Menning

Fjórðungur ekki með bókasafnskort

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Tuttugu borgarfulltrúar Reykjavíkur sem svöruðu fyrirspurn Vísis um bókasafnanotkun og bóklestur.
Tuttugu borgarfulltrúar Reykjavíkur sem svöruðu fyrirspurn Vísis um bókasafnanotkun og bóklestur.

Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur lagði fram tillögu fyrr í mánuðinum um könnun á bókasöfnum borgarinnar og þjónustu þeirra. Meirihlutinn hyggst blása til sóknar en minnihlutinn óttast að þjónustan verði skorin niður. En eiga borgarfulltrúar borgarinnar bókasafnskort og heimsækja þeir söfnin?

Vísir fjallaði í síðustu viku um tillögu sem borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar lögðu fram á fundi menningarráðs þann 21. október þess efnis að kannað yrði hvort mætti veita sambærilega eða betri bókasafnsþjónustu með færri útibúum Borgarbókasafns Reykjavíkur og samnýtingu við skólabókasöfn.

Afgreiðslu tillögunnar var frestað og því hvorki búið að samþykkja hana né hafna. Í tillögunni er lagt til að fjöldi og staðsetning útibúa verði metin og skoða eigi sameiningar og samnýtingu húsnæðis, aðstöðu og starfsfólks með skólabókasöfnum. Markmiðið sé að ná fram hagræðingu án þess að skerða aðgengi að bókasafnsþjónustu.

Tillöguflytjendur vilja bera saman rekstrar- og húsnæðiskostnað útibúa, aðsókn, útlán, opnunartíma og nýtingu húsnæðis. Sérstaklega verði reiknaður kostnaður á hvern gest og hvert útlán. Orðalag tillögunnar um að kanna ætti hvort fækka mætti útibúum fór fyrir brjóstið á mörgum og flykktist fólk á samfélagsmiðla til að gagnrýna tillöguna.

Sjá einnig: „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“

Rúnar Frey Gíslason, formaður menningarráðs, sagði í samtali við Vísi síðastliðinn föstudag að hugmyndin að baki tillögunni væri að efla bókasöfnin. Ekkert kæmi fram í tillögunni um að minnka ætti þjónustuna heldur ætti þvert á móti að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar.

Blaðamaður Vísis sendi í kjölfar fregnanna spurningar á alla 23 sitjandi borgarfulltrúa í Reykjavík til að forvitnast hvort þeir ættu bókasafnskort, hvert væri þeirra hverfisbókasafn, hvenær þeir hefðu síðast farið á bókasafn og hvað þeir hefðu lesið síðast.

Svör bárust frá tuttugu borgarfulltrúum en þeir sem svöruðu ekki voru Brynjar Níelsson og Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir í Sjálfstæðisflokki og Silja Sóley Birgisdóttir í Sósíalistaflokki.

Ýmislegt kemur fram í svörum borgarfulltrúanna, meðal annars að hátt hlutfall borgarfulltrúa á bókasafnskort. Af þeim tuttugu sem svöruðu eru fimmtán með bókasafnskort, 75 prósent, sem hlýtur að teljast nokkuð gott. 

Bókasöfnin gefa ekki út nákvæman fjölda yfir bókasafnskortshafa en samkvæmt könnun Hagstofunnar frá desember 2025 var hlutfall lánþega í Reykjavík á árunum 2023-25 um 15,3 prósent.

Þegar svör fulltrúanna um hverfisbókasöfn eru skoðuð trónir Borgarbókasafnið í Grófinni á toppnum en rúmur helmingur svarandi hefur það sem sitt hverfisbókasafn. Þar á eftir kemur Gerðuberg sem þrír borgarfulltrúanna flokka sitt hverfisbókasafn og svo deilast hinir sex á söfnin í Kringlunni, Spönginni og Árbæ.

Borgarfulltrúarnir lesa nokkuð fjölbreytt úrval bóka en þó eru þrjár bækur sem fleiri en einn borgarfulltrúi hefur verið að lesa. Það eru nýútkomnu íslensku bækurnar Aðskotahlutir eftir Einar Lövdahl og Varkár eftir Margréti Bjarnadóttur og skáldsagan Yesteryear eftir Caro Claire Burke sem hefur notið gríðarlega vinsælda um allan heim.

Hér að neðan má sjá svör borgarfulltrúanna:

Albert Guðmundsson - Sjálfstæðisflokkur

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Já, ég á bókasafnskort.“

Hvert er þitt hverfisbókasafn?

„Ætli það sé ekki Kringlan. Þjóðarbókhlaðan verður samt alltaf „mitt“ bókasafn.“

Albert Guðmundsson er sjöundi maður á lista Sjálfstæðisflokksins.Vísir/Vilhelm

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi?

„Fór á bókasafnið á Eiðistorgi fyrr í mánuðinum. Var á Seltjarnarnesi og hafði tíma til að drepa.“

Hver er síðasta bók sem þú last?

„Aðskotahlutir eftir Einar Lövdahl.“


Ari Edwald - Miðflokkur

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Nei, ég sæki lítið bókasöfn núorðið og kaupi minna af bókum á pappír, en hlusta mikið og kaupi rafbækur á Storytel og Audible.“

Hvert er þitt hverfisbókasafn?

„Ég bý í Seljahverfi í Breiðholti, svo það myndi vera Borgarbókasafnið í Gerðubergi.“

Ari Edwald er oddviti Miðflokksins í borginni.Vísir/Sigurjón

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi?

„Ég fór síðast á mitt gamla bóksafn í Sólheimum fyrir sólmyrkvann og fékk gleraugu, eftir að hafa komið að tómum kofanum á öðrum stöðum.“

Hver er síðasta bók sem þú last?

„Var að klára Stalín; ævi og aldurtili og Óvinafagnað, báðar í annað sinn.“


Bjarni Fritzson - Sjálfstæðisflokkur

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Já, ég á bókasafnskort.“

Hvert er þitt hverfisbókasafn?

„Gerðuberg.“

Bjarni Fritzson átti mest seldu barnabók ársins 2024.Vísir/Vilhelm

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi?

„Seinasta bókasafn sem ég heimsótti er skólabókasafnið í Melaskóla „svakalegasta lestrarskóla landsins“ - þegar ég mætti á afmælishátíðina þeirra 5. október.“

Hver er síðasta bók sem þú last?

„Ég er um þessar mundir að lesa Paulo Coelho-bækurnar mínar aftur, var að klára Veronika ákveður að deyja. Svo bíð ég spenntur eftir jólabókaflóðinu 2026, margir spennandi titlar að koma út. Veit um fátt betra en að lesa góða bók í dimmasta skammdeginu.“


Bjarni Guðjónsson - Sjálfstæðisflokkur

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Nei.“

Hvert er þitt hverfisbókasafn? 

„Borgarbókasafnið Grófinni.“

Bjarni Guðjónsson er annar á lista Sjálfstæðisflokksins í borginni.Vísir/Vilhelm

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi? 

„Ég fer nokkuð reglulega með syni mínum og hjálpa honum að velja sér bók fyrir heimalestur.“

Hver er síðasta bók sem þú last? 

„Ég les mér lítið til gamans en ég hlusta mjög mikið á hljóð bækur og er núna að hlusta á Allar litlu lygarnar eftir Evu Björgu Ægisdóttur.“


Bjarnveig Birta Bjarnadóttir - Samfylking

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Nei, en börnin mín eiga kort og nota mikið.“

Hvert er þitt hverfisbókasafn?

„Spöngin.“

Bjarnveig Birta býr í Grafarvoginum.

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi?

„Fyrir tveimur vikum. Ég fór þangað með börnunum mínum bæði til að leigja bækur fyrir þau en líka til að skoða og eiga rólega stund saman.“

Hver er síðasta bók sem þú last?

„Demon Copperhead er síðasta bók sem ég kláraði. Ég er núna að lesa Aðskotahluti.“


Björg Magnúsdóttir - Viðreisn

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Já við fjölskyldan erum með kort.“

Hvert er þitt hverfisbókasafn?

„Kringlusafn er okkar hverfissafn í 108.“

Björg Magnúsdóttir er forseti borgarstjórnar.Vísir/Vilhelm

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi?

„Fór um daginn með þriggja ára strákinn minn að taka út nýja bókasafnið í Hafnarfirði og fá innblástur - það er sérstaklega vel heppnað! Þar áður eftir leikskólaheimsókn á Kringlusafn sem er mikið tekið.“

Hver er síðasta bók sem þú last?

„Yesteryear í þýðingu Ingunnar Snædal. Spændi hana í mig og mæli heilshugar með!“


Einar Þorsteinsson - Framsókn

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Ég á bókasafnskort (kjörnir fulltrúar fá ekki kort frá borginni).“

Hvert er þitt hverfisbókasafn?

„Mitt hverfisbókasafn er Gerðuberg.“

Einar Þorsteinsson er formaður borgarráðs Reykjavíkur.vísir/einar

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi?

Síðast fór ég í Grófarhús, í barnadeildina til að lesa og leika.

Hver er síðasta bók sem þú last?

„Öld ímyndunaraflsins eftir Berg Ebba Benediktsson fyrir sjálfan mig, en mig minnir að ég hafi síðast lesið úr bókinni Ótrúleg saga um risastóra peru fyrir son minn. Svo vil ég taka fram að það stendur ekki til að loka eða skerða þjónustu bókasafna. Umfjöllun um þetta mál er á villigötum. Við viljum efla bókasöfnin og skólabókasöfnin enda ærið tilefni.“


Guðný María Jóhannsdóttir - Sjálfstæðisflokkur

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Já og ég greiði fyrir það sjálf.“

Hvert er þitt hverfisbókasafn?

„Bókasafnið Árbæ.“

Guðný María er formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur.

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi?

„Í síðustu viku til að skila bók.“

Hver er síðasta bók sem þú last?

„Huldukonan eftir Fríðu Ísberg.“


Hildur Björnsdóttir - Sjálfstæðisflokkur

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Ég á bókasafnskort bæði á Borgarbókasafni og Bókasafni Seltjarnarness, hvorugt gegnum embættið.“

Hvert er þitt hverfisbókasafn?

„Grófarsafnið í Miðborginni en ég hef jafnframt notast við Bókasafn Seltjarnarness.“

Hildur Björnsdóttir er borgarstjóri Reykjavíkur.vísir/einar

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi?

„Ég fór nýverið á Grófarsafn til að skoða ljósmyndasýningu og Borgarbókasafn í Kringlunni til að undirrita samstarfssamning um heimanámsaðstoð fyrir grunnskólabörn á bókasöfnum borgarinnar. Á síðasta kjörtímabili var ég ásamt félögum mínum með vikulega hlaðvarpið Borgina sem tekið var upp í frábærri hlaðvarpsaðstöðu Grófarsafnsins. Ég hef jafnframt fengið góða aðstoð á bókasöfnum borgarinnar við að finna bækur til að vekja áhuga barnanna heima fyrir á lestri. Bókasöfnin okkar eru svo fjölbreytt og öflug og þangað er hægt að sækja svo margvíslega þjónustu. Það eru mikil tækifæri fólgin í því að efla þau enn frekar, ekki síst til að hvetja börn og ungmenni til meiri lesturs.“

Hver er síðasta bók sem þú last?

„Regretting You eftir Colleen Hover og A Different Kind of Power eftir Jacinda Ardern. Uppáhalds bækurnar mínar eru samt The Choice eftir Edith Eger og Englar alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson, ég las hana sem unglingur og þegar lestri lauk las ég hana strax aftur.“


Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir - Miðflokkur

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Já ég á kort.“

Hvert er þitt hverfisbókasafn?

„Grófin.“

Kristín Kolbrún Waage er kennari.Aðsend

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi?

„Fór fyrir um viku síðan. Fer að minnsta kosti tvisvar í mánuði með strákana mína. Þeir spila og velja sér lestrarbækur.“

Hver er síðasta bók sem þú last?

„Ég var að klára að lesa Fía Sól og litla ljónaránið fyrir yngri soninn.“


Lárus Blöndal - Miðflokkur

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Nei.“

Hvert er þitt hverfisbókasafn?

„Árbæjar.“

Lárus Blöndal er stjórnmálafræðingur.

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi?

„Nokkur ár síðan.“

Hver er síðasta bók sem þú last?

„Anatomy of Terror eftir Ali Soufan.“


Líf Magneudóttir - Vinstrið

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Ég á bókasafnskort sem ég kaupi sjálf.“

Hvert er þitt hverfisbókasafn?

„Grófarhúsið er mitt hverfisbókasafn.“

Líf Magneudóttir er annar borgarfulltrúi Vinstrisins.Vísir/Vilhelm

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi?

„Ég fór á bókasafnið síðastliðinn þriðjudag til að skila bókum sem ég fékk lánaðar fyrr í mánuðinum, meðal annars bókinni The Sourdough School.“

Hver er síðasta bók sem þú last?

„Síðasta bókin sem ég las var Rauða perlan sem fjallar um afreksverk hetjunnar Bob Moran og er eftir Henri Vernes. Búið var að afskrifa bókin og ég fékk hana á gjafavagninum í Þjóðarbókhlöðunni þegar ég fór að sjá sýninguna um Benedikt Gröndal í síðustu viku.“


Pétur Marteinsson - Samfylking

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Nei, ég hef ekki verið með bókasafnskort síðan dóttir mín fór að fara þangað sjálf.“

Hvert er þitt hverfisbókasafn?

„Það er í Grófinni, en annars er skemmtilegur lítill skiptibókamarkaður (kassi) við Sundlaug Vesturbæjar sem ég hef nýtt mér og svo hef ég stundum farið á bókasafnið í Norræna húsinu.“

Pétur Marteinsson er oddviti Samfylkingarinnar.

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi?

„Ég fór í heimsókn í mitt gamla bókasafn í Gerðuberg um daginn til að skoða dásamlega starfsemi opna leikskólans Memm. Ég fór síðast í Grófina í sumar til að hitta fólk.“

Hver er síðasta bók sem þú last?

„Ég er að lesa bók Åsne Seierstad, Ofred – Russland från insidan, en þar á undan las ég Varkár eftir Margréti Bjarnadóttur – alveg dásamleg og sérstök bók sem ég mæli eindregið með.“


Regína Ástvaldsdóttir - Samfylking

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Ég á bókasafnskort hjá Borgarbókasafni sem rann út í síðustu viku þannig að ég þarf að endurnýja það.“

Hvert er þitt hverfisbókasafn?

„Hverfisbókasafnið mitt er í Grófinni.“

Regína Ásvaldsdóttir er fyrrverandi bæjarstjóri Mosfellsbæjar.Vísir/Egill

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi?

„Ég fór síðast á bókasafnið í Árborg og fékk mér nokkrar bækur fyrir sumarbústaðadvöl en ég hef líka átt bókasafnskort þar.“

Hver er síðasta bók sem þú last?

„Síðasta bókin sem ég las var Yesteryear eftir Caro Claire Burke.“


Róbert Ragnarsson - Viðreisn

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Ég er með mitt eigið bókasafnskort.“

Hvert er þitt hverfisbókasafn?

„Grófarsafnið og nota líka Þjóðarbókhlöðuna.“

Róbert Ragnarsson er fyrrverandi bæjarstjóri Grindavíkur.

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi?

„Á sunnudag á Þjóðarbókhlöðuna.“

Hver er síðasta bók sem þú last?

„Síðasta skáldsaga sem ég las er Snerting eftir Ólaf Jóhann, en annars er ég oftar að lesa kafla og kafla úr rannsóknum og fræðiritum sem tengjast því sem ég er að vinna með.“


Rúnar Freyr Gíslason - Sjálfstæðisflokkur

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Já, ég er með Menningarkort Reykjavíkur, sem veitir meðal annars aðgang að söfnum borgarinnar og innifelur bókasafnskort. Mér var úthlutað kortinu af menningar- og íþróttasviði þegar ég tók við sem formaður menningarráðs.“

Hvert er þitt hverfisbókasafn?

„Af borgarbókasöfnunum er Grófarsafn næst mínu heimili en svo höfum við fjölskyldan líka heimsótt bókasafn Seltjarnarness reglulega í gegnum tíðina. Það er alltaf gott að fara með börnin á bókasafn, það hefur góð og róandi áhrif á þau.“

Rúnar Freyr er fimmta borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.Vísir/Lýður Valberg

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi?

„Síðasta bókasafn sem ég heimsótti var safnið í Úlfarsárdal en þangað hafði ég ekki komið áður. Ég hafði heyrt hvað það væri vel heppnað og fór þangað fyrr í haust til að skoða sjálfur. Og ég varð ekki fyrir vonbrigðum, alveg frábært safn.“

Hver er síðasta bók sem þú last?

„Ég var að ljúka við nýjustu bók Stefáns Mána um rauðhærða risann Hörð Grímsson, Gleym mér ei. Hún er mjög góð, vel skrifuð og spennandi.“


Sanna Magdalena Mörtudóttir - Vinstrið

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Ég á bókasafnskort. Ég greiddi sjálf fyrir mitt kort.“

Hvert er þitt hverfisbókasafn?

„Hverfisbókasafnið mitt er Borgarbókasafnið Grófinni.“

Sanna Magdalena er oddviti Vinstrisins.Vísir/Anton Brink

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi?

„Ég fór fyrir um mánuði síðan til þess að skila bókum sem ég var búin að lesa og til þess að finna nýjar bækur til þess að lesa. Mér finnst gott að lesa skáldsögur fyrir svefninn til þess að róa hugann eftir annasaman dag.“

Hver er síðasta bók sem þú last?

„Síðasta bókin sem ég las var Heimför (Homegoing) eftir Yaa Gyasi. Það var á köflum erfitt að lesa bókina þar sem hún fjallaði um rasisma en hún fjallaði einnnig um falleg og hrífandi augnablik í lífinu og það var fallegt að lesa um.“


Sigrún Ásta Einarsdóttir - Sjálfstæðisflokkur

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Já, ég á bókasafnskort sem ég fékk ekki í gegnum embættið.“

Hvert er þitt hverfisbókasafn?

„Mitt hverfisbókasafn er í Spönginni.“

Sigrún Ásta Einarsdóttir og Þorkell Siglaugsson ræða málin.Håkon Broder Lund

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi?

„Ég fór síðast á bókasafnið á laugardaginn fyrir rúmri viku með tíu ára dóttur minni. Hún var að leita að bókum um landafræði og norræna goðafræði. Við fengum mjög góða aðstoð við leitina og í leiðinni fékk hún smá kennslu í því hvernig fræðibækur eru flokkaðar. Þegar hún hafði valið bækurnar sem hún vildi fá að láni fengum við okkur sæti og lásum í dágóða stund. Hún sökkti sér niður í sögur úr norrænni goðafræði á meðan ég las áhugavert tímarit.“

Hver er síðasta bók sem þú last?

„Ég vildi gjarnan gefa mér meiri tíma til að lesa sjálf, en undanfarið hef ég meira verið að lesa með stelpunni minni. Ég hef ekki gefið mér tíma til að lesa bók síðan ég tók við nýju hlutverki en síðasta bók sem ég las var What Customers Crave eftir Nicholas J. Webb. Hún fjallar um hvernig fyrirtæki geta skapað framúrskarandi þjónustu og upplifun með því að skilja betur hvað viðskiptavinir kunna að meta, hvað veldur þeim óánægju og hvernig hægt er að mæta þörfum þeirra á öllum stigum þjónustunnar.“


Skúli Helgason - Samfylking

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Ég á bókasafnskort en mesta notkun okkar er í gegnum börnin, einkum dóttur okkar en við förum reglulega saman á bókasafnið til að sækja bækur til lestrarþjálfunar.“

Hvert er þitt hverfisbókasafn?

„Mitt hverfissafn er Grófarsafn - aðalútibú Borgarbókasafnsins.“

Skúli Helgason er reynslubolti í borgarstjórn.vísir/vilhelm

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi?

„Síðasta heimsókn okkar var í byrjun sumars.“ 

Hver er síðasta bók sem þú last?

„Síðasta bók sem ég las var Regime Change eftir Maggie Haberman og Jonathan Swan um makalausa forsetatíð Donalds Trump, einkum fyrsta árið á seinna kjörtímabili hans.“


Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir - Samfylking

Átt þú bókasafnskort (mætti taka fram ef það er fengið í gegnum embættið)?

„Já, ég á bókasafnskort.“

Hvert er þitt hverfisbókasafn?

„Grófarsafn við Tryggvagötu.“

Steinunn nýtti sér umframopnun á Sólheimasafni.

Hvenær fórstu síðast á bókasafn og í hvaða tilgangi?

„Fór síðast í lok júlí. Var í hjólatúr og þurfi að skýla mér fyrir regni þannig að ég kom við á Sólheimasafni. Það var ánægjulegt af því ég leigði og las loksins Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson og Gangandi íkorna eftir Gyrði Elísson.“

Hver er síðasta bók sem þú last?

„Varkár eftir Margréti Bjarnadóttur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.