Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Kjartan Kjartansson skrifar 15. júní 2026 09:20 Donald Trump fylgist með bardaga í sérstöku búri sem sett var upp á lóð Hvíta hússins í tieflni af áttræðisafmæli hans. AP/Alex Brandon Keppandi sem tók þátt í bardagamóti við Hvíta húsið í tilefni af afmæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta í gær kallaði Michelle Obama, fyrrverandi forsetafrú, karlmann í viðtali eftir bardaga. Áhorfendur ögruðu einnig kanadískum keppanda með hrópum um innlimun Kanada.
Bardagakeppni var slegið upp á suðurbletti Hvíta hússins í gærkvöldi. Tilefnið var áttræðisafmæli Trump forseta og að nafninu til 250 ára afmæli Bandaríkjanna í næsta mánuði. Viðburðurinn er að mörgu leyti sagður hafa líkst einum af kosningafundum Trump. Áhorfendur kyrjuðu „U-S-A“ allt kvöldið og kanadískur keppandi fékk að heyra að Kanada væri 51. ríki Bandaríkjanna. Trump hefur ítrekað haldið því fram að Bandaríkin ættu að innlima Kanada. Josh Hokit kýlir andstæðing sinn sem liggur í jörðinni í bardaga við Hvíta húsið í gærkvöldi. Hokit fagnaði með því að segja Joe Rogan að Michelle Obama væri karlmaður.AP/Alex Brandon Svartur blettur á samkomunni voru ummæli Josh Hokit, bandarísks keppanda í þungavikt, sem sagði „Og að lokum, Michelle Obama er karlmaður, er það ekki rétt, Bandaríkin?“ í viðtali við Joe Rogan, hlaðvarpsstjórnanda, að bardaga loknum. Bandarískir repúblikanar hafa um árabil haldið á lofti stoðlausri samsæriskenningu um að Michelle Obama, eiginkona Baracks Obama fyrrverandi forseta, sé í raun og veru karlmaður. White House UFC fighter Josh Hokit just said: “Michelle Obama is a man… am I right America?” How are you enjoying Trump’s USA? 💁🏻♂️[image or embed]— Morgan J Freeman (@mjfree.bsky.social) June 15, 2026 at 5:26 AM Ummælin voru send út í beinu streymi á efnisveitunni Paramount+. Hún er í eigu David Ellison, auðkýfings og bandamanns Trump, sem sölsar nú undir sig helstu fjölmiðlasamsteypur Bandaríkjanna. UFC-bardagamótaröðin virðist aftur á móti hafa klippt ummælin út úr viðtalinu í útgáfu sem hún birti á Youtube-rás sinni eftir bardagann.
Donald Trump Bandaríkin Barack Obama Hinsegin MMA Tengdar fréttir Bardagabúr rís við Hvíta húsið Framkvæmdir eru hafnar við svokallað „bardagabúr“ á Suður-flöt Hvíta hússins, þar sem UFC verður með viðburð í sumar í tilefni 250 ára afmælis Bandaríkjanna. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að um verði að ræða „stærsta viðburð“ í sögu UFC. 27. maí 2026 07:21 Fokdýrir miðar á bardagakvöldið við Hvíta húsið Dýrustu miðarnir á bardagakvöld UFC við Hvíta húsið í Bandaríkjunum munu kosta því sem nemur rúmum 184 milljónum íslenskra króna. 7. maí 2026 19:32 Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Innlent „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Innlent Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Frægt fólk meðal handtekinna í New York Erlent Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Erlent Fleiri fréttir Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Sjá meira
Bardagabúr rís við Hvíta húsið Framkvæmdir eru hafnar við svokallað „bardagabúr“ á Suður-flöt Hvíta hússins, þar sem UFC verður með viðburð í sumar í tilefni 250 ára afmælis Bandaríkjanna. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að um verði að ræða „stærsta viðburð“ í sögu UFC. 27. maí 2026 07:21
Fokdýrir miðar á bardagakvöldið við Hvíta húsið Dýrustu miðarnir á bardagakvöld UFC við Hvíta húsið í Bandaríkjunum munu kosta því sem nemur rúmum 184 milljónum íslenskra króna. 7. maí 2026 19:32