Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn Samúel Karl Ólason skrifar 14. ágúst 2026 16:07 Framkvæmdirnar við veislusalinn eru langt á veg komnar. Þrátt fyrir að dómarar hafi nokkrum sinnum sett sig gegn þeim og sagt þær ólöglegar hafa þeir leyft þeim að halda áfram. AP/Tierney L. Cross Donald Trump biðlaði í dag til Hæstaréttar Bandaríkjanna um að fá leyfi til að halda áfram með byggingu veislusalsins á lóð Hvíta hússins. Framkvæmdirnar voru stöðvaðar af alríkisdómara í vor, eftir að verndarsamtök höfðuðu mál gegn ríkisstjórn Trumps.
Sú stöðvun var svo staðfest af þremur öðrum dómurum i síðustu viku. Það var gert á þeim grunni að þingið hefði ekki samþykkt framkvæmdir ríkisstjórnarinnar, sem hefur þegar rifið niður hluta Hvíta hússins til að rýma fyrir veislusalnum, sem á að vera um 8.400 fermetrar að stærð. Dómararnir sögðu í síðustu viku að Trump mætti ekki samkvæmt lögum taka einhliða ákvarðanir um framkvæmdir sem þessar. Framkvæmdirnar ofanjarðar ættu að vera stöðvaðar en dómararnir gáfu ríkisstjórninni frest til 21. ágúst ef ske kynni að úrskurðinum yrði áfrýjað. Tveir af dómurunum þremur sögðu að þingið ætti að ráða því hvort veislusalurinn yrði reistur á lóð Hvíta hússins. Forsetinn gæti ekki gert það upp á sitt eindæmi. Þriðji dómarinn var ósammála á þeim grunni að verndarsamtökin sem höfðuðu málið hefðu ekki beina aðild að málinu og því hefði málsókn þeirra ekki átt að vera tekin fyrir. Svona á veislusalurinn að líta út að innan.Hvíta húsið Lögmenn forsetans hafa nú beðið hæstarétt um að fella úrskurð dómaranna úr gildi. Í beiðninni til Hæstaréttar skrifar John Sauer, hæstaréttarlögmaður ríkisstjórnarinnar, að lögbannið sé ólögmætt. Þar að auki sé framkvæmdin nauðsynleg þjóðaröryggi Bandaríkjanna, samkvæmt AP fréttaveitunni. Dómarar á nokkrum stigum hafa lýst yfir efasemdum um framkvæmdirnar og jafnvel sagt þær ólöglegar. Þær hafa þó alltaf fengið að halda áfram. Framkvæmdir hafa staðið yfir í um tíu mánuði og ríkisstjórnin segir að um 65 prósentum þeirra sé þegar lokið. Teikning af veislusalnum við hlið Hvíta hússins.Hvíta húsið Sagði Trump mega rífa Frelsisstyttuna ef hann vildi Hvíta húsið tilkynnti að til stæði að byggja veislusalinn síðasta sumar. Í október var búið að rífa austurálmu Hvíta hússins en það var gert án alls samráðs við eftirlitsaðila sem ættu að hafa eitthvað um málið að segja. Trump hefur haldið því fram að framkvæmdirnar undir veislusalnum séu gífurlega mikilvægar, þar sem verið er að koma fyrir innviðum sem snúa að þjóðaröryggi. Þá á að hafa einhvers konar drónaflugvöll ofan á veislusalnum. Í dómsal fyrr í sumar hélt lögmaður ríkisstjórnar Trumps því fram að forsetinn hefði beint vald yfir vel þekktum opinberum byggingum. Þá sagði lögmaðurinn að ef hann vildi gæti Trump einn síns liðs látið rífa Frelsisstyttuna og jafnvel Hvíta húsið. Málflutningur ríkisstjórnarinnar hefur tekið nokkrum breytingum á undanförnum mánuðum. Trump sagði reglulega í upphafi að veislusalur væri nauðsynlegur og búið væri að kalla eftir honum í áratugi. Nú snýr málflutningurinn að mestu að því að veislusalurinn sé aukaatriði. Aðalatriðið séu endurbætur sem eru að eiga sér stað neðanjarðar, þar sem verið er að gera byrgi og samskiptamiðstöðvar fyrir herinn og lífverði forsetans, svo eitthvað sé nefnt.
Bandaríkin Donald Trump Hæstiréttur Bandaríkjanna Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Sjá meira