Skaut konu sína, börn og barnabörn Samúel Karl Ólason skrifar 12. október 2026 09:29 Nágrannar fyrir utan húsið urædda á föstudaginn. AP/Matt Barnum, WJET Maður sem skaut átta manns til bana í Bandaríkjunum um helgina, þar á meðal tvö börn og ólétta konu, er sagður hafa verið höfuð fjölskyldunnar sem flest fórnarlömb hans og árásarmaðurinn sjálfur tilheyrðu.
Hann var 45 ára gamall og var skyldur sjö af átta fórnarlömbum sínum. Áttunda fórnarlambið var vinkona óléttu konunnar sem mun hafa verið í heimsókn. Ólétta konan var komin átta mánuði á leið. Ódæðið átti sér stað í Erie í Pennsylvaníu á föstudagskvöldið. Þá er maðurinn, sem hefur ekki verið nafngreindur, sagður hafa gengið inn í hús þar sem fólkið var samankomið og byrjað að skjóta fjölskyldumeðlimi sína. AP-fréttaveitan hefur eftir lögreglunni að upptökur af vettvangi sýni manninn ganga inn í húsið og skothríð heyrist þar inni. Í kjölfarið komi tvær konur öskrandi og byrji að berja á dyrnar. Þá gekk maðurinn út úr húsinu, skaut þær til bana og fór aftur inn þar sem hann beindi byssu sinni að sjálfum sér. Lögregluþjónar á leið inn í húsið á föstudaginn. Maðurinn hafði skotið fjölskyldu sína og sjálfan sig áður en fyrstu lögregluþónana bar að garði.AP/Matt Barnum, WJET Þegar lögregluþjóna bar að garði komu þeir að líkum kvennanna fyrir utan. Á neðstu hæð hússins fundu þeir lík fimm ára drengs og eins árs stúlku. Lík tveggja kvenna til viðbótar og tveggja ungra manna fundust í stiga hússins og lík mannsins á efri hæðinni. Í samtali við fjölmiðla sagði Rick Lorah, lögreglustjóri Erie, að hann vildi ekki ræða tilefni ódæðisins að svo stöddu en gaf til kynna að geðheilsa mannsins hefði spilað eitthvað inn í. Hann sagði rannsóknina meðal annars snúast um að ræða við aðra ættingja og skoða snjalltæki kvennanna sem skotnar voru fyrir utan húsið. „Þær vissu að eitthvað gekk á í þessu húsi. Við verðum að komast að því hvað það var.“ Nágrannar kveikja á kertum fyrir utan húsið þar sem morðin voru framin.AP/Ted Shaffrey „Hvernig getur þú gert þetta?“ Blaðamaður AP ræddi við tvær konur sem sögðust vinkonur einnar kvennanna sem dóu í húsinu. Þær sögðust hafa þekkt fjölskylduna í um þrjátíu ár og að árásarmaðurinn hefði verið hinn ljúfasti, áður fyrr. Hann hefði lent í vandræðum undanfarið. Ein konan sagðist ekki skilja hvernig nokkur maður gæti gert sinni eigin fjölskyldu þetta. „Þetta hefði aldrei átt að koma fyrir hana, börnin eða nokkurn. Hans eigin barnabörn, börnin hans. Hvernig getur þú gert þetta?“
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Erlend sakamál Tengdar fréttir Níu létust eftir skotárás Átta voru skotnir til bana í gærkvöldi í borginni Erie í Pennsylvaníu-ríki í Bandaríkjunum. Árásarmaðurinn svipti sig lífi í kjölfar skotárásarinnar. 10. október 2026 18:50 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira
Níu létust eftir skotárás Átta voru skotnir til bana í gærkvöldi í borginni Erie í Pennsylvaníu-ríki í Bandaríkjunum. Árásarmaðurinn svipti sig lífi í kjölfar skotárásarinnar. 10. október 2026 18:50