„Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 4. júní 2026 15:19 Tindur með tuskulemúrinn sinn, Sæta Stebba, sem hefur einstakt lag á því að týnast á ferðalögum. Fjölmiðlamaðurinn Atli Fannar Bjarkason og fjölskylda hans týndu „enn og aftur“ tuskudýrinu Sæta Stebba á ferðalagi um Norðurland. Ævintýralemúrinn hefur einstakt lag á að týnast, tvívegis verið grafinn lifandi og varði nokkrum á golfvellinum í Öndverðarnesi.
Atli Fannar birti fyrr í dag færsluna „Sæti Stebbi er týndur!“ á Facebook og greindi þar frá raunum fjölskyldunnar og lemúrsins. „Á ferð fjölskyldunnar til Akureyrar um dögunum týndist Sæti Stebbi, okkar ástkæri fjölskylduvinur, enn og aftur. Ég segi „enn og aftur“ vegna þess að þessi geðþekki lemúr hefur lent í ótrúlegum ævintýrum í gegnum tíðina en alltaf ratað heim í hlýjan faðm Tinds,“ skrifar Atli í færslunni. Atli Fannar með börnum sínum tveimur. „Sæti Stebbi hefur verið grafinn lifandi í að minnsta kosti tveimur landshlutum, varið vikum á golfvellinum í Öndverðarnesi þangað til árvökul amma náði við hann augnsambandi úr óskilamunakörfunni og við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru.“ Fífldjarfi ævintýralemúrinn, sem er merktur Tindi og símanúmeri, skilaði sér ekki heim með fjölskyldunni á leið frá Akureyri í síðustu viku. „Nú þurfum við að koma Sæta Stebba heim. Við komum við í Geirabakaríi í Borgarnesi, á B&S á Blönduósi og fórum svo til Akureyrar þar sem við vorum meðal annars í Kjarnaskógi, í sundlauginni, á Greifanum og víðar,“ skrifar Atli. Hann biðlar því til fólks að deila skilaboðunum með fólki á þessum svæðum, hafa augun opin og hafa samband ef Stebbi finnst. Færslu Atla má sjá í heild sinni hér að neðan:
Akureyri Börn og uppeldi Húnabyggð Borgarbyggð Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira