Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður Samúel Karl Ólason skrifar 5. júní 2026 11:29 Tölvuteiknuð mynd af fótsturvísi. Bandarískir vísindamenn telja sig hafa beitt nýrri tækni til að breyta erfðamengi fósturvísa af meiri nákvæmni en áður hafi tekist. Getty Vísindamönnum við Columbia-háskólann í Bandaríkjunum hefur tekist að breyta erfðamengi fósturvísa af fordæmalausri nákvæmni. Afrekið þykir geta leitt til þess að hægt verði að gefa börnum ákveðin einkenni og getu eftir pöntunum en tilhugsunin um slíkt hefur verið verulega umdeild um árabil.
Hægt yrði að nota tæknina til að fjarlægja erfðaefni sem og stökkbreytingar sem geta valdið sjúkdómum en það yrði einnig hægt að breyta fósturvísum þannig að börnin fengju ákveðna eiginleika sem foreldrar vildu. Eins og fram kemur í frétt New York Times segja margir að slíkt yrði lítið annað en mannkynbætur (e. Eugenics). Í samtali við miðilinn sagði Dieter Egli, sem leiddi rannsóknina, að ræða þyrfti það að gera breytingar sem þessar á fósturvísum. Það væri ekki hlutverk vísindamannanna. „Sem vísindamaður getur þú útvegað gögnin fyrir þá umræðu en þá verður þú í raun að stíga til baka og leyfa öðrum að taka við.“ Vísindamennirnir notuðu nýja tækni til að skipta út hlutum erfðamengis fósturvísanna án þess að valda þeim skaða sem átti sér oft stað í tengslum við tækni sem kallast CRISPR og var mikið á milli tannanna á fólki fyrir þó nokkrum árum. Dr. Egli segir að enn eigi eftir að rannsaka betur mögulega fylgikvilla þessarar nýju tækni. Enn sé langt í land með að hún fari í almenna notkun. Rannsóknin hefur verið birt á netinu en á eftir að gangast jafningjamat. Millifyrirsögn Umræða um mannkynbætur náði nýjum hæðum á síðasta áratug þegar vísindamenn þróuðu CRISPR-erfðabreytingatæknina (Krisper). Það var tiltölulega ódýr leið til að hafa áhrif á gen og erfðamengi og var þannig meðal annars hægt að komast að því hvað tiltekin gen gera og hvaða áhrif þau hafa. Árið 2020 fengu þær Emmanuelle Charpentier og Jennifer Doudna Nóbelsverðlaun í efnafræði fyrir þátt þeirra í að þróa CRISPR/Cas9. Tæknin var þó að mörgu leyti umdeild og þá sérstaklega hvað varðar breytingar á erfðaefni kynfruma, svokölluðum kímfrumum. Það eru frumurnar sem bera erfðaupplýsingar milli kynslóða og með breytingum á þeim er á sama tíma verið að eiga við gen afkomendanna. Ítarlega var fjallað um þessa tækni og siðferðilegar spurningar kringum hana á Vísi á sínum tíma. Tæknin er ekki fullkomin og hafa verið gerð mistök. Þrátt fyrir það hefur verið reynt að breyta erfðamengi fósturvísa áður. CRISPR veldur skemmdum He Jiankui, kínverskur vísindamaður, og tveir aðrir voru árið 2019 sakfelldir fyrir að gera ólöglegar tilraunir með fósturvísa og að láta konur fæða börn sem genabreytingar höfðu verið gerðar á. Hann sagði markmið sitt hafa verið að þróa börn með náttúrulegar varnir gegn HIV. Sjá einnig: Sakfelldir fyrir ólöglegar tilraunir með genabreytt börn Dr. Egli og samstarfsmenn hans gerðu árið 2020 tilraun með CRISPR þar sem þeir notuðu sæði úr mönnum með stökkbreytingu sem getur valdið blindu. Sæðið var notað til að frjóvga egg og reyndu þeir að nota CRISPR til að fjarlægja genin sem geta valdið blindunni. Þær viðgerðir tókust þó ekki nema í um helmingi tilfella og í hinum tilfellunum ollu þær skemmdum á erfðamenginu. Þá voru margir vísindamenn sammála um þetta væri enn ein sönnun þess að það væri of hættulegt að nota CRISPR til að breyta fósturvísum. Notuðu nýrri tækni Egli og félagar prófuðu að þessu sinni tækni sem fyrst var notuð af vísindamönnum við Harvard árið 2016, þar sem CRISPR-tæknin var nýtt í samblandi við önnur efni til að gera breytingar á erfðamengi af meiri nákvæmni en hægt var áður. NYT segir að í fyrra hafi ungabarn verið læknað af erfðagalla sem hefði getað reynst banvænn með þessari nýju tækni sem á ensku kallast „Base editing“. Áhugasamir geta séð stutt útskýringarmyndband um það hvernig þessi tækni virkar í spilaranum hér að neðan. Vísindamenn Columbia notuðu þessa tækni til að gera breytingar á frjóvguðum eggjum og fósturvísum og var markmiðið að fjarlægja stökkbreytingar sem geta valdið hjartakvillum og breyta geni sem stýrir framleiðslu hemóglóbíns í fósturvísum. Eftir að tilraunin var framkvæmd segjast vísindamennirnir ekki hafa fundið neinn skaða á erfðamengjum eggjanna og fósturvísanna sem hefði verið líklegur ef notast hefði verið við CRISPR. Í einhverjum tilfellum fór tilraunin þó þannig að sameindirnar sem áttu að breyta erfðamenginu fundu ekki skotmörk sín. Leiddi það til þess að fósturvísar innihéldu báðar útgáfur af frumunum sem um ræddi. Eina útgáfu með stökkbreytinguna og aðra án hennar. Slíkt hefði getað leitt til kvilla seinna meir. Eins og áður segir stendur jafningjamat yfir og er einnig verið að framkvæma frekari tilraunir á þessari tækni. Aðrir sérfræðingar sem ræddu við NYT segja tæknina mjög efnilega en hinar siðferðilegu spurningar sem hún vekur séu enn til staðar.
Vísindi Bandaríkin Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Sjá meira