Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. júlí 2026 07:10 Eftir að dómstólar komust að þeirri niðurstöðu að Trump gæti ekki vísað til neyðarréttar til að réttlæta upptöku tolla án samráðs við þingið, hafa stjórnvöld leitað frumlegra leiða til að koma vilja sínum fram. Getty/Kevin Carter Nýir tollar Bandaríkjanna gegn yfir 80 ríkjum tóku gildi í nótt, eftir að tollar sem komið var á í kjölfar þess að dómstólar úrskurðuðu „Frelsisdags“-tolla Donald Trump ólögmæta runnu út.
Nýju tollarnir eru á bilinu tíu til 12,5 prósent en athygli vekur að þeir eru lagðir á með vísan til löggjafar gegn vinnuþrælkun. Það er að segja, Bandaríkjastjórn réttlætir tolllagninguna á þeirri forsendu að umrædd ríki stundi innflutning á vörum sem framleiddar eru með vinnuþrælkun. Frelsisdagstollarnir, sem upphaflega voru himinháir og komið á til að „leiðrétta“ viðskiptahalla milli Bandaríkjanna og annarra ríkja, voru dæmdir ólöglegir af Hæstarétti. Bandaríkin vinna nú í því að endurgreiða þau gjöld sem voru innheimt en heildarupphæðin er sögð nema um 160 milljörðum dala. Í kjölfarið lögðu stjórnvöld tíu prósent toll á allan innflutning á grundvelli laga sem heimila inngrip af hálfu forsetans vegna greiðsluvanda milli Bandaríkjanna og annarra ríkja. Það úrræði gilti þó aðeins í 150 daga. Meðal þeirra ríkja sem verða nú tolllögð á þeirri forsendu að þau hafi ekki innleitt lög gegn vinnuþrælkun eru aðildarríki Evrópusambandsins, Kanada og Kína.
Bandaríkin Donald Trump Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira