Hörður áfram í bikarnum Hörður frá Ísafirði lagði Kórdrengi í Coca Cola-bikar karla í handbolta í kvöld, lokatölur 25-38. Handbolti 16. desember 2022 23:00
„Mér líður alls ekki vel“ Þórir Ólafsson, þjálfari Selfoss, var skiljanlega ekki eins glaður og Bjarni Fritzson, þjálfari ÍR, þegar hann ræddi við undirritaðan í leikslok. Leiknum lauk með sex marka sigri ÍR sem þýðir að Selfoss er fallið úr leik í Coca Cola-bikar karla í handbolta. Handbolti 16. desember 2022 21:45
Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Selfoss 34-28 | Heimamenn áfram eftir nokkuð óvæntan sigur ÍR er kannski í fallsæti Olís deildarinnar en er komið í 8-liða úrslit í bikarnum eftir frábæran sigur gegn Selfossi í Skógarseli í kvöld. Handbolti 16. desember 2022 20:30
Allir markverðir Gróttu fengu höfuðhlíf Allir markverðir í yngri flokkum Gróttu í handbolta fengu góða gjöf á dögunum, höfuðhlíf sem hægt er að nota á æfingum og í leikjum. Handbolti 16. desember 2022 16:16
Jólaálfurinn mætti í Seinni bylgjuna og kallaði fram ófá hláturköstin Svava Kristín Gretarsdóttir gerði upp fyrri hluta Olís deildar kvenna með sérfræðingum sínum í Jólaþættinum og þar vantaði ekki hlátursköstin enda jólaálfurinn í settinu. Handbolti 16. desember 2022 10:01
„Þetta var frábær sigur, þó að leikurinn sjálfur var það ekki“ Stjarnan sigraði FH með minnsta mun í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikarkeppni karla í handbolta í kvöld og tryggði sér þar með farseðilinn í 8-liða úrslitin. Lokatölur í Kaplakrika 23-24 og eðlilega var Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, kampakátur í leikslok. Handbolti 15. desember 2022 23:20
Afturelding áfram eftir magnaðan leik | Hauka unnu Víking Afturelding er komið áfram í Coca Cola-bikar karla í handbolta eftir magnaðan útisigur á HK, lokatölur 43-44 eftir vítakeppni. Þá unnu Haukar fimm marka útisigur á Víking, lokatölur 27-32. Handbolti 15. desember 2022 23:16
Umfjöllun og viðtöl: FH - Stjarnan 23-24 | Stjörnumenn áfram með minnsta mun Stjarnan tryggði sér farseðilinn í 8-liða úrslit í bikarkeppni karla með baráttusigri á FH-ingum í Kaplakrika í kvöld. Heimamenn voru með yfirhöndina fyrstu tuttugu mínútur leiksins en á stuttum kafla náðu gestirnir að jafna. Eftir endurkomu Stjörnumanna var jafnt á öllum tölum út leikinn. Stjarnan náði að sigra að lokum með minnsta mun, 24-23, og fara áfram í bikarkeppninni. Þetta er í annað sinn í þessari viku sem liðin eigast við en þau áttu kappi á mánudag. Sá leikur var í Olís-deildinni og lauk með jafntefli. Handbolti 15. desember 2022 22:20
Góður leikur Arons ekki nóg gegn Kiel Aron Pálmarsson átti góðan leik fyrir Álaborg þegar þýska stórliðið Kiel kom í heimsókn í Meistaradeild Evrópu. Það dugði þó ekki til sigurs en Kiel vann með fjórum mörkum, 26-30. Þá átti Bjarki Már Elísson fínan leik í liði Veszprém sem gerði jafntefli við Dinamo Búkarest. Handbolti 15. desember 2022 21:46
Elvar Örn frábær í sigri Melsungen Elvar Örn Jónsson skoraði fimm mörk í sigri Melsungen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach töpuðu heima fyrir Hannover. Handbolti 15. desember 2022 20:06
Sjáðu snilldartilþrif Ómars og Gísla í París Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson skoruðu samtals 21 mark þegar Magdeburg sigraði Paris Saint-Germain á útivelli, 33-37, í Meistaradeild Evrópu í gær. Handbolti 15. desember 2022 17:45
Jónatan mun hætta með KA að tímabilinu loknu Jónatan Þór Magnússon, þjálfari KA í Olís deild karla í handbolta, mun segja starfi sínu lausu þegar tímabilinu lýkur í vor. Handbolti 15. desember 2022 16:30
Handkastið: Eyjamenn róa öllum árum að því að fá Daníel Frey Eyjamenn eru í markvarðarleit og renna hýru auga til Daníels Freys Andréssonar sem leikur í Danmörku. Arnar Daði Arnarsson greindi frá þessu í Handkastinu fyrr í vikunni. Handbolti 15. desember 2022 10:02
Benedikt Gunnar óbrotinn Benedikt Gunnar Óskarsson meiddist í blálokin á leik Vals og Ystad í Evrópudeildinni í handbolta í gærkvöldi, þriðjudag. Óttast var að leikmaðurinn gæti verið ristarbrotinn en svo er ekki. Handbolti 14. desember 2022 23:31
Völva Seinni bylgjunnar: „Verða rosalega tæpir en munu ekki komast í úrslitakeppnina“ Það gerðist margt og mikið í jólaþætti Seinni bylgjunnar. Jóhann Gunnar Einarsson, Jói Kling, mætti á svæðið og spáði fyrir um hvað myndi gerast í Olís deild karla eftir áramót. Handbolti 14. desember 2022 22:30
Tuttugu og eitt íslenskt mark í sigri Magdeburg í París Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson voru svo sannarlega allt í öllu í naumum sigri Magdeburg á París Saint-Germain í Meistaradeild Evrópu í kvöld, lokatölur í París 33-37. Handbolti 14. desember 2022 19:31
Kim Andersson agndofa yfir frammistöðu Arnórs Snæs Flestir sem horfðu á leik Vals og Ystad í Evrópudeildinni í handbolta í gær héldu ekki vatni yfir frammistöðu Arnórs Snæ Óskarssonar. Meðal þeirra var goðsögnin Kim Andersson. Handbolti 14. desember 2022 11:01
Frétti frá dönskum blaðamönnum eftir sigur að liðið hans væri farið á hausinn Danskir fréttamenn reyndust boðberar válegra tíðinda fyrir Arnór Atlason eftir góðan sigur Íslands á Túnis á Ólympíuleikunum í London 2012. Þeir tilkynntu honum nefnilega að lið hans, AG Kaupmannahöfn, væri farið á hausinn. Handbolti 14. desember 2022 10:01
„Við getum sjálfum okkur um kennt“ Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals, sagðist vera grautfúll eftir þriggja marka tap liðsins gegn Ystads í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld, 29-32. Handbolti 13. desember 2022 23:30
„Það var of stór biti að lenda fimm mörkum undir“ Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var afar svekktur með þriggja marka tap gegn Ystad á heimavelli 29-32. Sport 13. desember 2022 23:15
Kim Andersson: Erfitt að vera fertugur og mæta hraða Vals Ystad vann fjórða leikinn í röð í Evrópudeild karla í handbolta. Kim Andersson, leikmaður Ystad, var ánægður með sigurinn eftir leik. Sport 13. desember 2022 22:20
Arnór Snær: Sennilega minn besti leikur en hefði viljað sigur Valur tapaði fyrir Ystad 29-32 í Evrópudeildinni í handbolta. Þrátt fyrir tap fór Arnór Snær Óskarsson, leikmaður Vals, á kostum og skoraði 13 mörk. Handbolti 13. desember 2022 21:50
Umfjöllun og myndir: Valur - Ystad 29-32 | Arnór Snær stórkostlegur í naumu tapi Valur tapaði fyrir Ystad, 29-32, þegar Svíþjóðarmeistararnir komu í heimsókn í 6. umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handbolta karla í kvöld. Leikurinn var mjög jafn en slæm byrjun á seinni hálfleik varð Valsmönnum að falli. Handbolti 13. desember 2022 21:25
Svona var blaðamannafundur Vals eftir tapið gegn Ystad Valur mátti þola þriggja marka tap er liðið tók á móti sænska liðinu Ystad í Evrópudeild karla í handbolta í kvöld, 29-32. Handbolti 13. desember 2022 21:25
Teitur og félagar enn á toppnum eftir öruggan sigur Teitur Örn Einarsson og félagar hans í þýska stórliðinu Flensburg unnu öruggan tólf marka sigur er liðið tók á móti Ferencváros í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld, 42-30. Handbolti 13. desember 2022 21:20
ÍBV í átta liða úrslit eftir öruggan sigur ÍBV vann öruggan átta marka sigur er liðið tók á móti KA/Þór í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikars kvenna í handbolta í kvöld, 33-25. Handbolti 13. desember 2022 19:39
Benidorm galopnaði Valsriðilinn með sigri gegn Kristjáni og félögum Benidorm vann óvæntan eins marks sigur er liðið tók á móti franska liðinu PAUC í B-riðli Evrópudeildarinnar í handbolta í kvöld, 33-32. Handbolti 13. desember 2022 19:25
Rúnar blæs á sögusagnirnar: „Það hefur enginn haft samband“ Rúnar Kárason, leikmaður ÍBV í Olís-deild karla, segist ekki kannast við það að lið á höfuðborgarsvæðinu hafi haft samband við hann undanfarna daga. Handbolti 13. desember 2022 17:33
„Mér finnst það léleg afsökun“ Mikið álag hefur verið á liði Vals sem verður án sterkra pósta er liðið mætir Ystad í Evrópudeildinni í handbolta klukkan 19:45 í kvöld. Þjálfari liðsins segir álag og þreytu vera enga afsökun. Handbolti 13. desember 2022 14:01
Handkastið: Næsti áfangastaður Rúnars gæti komið mjög á óvart Stórskyttan Rúnar Kárason flytur frá Vestmannaeyjum á fasta landið eftir þetta tímabil. Þetta herma heimildir Arnars Daða Arnarssonar. Handbolti 13. desember 2022 11:31