Erlent

Á­rás á höfuð­stöðvar Öryggis­stofnunar Úkraínu

Samúel Karl Ólason skrifar
Kænugarður hefur orðið fyrir umfangsmiklum árásum að undanförnu. Níu daga í röð.
Kænugarður hefur orðið fyrir umfangsmiklum árásum að undanförnu. Níu daga í röð. AP/Francisco Seco

Rússneskur sjálfsprengidróni hæfði í dag höfuðstöðvar úkraínsku leyniþjónustunnar sem kallast Öryggisstofnun Úkraínu (SBU). Forseti Úkraínu segir að drónanum hafi verið miðað á skrifstofu yfirmanns leyniþjónustunnar og að leiðtogum SBU hafi verið skipað að svara fyrir sig með sambærilegum hætti.

Að minnsta kosti níu eru særðir eftir árásina sem var gerð í hjarta gömlu borgarinnar í Kænugarði en höfuðstöðvar SBU eru á móti dómkirkju Sankti Sófíu, sem er á minjaskrá UNESCO. Þar nærri má einnig finna sendiráð ýmissa ríkja.

Þetta er fyrsta árásin sem er gerð á höfuðstöðvar SBU en hingað til hafa Rússar forðast árásir á bygginguna.

Sjá einnig: Á­sakanir á víxl milli leyni­þjónusta eftir skot­hríð í Kænu­garði

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, tjáði sig um árásina í dag. Hann sagðist hafa skipað Olesandr Poklad, yfirmanni SBU, að svara fyrir sig með sambærilegum hætti. Forsetinn tók sérstaklega fram að svarið ætti að endurspegla árás Rússa og að úkraínski herinn myndi styðja aðgerðina.

Í öðru tísti sagðist Selenskí þegar hafa rætt við Poklad. Búið væri að velja skotmark svarárásarinnar og hún yrði gerð á réttum tíma til að auka líkur á því að hún heppnaðist.

Utanríkisráðherra Úkraínu segir að um töluverða stigmögnun sé að ræða sem krefjist viðbragða. Þá bendir hann á að Rússar hafi gert þessa árás á sama tíma og verið sé að reyna að blása nýju lífi í friðarviðræður en þeir Jared Kushner og Steve Witkoff, tengdasonur og vinur Donalds Trump, eru sagðir ætla til Moskvu og svo Kænugarðs um helgina.

Kushner og Witkoff hafa litlum sem engum árangri náð í viðræðunum en þeir fóru síðast á fund Vladimírs Pútín í Moskvu í janúar. Þeir hafa hvorugur farið til Kænugarðs áður.

Hvernig þeir, og þá sérstaklega Witkoff, hafa haldið á spöðunum hvað varðar stríðið í Úkraínu hefur þó lengi verið gagnrýnt af ráðamönnum í Evrópu og öðrum.

Pútín sagði á blaðamannafundi fyrr í vikunni að hann og hans menn gætu hæglega unnið með fólki sem þeir „þekkja vel og treysta“. Var hann þar að tala um Kushner og Witkoff.

Nýir drónar og fleiri árásir

Litlar hreyfingar verða á víglínunni í austurhluta Úkraínu en bæði ríki virðast setja sífellt meiri þunga í langdrægar árásir. Úkraínumenn leggja mikla áherslu á olíuvinnsluinnviði og hagkerfi Rússlands.

Rússar gera einnig slíkar árásir en hafa aukið á árásir sínar á óbreytta borgara. Mannfall þeirra í Úkraínu hefur aukist til muna að undanförnu.

Rússar eru farnir að beita nýrri kynslóð Geran/Shahed sjálfsprengidróna sem eru þotuknúnir. Þannig ferðast þeir mun hraðar en fyrri kynslóðir drónanna og gerir það Úkraínumönnum erfiðara um vik með að skjóta þá niður.

Þetta er níundi dagurinn í röð þar sem Rússar hafa gert árásir á Kænugarð. Kyiv Independent segir höfuðborgina verða fyrir nánast linnulausum árásum áðurnefndra dróna eða skotflauga. Úkraínumenn eru sérstaklega viðkvæmir fyrir skotflaugum vegna skorts á flugskeytum í Patriot-loftvarnarkerfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×