Trump vill ekki flýta sér Eiður Þór Árnason skrifar 24. maí 2026 23:57 Trump Bandaríkjaforseti á kosningafundi í Suffern í New York á föstudag. EPA/KENA BETANCUR Bandarísk stjórnvöld eru nálægt því að ná samkomulagi við Íran sem myndi binda enda á stríðið, opna Hormússund á ný og fela í sér að Íranir losi sig við birgðir af auðguðu úrani. Þetta hefur AP-fréttaveitan eftir embættismönnum í Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa beint þeim tilmælum til erindreka sinna að flýta sér ekki að gera samning.
Trump sagði að samningaviðræður „héldu áfram með skipulegum og uppbyggilegum hætti“ og að samskiptin við Íran væru að verða „mun faglegri og afkastameiri“. Óljóst er hvenær samkomulag mun nást. Talið er að enduropnun Hormússunds myndi slá á alþjóðlegu orkukreppuna sem hófst með sprengjuárásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran þann 28. febrúar. Leiddu þær til þess að Teheran lokaði meira og minna fyrir ferð skipa í gegnum sundið. Verð á olíu, gasi og tengdum vörum hefur hækkað mikið í kjölfarið og áhyggjur eru af áhrifum á mikilvæga áburðarframleiðslu fyrir matvælaræktun. Sérfræðingar segja að það myndi taka nokkrar vikur eða jafnvel mánuði fyrir flutninga og verð að jafna sig eftir að sundið verður opnað á ný, að sögn AP. Bandaríkjaher hefur haldið úti hafnbanni við íranskar hafnir í meira en mánuð og komið í veg fyrir að skip komist þar að landi og sæki íranska olíu til útflutnings. Trump sagði að þetta hafnbann „verði áfram í fullu gildi þar til samkomulag er komið, staðfest og undirritað“. Samkomulagið myndi fela í sér að Íran afsali sér úrani Samkvæmt samningsdrögum myndu stjórnvöld í Teheran samþykkja að afsala sér birgðum sínum af auðguðu úrani, að sögn tveggja nafnlausra embættismanna sem AP ræddi við. Einn embættismaður, sem er sagður koma að samningaviðræðunum, sagði að útfærslan á þessu yrði rædd í framhaldsviðræðum yfir sextíu daga tímabil. Líklegt væri að hluti birgðanna yrði fluttur til annars lands en Rússland hefur til að mynda boðist til að taka við þeim. Bandarískur embættismaður staðfesti sextíu daga tímabilið við AP og sagði að ef Íran afsali sér ekki birgðum sínum verði engum viðskiptaþvingunum aflétt. Verulegur árangur sagður hafa náðst Íran hefur ekki skuldbundið sig opinberlega til að afsala sér úraninu en það er ein lykilkrafa Trumps. Masoud Pezeshkian, forseti Írans, sagði í ríkissjónvarpinu að stjórnvöld væru tilbúin „að fullvissa heiminn um að við sækjumst ekki eftir kjarnorkuvopnum“. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í heimsókn til Indlands að „verulegur árangur en þó ekki endanlegur hefði náðst“ í samningaviðræðum og að heimurinn þyrfti ekki lengur að óttast að Íran komist yfir kjarnorkuvopn. Rubio sagði við miðilinn India Today að „fyrsta stigið“ yrði full enduropnun Hormússunds. „Annað er að Íran þarf að hefja alvarlegar samningaviðræður um þrjú atriði: loforð þeirra um að eignast aldrei kjarnorkuvopn, langtíma takmarkanir á auðgunargetu þeirra og hvað á að gera við hið auðgaða úran?“ Stjórnvöld í Íran séu varkár AP segir að Trump hafi farið fram á að Íran gefi meira eftir en krafist var í samkomulagi frá 2015 sem náðist á tíma ríkisstjórnar Obama. Bandaríkin drógu sig svo úr því samkomulagi eftir að Trump tók við. Esmail Baghaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, sagði við ríkisfréttastofuna í dag að „það hafi dregið úr ágreiningi“ hjá Íran og Bandaríkjunum en stjórnvöld í Íran séu varkár eftir að hafa orðið fyrir tveimur árásum síðastliðið ár á meðan kjarnorkuviðræður stóðu yfir. Íran fengi að selja olíu Samkvæmt samkomulaginu sem er í burðarliðnum verður smám saman opnað fyrir umferð um Hormússund samhliða því að Bandaríkin aflétti hafnbanni sínu. Þetta hefur AP eftir áðurnefndum embættismönnum í íranska og bandaríska stjórnkerfinu. Bandaríski embættismaðurinn sagði að sundið yrði hreinsað af jarðsprengjum, þrátt fyrir að annar hafi sagt á föstudag að herinn hafi ekki fundið neinar jarðsprengjur þar. Þá er fullyrt að Bandaríkin myndu leyfa Íran að selja olíu sína með undanþágum frá viðskiptaþvingunum. Samið yrði um afléttingu viðskiptaþvingana og losun á frystum fjármunum Írans í sextíu daga framhaldsviðræðunum.Tveir embættismenn sögðu að samkomulagsdrögin fælu einnig í sér endalok stríðsins milli Ísraels og Hezbollah-samtakanna í Líbanon, sem studd eru af Íran. Tólf vikur eru liðnar frá því að Bandaríkin og Ísrael réðust á Íran og drápu æðsta leiðtoga þess auk annarra háttsettra embættismanna. Vopnahlé hefur staðið yfir frá 7. apríl, þrátt fyrir að stríðandi fylkingar hafi nokkrum sinnum skotið á hver aðra.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael Donald Trump Tengdar fréttir Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í færslu á samfélagsmiðlum að samkomulag um að binda enda á átökin í Miðausturlöndum lægi að mestu fyrir. Meðal ákvæða þess væri að opnað yrði fyrir umferð um Hormússund. Þessu hafna írönsk stjórnvöld alfarið. 23. maí 2026 22:23 Mjakist nær samkomulagi Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkjamenn og Írana „færast mun nær“ samkomulagi um að binda enda á stríðið í Miðausturlöndum. Báðir aðilar eru varkárir í yfirlýsingum en teikn um árangur hafa einnig borist frá Teheran. 23. maí 2026 19:08 Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Sjá meira
Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í færslu á samfélagsmiðlum að samkomulag um að binda enda á átökin í Miðausturlöndum lægi að mestu fyrir. Meðal ákvæða þess væri að opnað yrði fyrir umferð um Hormússund. Þessu hafna írönsk stjórnvöld alfarið. 23. maí 2026 22:23
Mjakist nær samkomulagi Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkjamenn og Írana „færast mun nær“ samkomulagi um að binda enda á stríðið í Miðausturlöndum. Báðir aðilar eru varkárir í yfirlýsingum en teikn um árangur hafa einnig borist frá Teheran. 23. maí 2026 19:08