólusetningar Sjö tilkynningar um aukaverkanir í kjölfar bólusetningar við kórónuveirunni hafa borist Lyfjastofnun Íslands, þar af „hugsanlega ein alvarleg“. Þetta kom fram í máli Ölmu Möller landlæknis á upplýsingafundi almannavarna í dag. Innlent 4. janúar 2021 11:36
Tíu greindust innanlands í gær Alls greindust tíu með kórónuveiruna innanlands í gær. Sjö þeirra voru í sóttkví. Þá greindust þrettán manns á landamærunum. Þrír þeirra reyndust með virkt smit, hjá hinum er beðið niðurstöðu mótefnamælingar. Innlent 4. janúar 2021 10:48
Svona var 150. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11:00 í dag. Um er að ræða fyrsta upplýsingafundinn á nýju ári. Innlent 4. janúar 2021 10:21
Landlægt útgöngubann kemur til greina í Englandi Enn þarf að herða sóttvarnaraðgerðir í Englandi til að hægja á og stöðva dreifingu nýs afbrigðis nýju kórónuveirunnar þar í landi. Þetta sagði Matt Hancock, heilbrigðisráðherra landsins, í morgun en í gær voru tilkynnt tæplega 55 þúsund ný tilfelli og hafa rúmlega 75 þúsund manns dáið vegna faraldursins. Erlent 4. janúar 2021 09:31