Íslenski boltinn

FH-ingar biðla til bar­eig­enda, presta og trúar­leið­toga

Aron Guðmundsson skrifar
FH - Stjarnan  FH - Stjarnan besta deildin
FH - Stjarnan FH - Stjarnan besta deildin Anton/Vísir

Stuðningsfólk FH biðlar til bareigenda og trúarleiðtoga að hjálpa sér við að gera FH-ingum kleift að sækja mikilvægan leik fyrir hádegi á morgun.

FH tekur á móti Þrótti Reykjavík í efri hluta Bestu deildar kvenna á morgun. Leiktíminn er óvenjulegur, leikurinn hefst klukkan ellefu fyrir hádegi og hafa FH-ingar því gripið til þess ráðs að biðla til bareigenda og trúarleiðtoga um hjálp.

FH háir nú harða baráttu við Breiðablik um Íslandsmeistaratitilinn og hefur leikurinn á morgun mikla þýðingu fyrir FH-inga.

„Ljóst er að þessi óvenjulegi leiktími skarast við hefðbundið messuhald í kirkjum bæjarins. Við beinum því þeim auðmjúku tilmælum til presta og annarra trúarleiðtoga Hafnarfjarðar að fresta öllu messuhaldi í fyrramálið, svo tryggja megi að trúrækið stuðningsfólk FH geti mætt á völlinn með góðri samvisku,“ segir í orðsendingu frá FH-ingum.

„Þetta teljum við farsæla og eðlilega lausn, enda alkunn­að að stuðningur við FH er hin eina sanna trú Hafnfirðinga. Verður enda seint talið að nokkur æðri máttarvöld hafi hag af því að stúkurnar í Kaplakrika standi hálftómar.“

Jafnframt er þeim tilmælum beint til bareigenda bæjarins að loka öldurhúsum sínum tímalega í kvöld.

„Svo koma megi í veg fyrir að stuðningsfólk mæti ryðgað til leiks á morgun.“

Mikilvægi stundarinnar krefjist þess að menn mæti bæði andlega og líkamlega undirbúnir fyrir leikinn. 

Leikur FH og Þróttar Reykjavíkur hefst klukkan ellefu á morgun og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×