Lífið samstarf

Spesíur Elenóru: Jóla­klassík sem tekur að­eins 30 mínútur

Freyja
Elenora Rós Georgesdóttir bakari deilir hér með lesendum Vísis uppskrift að spesíum, einföldum og fljótlegum smákökum sem eru orðnar algjör Freyju-klassík.
Elenora Rós Georgesdóttir bakari deilir hér með lesendum Vísis uppskrift að spesíum, einföldum og fljótlegum smákökum sem eru orðnar algjör Freyju-klassík.

Spesíur eru ómissandi með kaffibollanum á aðventunni.

Elenora Rós Georgesdóttir bakari deilir hér uppskrift að spesíum, einföldum og fljótlegum smákökum sem eru orðnar algjör Freyju-klassík. Uppskriftin á sér langa sögu í fjölskyldu hennar og Freyjudroparnir hafa alla tíð verið ómissandi hluti af henni.

„Mamma hefur alltaf gert þessa uppskrift og hún var í raun kveikjan að samstarfinu okkar, enda voru Freyju droparnir alltaf til í bakstursskúffunni á mínu heimili,“ segir Elenóra.

Hún segir að nýjar umbúðir Freyjudropanna hafi verið kærkomið tilefni til að endurvekja þessa yndislegu uppskrift, enda hafi droparnir haldið sínum klassíska stíl.

„Nú gera mágkona mín og mamma hennar líka alltaf spesíur, svo litlu frænkur mínar alast upp við þær á öllum heimilum fjölskyldunnar. Uppskriftin er alls staðar í fjölskyldunni,“ segir Elenóra.

Kökurnar eru fullkomnar með kaffibollanum og ómissandi á jólaborðinu.

Spesíurnar eru tilbúnar á um 30 mínútum, fyrir utan kælitímann. 

Spesíur

Um 30 kökur | Undirbúningur: 15 mín | Bakstur: 10–12 mín | Auðvelt.

Hráefni: 

• 200 g smjör, við stofuhita

• 75 g flórsykur

• 250 g hveiti

• 1 poki af Freyju súkkulaðidropum

Aðferð:

1. Setjið smjör og flórsykur í hrærivélaskál og hnoðið vel saman.

2. Bætið hveitinu við og hnoðið þar til deigið er komið saman og orðið mjúkt og meðfærilegt.

3. Setjið deigið á borð og mótið í kúlu með höndunum.

4. Skiptið deiginu í fjóra jafna hluta og rúllið hvern hluta í jafna lengju.

5. Vefjið lengjurnar inn í sellófan eða bökunarpappír og kælið í að minnsta kosti klukkustund, eða yfir nótt.

6. Hitið ofninn í 180 °C með blæstri.

7. Skerið lengjurnar í jafnar sneiðar og raðið á bökunarplötu klædda bökunarpappír.

8. Bakið í 10–12 mínútur. Hægt er að baka tvær plötur í einu í flestum ofnum.

9. Takið kökurnar úr ofninum og setjið strax einn súkkulaðidropa ofan á hverja köku á meðan þær eru enn heitar. Ekki bíða með það, því hitinn frá kökunum hjálpar súkkulaðinu að festast.

10. Leyfið spesíunum að kólna alveg á plötunni þar til súkkulaðið hefur storknað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.