Polestar 3 verður frumsýndur í október Sænski bílaframleiðandinn Polestar mun frumsýna nýjustu viðbótina í sínu framboð í Kaupmannahöfn, þann 12. október næstkomandi. Um er að ræða rafjepplinginn Polestar 3. Bílar 1. október 2022 07:01
Mjög sérstakt að styrkja rafbílakaup eins mikið þegar margir hefðu keypt sér bílinn án stuðnings Strætó fékk einn milljarð úr ríkissjóði í fyrra á meðan endurgreiðslur vegna rafbíla námu níu milljörðum króna - nokkuð sem sérfræðingur hjá Alþýðusambandi segir rosalegan mun. Mjög sérstakt sé að stjórnvöld dæli peningum í óskilvirkar loftslagsaðgerðir í stað þess að styðja betur við almenningssamgöngur. Innlent 30. september 2022 22:32
Einn milljarður í strætó en níu í vistvæna bíla Alþýðusamband Íslands hefur birt samantekt þar sem borinn er saman opinber stuðningur ríkisins við almenningssamgöngur og stuðningur þess við niðurgreiðslu vistvænna bíla. Viðskipti innlent 30. september 2022 13:24
EQ-sýning í nýju húsnæði Mercedes-Benz Það verður rafmögnuð stemmning á Krókhálsi 11 á morgun, laugardag þar sem Bílaumboðið Askja mun halda sérstaka EQ-sýningu milli kl. 12-16. Bílar 30. september 2022 07:01
Smart #1 - Rafhlaðbakur í heimsklassa Smart er merki sem margt fólk þekkir og einkennist af litlum skilvirkum bílum sem koma notendum frá einum stað til annars án mikillar fyrirhafnar og viðhafnar. Smart hefur hingað til ekki verið hátt hlutfall bílaflota Íslendinga. En Smart #1 ætlar sér að breyta því og mun mæta með látum á næsta ári. Bílar 29. september 2022 07:01
Gríðarlegt eignatjón, einhverjir virtu lokanir að vettugi Bílaleigur sitja uppi með gríðarlegt tjón eftir óveðrið á sunnudag. Hjá einni þeirra skemmdust hátt í þrjátíu bílar. Vegagerðin hefði mátt loka vegum fyrr og manna lokanir að sögn upplýsingafulltrúa. Verið er að skoða að setja upp fleiri lokunarhlið. Innlent 28. september 2022 20:01
Ford frestar afhendingu 45.000 F-150 bíla vegna merkjavanda Birgjar Ford hafa brugðist þegar kemur að afhendingu Ford-merkja á bíla framleiðandans. Það er skortur á bæði hinu fræga sporöskjulaga bláa Ford-merki sem og tengunda merkjum. Af þessum sökum hefur framleiðandinn frestað afhendingu um 45.000 bíla vegna skortsins. Bílar 26. september 2022 07:00
Toyota lokar verksmiðju sinni í Rússlandi Fyrirtækið mun áfram þjónusta Toyota eigendur í Rússlandi en ekki framleiða neina bíla þar. Fyrirtæki hafa mörg hver yfirgefið Rússland í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Nú hefur Toyota bæst við á þann lista. Bílar 24. september 2022 07:00
Ný Toyota skorar Tesla Model 3 á hólm Toyota kynnti nýlega rafbíl sem líklega mun bera nafnið bZ3 og er ætlað að koma á markað í Evrópu eftir að verða fyrst settur á markað í Kína. Bíllinn er einn af þeim fyrstu í einni umfangsmestu rafvæðingu sögunar hjá einum og sama framleiðandanum. Bílar 23. september 2022 07:00
Meiri ævintýri Þegar ég bjó og starfaði í Stokkhólmi fyrir nokkrum árum var ferð mín til og frá vinnu bundin nokkuð föstum skorðum. Ég lagði af stað að heiman á svo til sama tíma, stóð á sama stað á brautarpallinum, beið eftir sama vagni með lestinni, skipti um lest í Gamla Stan, fór út á Medborgarplatsen hvar ég notaði alltaf sama útganginn og labbaði svo um 800m leið eftir sömu götunni í vinnuna. Þar biðu mín fjölbreyttari vinnudagar. Skoðun 22. september 2022 07:01
Stefnt á umhverfisvænasta bílaþvott sem völ er á Löður rekur 15 bílaþvottastöðvar á Íslandi og á hverju ári fara um 250 þúsund bílar í gegnum þvott á stöðvum fyrirtækisins. Í bílaþvotti þarf að nota sápur og önnur hreinsiefni ásamt því að nota mikið af vatni. Bílar 20. september 2022 07:01
Þriðja kynslóð Kia Niro frumsýnd Nýr Kia Niro verður frumsýndur um allt land í dag, laugardag frá 12-16. Þetta er þriðja kynslóð Niro sem hefur verið einn allra vinsælasti bílinn frá Kia á Íslandi og um allan heim undanfarin ár. Kia Niro mætir nú til leiks með nýtt útlit og enn rafmagnaðri en áður. Bílar 17. september 2022 07:00
Uppsetning og umsýsla rafhleðslukerfa í fjölbýli er á ábyrgð húsfélags Hröð þróun hefur verið í þjónustu tengdri rafbílum á síðustu misserum. Sú þróun mun halda áfram hvað sem líður afnámi tolla og upptöku kílómetragjalds og vegtolla. Skoðun 16. september 2022 14:01
Mikilvægt að stuðla að því að allir geti eignast vistvæna bifreið Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir ekki standa til að hætta að styðja við kaup á rafbílum. Markmiðin um orkuskipti til að ná markmiðum í loftslagsmálum séu afar mikilvæg. Innlent 16. september 2022 06:34
Hefur ekið um á öllum flottustu bílum heims Í raunveruleikaþættinum LXS á Stöð 2 í gær fóru nokkrar stelpur yfir það hvernig venjulegur dagur er í lífi þeirra. Lífið 15. september 2022 10:31
Tesla opnar fimm Supercharger stöðvar fyrir aðra en Tesla eigendur Tesla hefur nú hafið tilraunaverkefni sem felur í sér að opna á nokkrar Supercharger hraðhleðslustöðvar fyrir notendur og eigendur rafbíla af öðrum tegundum en Tesla. Tesla eigendur geta haldið áfram að nota þessar stöðvar eins og þeir hafa alltaf gert og Tesla mun fylgjast náið með nýtingu á hverri stöð. Bílar 15. september 2022 07:01
Lakkverkstæði BL innleiðir nýja umhverfisvænni málningarlínu BL hefur tekið í notkun nýtt málningarkerfi frá þýska lakkframleiðandanum Glasurit sem framleiðir bílalökk fyrir marga helstu lúxusbílaframleiðendur heims. Uppsetning og innleiðing kerfisins er liður í því að uppfylla ströngustu gæðastaðla Jaguar Land Rover, BMW og Mini á þessu sviði, en áður hafði fyrirtækið tekið í notkun sérstakt réttingaverkstæði fyrir bíla smíðaða úr áli frá sömu framleiðendum. Nýja kerfið inniheldur meðal annars háþróaðan litaskanna sem greinir mjög nákvæmlega liti. Bílar 14. september 2022 07:01
Segir að meðalverð á rafbílum geti hækkað um tæpar tvær milljónir Meðalverð á rafbílum gæti hækkað um tæpar tvær milljónir þegar þær ívilnanir sem hafa verið veittar vegna rafbílakaupa renna sitt skeið. Innlent 13. september 2022 07:11
„Gamaldags skattahækkun“ Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, gagnrýnir áform stjórnvalda um að hækka vörugjöld á bifreiðum. Hann segir að reikna megi að verð á rafbílum hækki um 600.000 krónur til milljónar á bifreið á næsta ári. Innlent 12. september 2022 22:30
Hækka lágmark bifreiða- og vörugjalda Breytingar verða gerðar á vörugjaldi við innflutning ökutækja samkvæmt fjárlagafrumvarpi sem kynnt var fjölmiðlum í dag. Þá verða einnig gerðar breytingar á bifreiðagjaldi en tekjur ríkissjóðs vegna þessara flokka hefur dregist saman síðustu ár. Bílar 12. september 2022 10:22
Nýr Nissan X-Trail e-Power Nissan hefur kynnt fjórðu kynslóð af jepplingnum X-Trail, sem kynntur verður hjá BL í desember. X-Trail státar af háþróuðu fjórhjóladrifi. Bíllinn er búinn bensínvél sem hleður orku beint inn á rafhlöðu bílsins þaðan sem 94 kW rafmótorinn notar hana. Viðskipti 11. september 2022 07:01
Volkswagen rafbílar frá Kína án ábyrgðar og ekki þjónustaðir Borið hefur á því að Volkswagen ID. bifreiðar hafi verið fluttar til Evrópu án aðkomu viðurkenndra umboðsaðila Volkswagen og gangi þar kaupum og sölum. Umræddum Volkswagen ID. bifreiðum fylgir ekki alþjóðleg verksmiðjuábyrgð þrátt fyrir villandi fullyrðingar viðkomandi söluaðila. Að auki geta viðurkenndir sölu- og þjónustuaðilar í Evrópu ekki sinnt þjónustu og viðhaldi, þar með töldum ábyrgðaviðgerðum og öryggisinnköllunum. Bílar 10. september 2022 07:00
Volkswagen ID. Buzz - Bíll tækifæranna Volkswagen Rúgbrauð er sennilega einn frægasti bíll mannkynssögunnar. Bjallan og Rúgbrauðið ásamt Toyota Hilux og Ford Mustang. Nokkrar goðsagnir sem allar eiga sinn sess í sögunni. Nýjasti bíll Volkswagen, ID. Buzz er tilraun Volkswagen til að rafvæða hið goðsagnakennda Rúgbrauð. Bílar 7. september 2022 07:02
Kaliforníuríki borgar íbúum fyrir bíllausan lífsstíl Kaliforníuríki er að reyna að gera allt sem í þess valdi stendur til að minnka umferð og útblástur frá umferð. Nú er búið að setja lög sem heimila ríkinu að greiða íbúum þess 1000 dollara fyrir að eiga ekki bíl. Bílar 6. september 2022 07:00
Sverrir á Ystafelli ætlar sér að stækka bílasafnið sitt Þeim fjölgar og fjölgar alltaf bílunum á safninu á Ystafelli í Köldukinn hjá Sverri Ingólfssyni, sem ræður þar ríkjum. Safnið er sprungið og ætlar Sverrir, sem er í hjólastól, að fara að byggja nýjar byggingar til að stækka safnið og koma fleiri bílum þar inn. Innlent 4. september 2022 21:05
Fagnar því að olíufélögin séu farin að taka við sér en segir það löngu tímabært Bensínlítrinn er kominn undir 300 krónur hjá Costco og virðast önnur félög einnig lækka sín verð um þessar mundir. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeiganda segir þetta löngu tímabært þar sem Ísland sé með hæsta bensínverð í Evrópu. Þó undirliggjandi verðlækkanir séu til staðar sé mikil óvissa fram undan og viðbúið að eldsneytisverð verði enn hátt. Innlent 4. september 2022 16:22
Hvernig risajeppinn komst í kaldan faðm Norður-Íshafsins og aftur burt Það reyndist þrautin þyngri fyrir íslenska sérfræðinga Arctic Trucks að bjarga Ford F-150 jeppa sem fór niður um ísinn í Norður-Íshafi í könnunarleiðangri fyrir umfangsmikið ferðalag svissneskra samtaka sem ætla sér að keyra á báða póla jarðar. Covid-19, innrás Rússa í Úkraínu og flökkusögur um að gríðarlegt magn eldsneytis hafi farið niður með bílnum auðvelduðu ekki verkið. Björgunin tókst hins vegar vonum framar. Innlent 4. september 2022 07:00
Dacia Duster á toppnum þriðja mánuðinn í röð Alls voru nýskráðar 1649 bifreiðar í nýliðnum ágúst mánuði. Þar af voru 236 Toyota bifreiðar. 187 Kia bifreiðar og 128 Suzuki bifreiðar. Dacia var í fjórða sæti með 128 bíla, þar af 124 Duster bifreiðar sem gerir Duster vinsælustu undirdegundina. Tölurnar byggja á upplýsingum frá Samgöngustofu. Bílar 4. september 2022 07:00
Polestar 6 LA Concept selst upp á einni viku Sænski bílaframleiðandinn Polestar kynnti Polestar 6 LA Concept bílinn í ágúst og opnaði svo í framhaldinu fyrir pantanir á bílnum. Einungis 500 eintök verða framleidd og þau eru nú uppurin. Bílar 2. september 2022 07:01
Sveinn Friðrik nýr rekstrarstjóri Arctic Trucks International Sveinn Friðrik Sveinsson hefur verið ráðinn rekstrarstjóri Arctic Trucks International ehf. Viðskipti innlent 1. september 2022 13:18