Frægt fólk meðal handtekinna í New York Smári Jökull Jónsson skrifar 25. september 2026 07:25 Leikkonan Susan Sarandon var á meðal þeirra sem voru handteknir í New York í gær. Vísir/Getty Yfir eitt hundrað voru handteknir á fjölmennum mótmælum í New York í gær í tengslum við ræðu Benjamins Netanyahu forsætisráðherra Ísraels á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Þekktir einstaklingar voru á meðal þeirra sem handteknir voru.
Þúsundir mótmælenda gengu að höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna og kröfðust þess að Ísrael yrði látið sæta ábyrgð vegna stríðsins á Gasa sem og að Bandaríkin myndu hætta hernaðarstuðningi sínum við Ísrael. Einnig tóku yfir fjögur hundruð manns, þar á meðal þekktir einstaklingar og stjórnmálamenn, tóku þátt í setuverkfalli nærri höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna og lokuðu þá hluta First Avenue skömmu áður en Netanyahu flutti ræðu sína. „Ég er fæddur og uppalinn í New York-borg, og það er algjör vanvirðing að Benjamin Netanyahu sé hér. Hann er stríðsglæpamaður og við þolum það ekki," sagði einn mótmælenda. Níu kjörnir fulltrúar á meðal handtekinna Mótmælendur vildu jafnframt vekja athygli á hlutverki New York-borgar sjálfrar í hernaðarstuðningi Bandaríkjanna við Ísrael. Degi áður hafði Lýðræðisdeild sósíalista Bandaríkjanna (NYC-DSA) haldið blaðamannafund á Kennedy-flugvelli þar sem krafist var tafarlausrar stöðvunar á flutningi hergagna og sprengiefna um flugvöllinn. Mótmælendur í New York í gær.Vísir/Getty Fram kom í yfirlýsingu lögreglunnar í New York að 109 hefðu verið handteknir fyrir óspektir en að öllum hefði verið sleppt. Skipuleggjendur sögðu að níu af þeim handteknu væru kjörnir fulltrúar eða frambjóðendur til embættis. Þeirra á meðal var Darializa Avila Chevalier, frambjóðandi Demókrataflokksins í 13. kjördæmi New York-ríkis til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. „Benjamin Netanyahu á heima í Haag, ekki á götum New York-borgar, og allra síst í ræðustóli allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna," sagði Avila Chevalier í yfirlýsingu. Aðrir þekktir einstaklingar voru á meðal handtekinna, meðal annars leikkonan Susan Sarandon og uppistandarinn og leikarinn Hannah Einbinder. Skaut á Mamdani sem svaraði fyrir sig Á meðan mótmælin fóru fram varði Netanyahu framgöngu ríkisstjórnar sinnar í ræðustóli allsherjarþingsins. Í ræðu sinni vísaði hann ásökunum um þjóðarmorð í Gasa alfarið á bug auk þess að segja að Ísrael hefði gripið til aðgerða til að vernda óbreytta borgara Palestínumanna. Hann réðst jafnframt á Zohran Mamdani, borgarstjóra New York, og kallaði hann gyðingahatara og sakaði hann um að dreifa lygum um Ísrael. Zohran Mamdani borgarstjóri New York hafði hótað því að láta handtaka Benjamin Netanyahu kæmi hann til New York.Vísir/Getty Netanyahu fullyrti að frá kjöri Mamdani hefðu margir gyðingar ekki lengur fundið til öryggis í New York. Mamdani svaraði fyrir sig og sakaði Netanyahu um að endurtaka lygar í þeim tilgangi að fegra þjóðarmorð og bætti við að Netanyahu sætti enn handtökuskipun frá Alþjóðlega sakamáladómstólnum. Borgarstjórinn hafði á sínum tíma lofað því í kosningabaráttu sinni að láta handtaka Netanyahu kæmi hann til New York, en hefur síðan viðurkennt að hann hafi ekki vald til að framkvæma slíka handtöku.
Bandaríkin Ísrael Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Innlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Fleiri fréttir Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Sjá meira