Vaktin: Alþjóðadómstóllinn í Haag kynnir úrskurð á miðvikudag Átökin í Úkraínu hafa nú borist af alvöru til höfuðborgarinnar Kænugarðs en tveir létust og þrír særðust þegar fallbyssuskot hitti fjölbýlishús í norðurhluta borgarinnar í morgun. Eldur kviknaði í byggingunni en flestum var bjargað. Erlent 14. mars 2022 06:54
Viðræður Úkraínumann og Rússa halda áfram og Bandaríkjamenn biðla til Kínverja Fulltrúar Úkraínu og Rússlands munu ræða saman í dag í gegnum fjarfundabúnað, segir Mykhailo Podoliak, ráðgjafi Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Talsmenn beggja þjóða hafa sagt eitthvað orðið ágengt, jafnvel þótt engar vísbendingar séu uppi um að Vladimir Pútín Rússlandsforseti sé reiðubúinn til að slá af kröfum sínum. Erlent 14. mars 2022 06:32
Birgir fann vel fyrir sprengingunni við Lviv Birgir Þórarinsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins var við hjálparstörf í borginni Lviv í Úkraínu í dag. Stór eldflaugaárás var gerð á herstöð nærri borginni í morgun og kveðst Birgir vel hafa fundið fyrir henni. Hann er nú kominn til Póllands og segir ástandið átakanlegt. Erlent 13. mars 2022 22:46
Rússar hóta að handtaka viðskiptamenn sem gagnrýna Pútín Rússneskir saksóknarar hafa hótað því að handtaka viðskiptamenn sem gagnrýna rússnesku ríkisstjórnina. Þá hafa þeir einnig hótað því að leggja hald á eigur fyrirtækja, sem lokað hafa starfsemi sinni í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Viðskipti erlent 13. mars 2022 22:05
Rússar hafi beðið Kínverja um aðstoð Bandarískir embættismenn segja Rússa hafa beðið Kínverja um hernaðargögn frá upphafi innrásar Rússa inn í Úkraínu. Erlent 13. mars 2022 20:15
Uggandi yfir nálægð herstöðvarinnar við NATO-ríki Rússar skutu á herstöð í Yavoriv, vestan við borgina Lviv í vesturhluta Úkraínu í morgun. Yfir 35 létust og 134 særðust í árás Rússa en herstöðin er aðeins 25 kílómetrum frá landamærum Póllands. Erlent 13. mars 2022 18:26
Íslenskir dýralæknanemar hafa safnað milljónum króna fyrir flóttafólk Íslenskir dýralæknanemar í Slóvakíu standa fyrir söfnun fyrir úkraínskt flóttafólk í landinu og á landamærum úkraínu og Slóvakíu. Þegar hafa safnast ríflega fimm milljónir króna sem nemarnir hafa varið í ýmsar nauðsynjavörur, til að mynda hráefni í heimagerðar samlokur. Erlent 13. mars 2022 16:56
Refsiaðgerðir gegn Rússum „auka á verðbólguþrýstinginn,“ segir Seðlabankinn Stríðsátökin í Úkraínu munu hafa „veruleg og mögulega ófyrirséð áhrif“ á efnahagsframvinduna hér á landi í ljósi þeirra þvingunaraðgerða sem gripið hefur verið til gegn Rússlandi. Innherji 13. mars 2022 15:01
Bandarískur blaðamaður drepinn nálægt Kænugarði Brent Renaud, fimmtugur blaðamaður og kvikmyndagerðarmaður frá Bandaríkjunum, var drepinn skammt frá Kænugarði í dag en Renaud hafði áður starfað fyrir miðla á borð við New York Times. Hann var þó ekki að störfum fyrir miðilinn þegar hann var drepinn. Erlent 13. mars 2022 14:58
Efast um að NATO myndi blanda sér í stríðið þó Rússar notuðu efnavopn Prófessor í stjórnmálafræði efast um að NATO myndi blanda sér í stríðið í Úkraínu ef Rússar myndu beita þar efnavopnum. Það þyrfti meira til að NATO færi í allsherjarstríð við Rússland. Erlent 13. mars 2022 13:10
Á fjórða tug látnir og varnamálaráðherrann sakar Rússa um hryðjuverk Skotið var á herstöð í Yavoriv, vestan við borgina Lviv í vesturhluta Úkraínu, í morgun en úkraínsk yfirvöld segja Rússa hafa verið að verki. Samkvæmt nýjustu tölum létust 35 og 134 særðust þegar tugum flugskeyta var skotið á herstöðina, sem er innan við 25 kílómetra frá landamærum Póllands. Erlent 13. mars 2022 09:52
Vaktin: Rafmagn komið aftur á í Tsjernobyl Úkraínsk yfirvöld segja Rússa hafa skotið á herstöð við landamæri Póllands, sem er NATO ríki, en 35 létust í árásinni að sögn yfirvalda. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. Erlent 13. mars 2022 08:00
Missti annað barnið sitt í sprengjuárás Rússa Pútín Rússlandsforseti sýndi engan vilja til að binda enda á stríðið við Úkraínu að sögn franskra yfirvalda en Pútín átti símafund með Frakklandsforseta og kanslara Þýskalands í dag. Árásir Rússa á nokkrar úkraínskar borgir færðust mjög í aukana í morgun. Við vörum við myndefni sem fylgir myndbandinu í fréttinni. Erlent 12. mars 2022 23:00
Rússar verði háðir Kínverjum eftir nýjustu efnahagsþvinganir Evrópusambandið ætlar að meina Rússum aðgang að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem myndi gera þá algerlega háða Kínverjum eða Indverjum þegar efnahagur landsins hrynur. Þetta er á meðal þess sem kynnt var í fjórða pakka þvingunaraðgerða gegn Rússlandi í gær. Erlent 12. mars 2022 20:30
Rússar hafi ráðist á almenna borgara á flótta Úkraínska leyniþjónustan segir að Rússar hafi skotið á bílalest fulla af konum og börnum, sem voru á leið frá noðvesturhluta Kyiv í gær. Rússnesk yfirvöld hafa ekki viljað tjá sig um ásakanirnar. Erlent 12. mars 2022 19:36
Sakar Loga um ódýra hræðslupólitík Þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður íslandsdeildar NATO-þingsins sakar formann Samfylkingarinnar um ódýra hræðslupólitík, en hann sagði í dag að tilefni væri til að setja umsókn um aðild að Evrópusambandinu aftur á dagskrá. Innlent 12. mars 2022 15:56
Ekki nóg að vera í NATO og tímabært að huga að aðild að ESB Formaður Samfylkingarinnar segir kominn tíma á að setja aðildarumsókn að Evrópusambandi aftur rækilega á dagskrá. Innlent 12. mars 2022 13:35
Abramovich bannaður frá enskum fótbolta Enska úrvalsdeildin gaf út tilkynningu rétt í þessu að deildin hafi bannað Abramovich frá frekari aðkomu að deildinni sem stjórnandi Chelsea. Fótbolti 12. mars 2022 13:03
Líður öruggari með hverjum deginum sem líður: „Ég veit ekki hvað ég taldi margar hríðskotabyssur“ Íslendingur sem búsettur er í Kænugarði óttast ekki að Rússar séu að undirbúa áhlaup á borgina. Hann segir tilraunir Rússa til að ná úkraínskum borgum á sitt vald hafa misheppnast hrapalega. Næstu tveir dagar komi til með að segja mikið um framhald stríðsins. Erlent 12. mars 2022 12:09
Forsætisráðherra óttast að stríðið dragist á langinn Forsætisráðherra segir að að þjóðin eigi að halda áfram að fylgjast með fréttum af stríðinu í Úkraínu, þó það reyni mikið á og geti verið erfitt, ekki síst fyrir börn og ungmenni. Hún óttast að stríðið eigi eftir að dragast á langinn. Innlent 12. mars 2022 12:01
Reyna að koma upp flóttaleiðum en segja árásir Rússa linnulausar Sautjándi dagur innrásar Rússa í Úkraínu hófst með látum í morgun þar sem loftvarnasírenur ómuðu í flestum borgum Úkraínu. Vonir eru bundnar við að hægt verði að koma upp öruggum flóttaleiðum í dag en yfirvöld segja árásir Rússa gera þeim erfitt fyrir og stofna lífi flóttamanna í hættu. Erlent 12. mars 2022 11:08
Lögðu hald á lúxussnekkju rússneska auðjöfursins sem var á Íslandi Lögreglan á Ítalíu hefur lagt hald á lúxussnekkjuna Sailing Yacht A sem er í eigu rússneska auðjöfursins Andrey Igorevich Melnichenko. Umrædd snekkja vakti töluverða athygli hér á landi en Melnichenko dvaldi á Íslandi í nokkurn tíma í fyrra með fjölskyldu sinni. Erlent 12. mars 2022 09:08
Leigjendasamtökin lýsa yfir neyðarástandi á leigumarkaðnum Leigjendasamtökin lýsa yfir neyðarástandi á leigumarkaðnum, ennfremur hvetja samtökin stjórnvöld til að setja neyðarlög fyrir húsaleigumarkaðinn. Mikilvægt er að það verði gert til að verja stríđshrjáð flóttafólk, leigjendur og þá sem þurfa að búa sér heimili á leigumarkaði fyrir óheftu okri og fyrirsjáanlegum hækkunum á húsaleigu verði ekkert að gert. Skoðun 12. mars 2022 08:01
Vaktin: Segir rússneska herinn hafa orðið fyrir sögulegu höggi Rússar halda áfram að sækja að í Kænugarði en átök áttu sér stað norðvestur af borginni í morgun. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. Erlent 12. mars 2022 07:52
Leita til TikTok-áhrifavalda til að tækla upplýsingaóreiðu Til þess að stemma stigu við upplýsingaóreiðu um innrás Rússa í Úkraínu hafa bandarísk yfirvöld leitað til þrjátíu helstu TikTok-áhrifavaldanna í Bandaríkjunum. Erlent 11. mars 2022 22:45
Úkraínskum borgarstjóra rænt Skrifstofa forseta Úkraínu segir Ivan Fedoro, borgarstjóra Melítópól í suðurhluta Úkraínu, hafa verið rænt af útsendurum innrásarliðs Rússa. Erlent 11. mars 2022 20:53
Troðfullt vöruhús af varningi á leið til Úkraínu Félag Úkraínumanna á Íslandi stendur nú fyrir söfnun fatnaðar og annarra nauðsynja sem senda á út til þeirra svæða í Úkraínu sem verst hafa orðið úti vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Með hjálp ýmissa aðila hefur tekist að troðfylla heilt vöruhús af varningi. Innlent 11. mars 2022 20:30
Opnum stríðshrjáðu flóttafólki hlýjan faðm Nú þegar hafa á annað hundrað flóttamenn frá Úkraínu óskað eftir hæli hérlendis frá því að innrásin hófst og þeim fjölgar enn dag frá degi. Þess er vænst að tekið verði á móti allt að 2.000 manns frá Úkraínu á næstu vikum. Sumir dveljast hér tímabundið en aðrir setjast að lengur og snúa jafnvel aldrei aftur heim. Miklu skiptir að þetta fólk mæti hér hlýju, skilningi og fjölþættri aðstoð. Skoðun 11. mars 2022 19:31
Úkraínuforseti segir stefnu Rússa birtast í ásökunum þeirra gegn öðrum Forseti Úkraínu óttast að ásakanir Rússa um að Úkraínumenn séu að koma sér upp efnavopnum séu undanfari þess að þeir beiti slíkum vopnum í Úkraínu. Biden bandaríkjaforseti segir Putin algerlega hafa misreiknað samstöðu Vesturlanda. Rússar sækja vestur á bóginn í innrásinni. Erlent 11. mars 2022 19:21
Bankareikningum Chelsea lokað tímabundið Bankareikningum enska knattspyrnufélagsins Chelsea hjá Barclays-bankanum hefur verið lokað tímabundið. Er þetta enn eitt höggið sem félagið verður fyrir eftir að breska ríkisstjórnin ákvað að banna Roman Abramovich, rússneskum eiganda félagsins, að eiga í viðskiptum innan Bretlands. Enski boltinn 11. mars 2022 19:15