Viðskipti innlent

Fluttu eitt prósent færri far­þega en í júní á síðasta ári

Atli Ísleifsson skrifar
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að júnímánuður marki upphaf sumarsins hjá félaginu.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að júnímánuður marki upphaf sumarsins hjá félaginu. Vísir/Lýður

Icelandair flutti 545 þúsund farþega í liðnum júnímánuði sem er eitt prósent færri en í júní á síðasta ári.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. Þar segir að þar af hafi 35 prósent á leið til Íslands, 19 prósent frá Íslandi, 41 prósent voru tengifarþegar og 5 prósent ferðuðust innanlands.

„Farþegum frá Íslandi fjölgaði um 12% á milli ára og farþegum innanlands um 11%. Eftirspurn eftir ferðum til og frá Íslandi er áfram sterk sem endurspeglar núverandi áherslu félagsins á þessa markaði.

Sætanýting var 86,5% og stundvísi 84,9%. Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 16% og fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum, jukust um 6%.

Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 4% á milli ára, sem skýrist af aukinni nýtingu sparneytnari flugvéla, áframhaldandi áherslur á umbætur í rekstri og hárri sætanýtingu,“ segir í tilkynningunni. 

Eftirspurnin áfram sterk

Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að júnímánuður marki upphaf háannar sumarsins hjá félaginu og hafi sætanýting verið mjög góð. 

„Eftirspurn eftir ferðum frá Íslandi var áfram sterk og fjölgaði farþegum á þeim markaði um 12% á milli ára. Þá jókst innanlandsflug einnig milli ára.

Við höldum áfram að leggja ríka áherslu á áreiðanlega þjónustu, samhliða áframhaldandi flotaendurnýjun og almennum rekstrarumbótum. Þetta skilaði sér meðal annars í 4% samdrætti á kolefnislosun á hvern tonnkílómetra og minni eldsneytisnotkun,“ segir 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×