Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Freyja Þórisdóttir skrifar 5. september 2026 15:50 Skipuleggjendur mótmælanna sem „Danska fólkið“ stóð fyrir hvöttu alla til þess að mæta með farsíma og danska fánann meðferðis. Facebook/Det Danske folk Mótmæli fara fram víða um Kaupmannahöfn í dag og þar á meðal hefur hópur sem kallar sig „Danska fólkið“ staðið fyrir mótmælagöngu þar sem þau segjast hafna „trúarlegum öfgum, íslamvæðingu, sjaríalögum, pólitískum öfgum“ meðal annars. Gagnmótmæli hófust á sama tíma en þau eru gegn kynþáttafordómum.
Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun danska ríkisútvarpsins Dr.dk en þar segir einnig að lögreglan hafi haft í nógu að snúast vegna mótmælanna. Þá hafi lögreglu ekki verið gert viðvart um skipulögðu mótmælin en í dag er fánadegi til heiðurs dönskum hermönnum fagnað þar í landi einnig. Kylfum beitt í átökunum Þá segir einnig í umfjölluninni að fólk hafi gert tilraun til þess að loka fyrir alla umferð í götum í miðborg Kaupmannahafnar og lögreglan hafi þurft að fjarlæga það með valdi, er fram komi í tilkynningu frá lögreglunni í Kaupmannahöfn á Police Update. Myndir af vettvangi sýna lögreglu beita kylfum í átökum við mótmælendur en líkt og fyrr segir voru í það minnsta tvenn skipulögð mótmæli sem hófust klukkan 12:00 á staðartíma. Það voru „ganga fyrir Danmörku“ við Trianglen í Østerbro og gagnmótmælin við Dag Hammarskjölds Allé, sem er í nokkur hundruð metra fjarlægð frá Trianglen. Í færslu sem birt var á Facebook-reikningi „Danska fólksins“ sagði meðal annars að „það verður gríðarleg fjölmiðlaumfjöllun. DR, TV 2, Radio4, Berlingske, B.T. og aðrir miðlar verða á staðnum“ og voru allir þátttakendur hvattir til þess að skarta dönsku fánalitunum og taka nóg af myndböndum frá mótmælunum til þess að deila áfram. Gagnmótmælin, sem hófust einnig klukkan tólf, voru skipulögð af Samtökum gegn kynþáttafordómum og mismunun (á dönsku Fællesinitiativet mod Racisme og Diskrimination) en samkvæmt annarri frétt Dr.dk um málið mætti þar fólk með borða sem á stóðu skilaboð líkt og „Rasismi? Fjandinn hafi það“ og „Innflytjendur velkomnir!“ Þrír handteknir Þá er þar haft eftir lögreglunni að í það minnsta þrír hafi verið handteknir það sem af er degi og að þeir séu sakaðir um ofbeldi gegn lögreglu, vörslu flugelda og vörslu fíkniefna. Lögreglufólk hafi staðið í ströngu og þá sér í lagi þar sem mótmælagöngurnar mættust við Østerport. Ráðamenn fimm Evrópuríkja, Danmerkur, Hollands, Þýskalands, Austurríkis og Grikklands hittust í Kaupmannahöfn í gær, föstudaginn 4. september, og samþykktu áform um stofnun brottfararmiðstöðva utan ESB, er fram kom í frétt DR.dk. Þar sagði einnig að saman muni þau ryðja brautina fyrir strangari innflytjendastefnu í ESB. Fréttin hefur verið uppfærð.
Danmörk Lögreglumál Kynþáttafordómar Trúmál Innflytjendamál Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira