Sakar Orbán og félaga um landráð Samúel Karl Ólason skrifar 23. mars 2026 19:10 Péter Magyar, ávarpar stuðningsmenn sína í Búdapest. Kannanir benda til að hann og flokkur hans gætu orðið stærsti stjórnmálaflokkurinn í Ungverjalandi og velt Viktor Orbán, forsætisráðherra, úr sessi eftir sextán ár við völd. AP/Denes Erdos Péter Magyar, sem kannanir benda til að sé líklegur til að velta Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, úr sessi í komandi kosningum þar í landi, segir að meintar uppljóstranir milli Búdapest og Moskvu um leynilegar upplýsingar Evrópusambandsins verði rannsakaðar. Kannanir benda til þess að flokkur Magyars geti sigrað Fidesz-flokk Orbáns í þingkosningum sem fara fram í næsta mánuði.
Magyar tjáði sig í dag um fregnir um að innan Evrópusambandsins væri búið að takmarka hvers konar trúnaðarupplýsingar Ungverjar fái og að forsætisráðherrar og utanríkisráðherrar ESB hafi um nokkurt skeið forðast það að ræða mikilvæg málefni kringum kollega sína frá Ungverjalandi. Er það vegna þess að þeir hafa verið sakaðir um að leka upplýsingum til Rússlands. Péter Szijjártó, utanríkisráðherra Ungverjalands, er meðal annars sagður hafa haft beint samband við Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, í hléum á fundum ESB. Sjá einnig: Ungverjar út í kuldann vegna leka til Rússa Magyar, sem var áður í Fidesz-flokknum en leiðir nú Tisza-flokkinn, sagði í dag að undir hans stjórn verði ásakanirnar rannsakaðar og reynist fregnirnar réttar yrði litið á málið sem landráð. Sagði hann að ríkisstjórnin hefði svikið hagsmuni Ungverlands og allrar Evrópu. Framkvæmdastjórn ESB hefur beðið ríkisstjórn Orbáns um að útskýra fregnirnar af lekunum og sérstaklega það að Szijjártó hafi verið í beinum samskiptum við Lavrov á lokuðum fundum innan sambandsins, samkvæmt frétt Guardian. Szijjártó, sem var heiðraður af Vladimír Pútín, forseta Rússlands, árið 2021 er tíður fundargestur hjá utanríkismálaráði ESB, þar sem stríðið í Úkraínu er reglulega rætt. Hann hefur sextán sinnum farið í formlega heimsókn til Moskvu frá því innrásin í Úkraínu hófst í febrúar 2022. Síðast fór hann þann 4. mars og hitti hann þá Pútín. Ráðherrann hefur tjáð sig um fregnirnar og segir þær „falsfréttir“. Orbán hefur gefið þá skipun að opnuð verði rannsókn vegna fregnanna af Szijjártó en hann segist vilja komast til botns í því hvort utanríkisráðherrann hafi verið hleraður. Fjölmiðill sem þykir hliðhollur ríkisstjórninni hefur haldið því fram að erlendir njósnarar hafi hlerað síma utanríkisráðherrans með aðstoð ungversks blaðamanns.
Ungverjaland Evrópusambandið Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Tengdar fréttir Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur vakið mikla reiði meðal Evrópuleiðtoga eftir að hann gekk á bak orða sinna. Orbán hafði í desember sagst myndu samþykkja 90 milljarða evra lán til Úkraínu svo lengi sem Ungverjar yrðu ekki meðal lánveitenda en hefur nú dregið það til baka. 20. mars 2026 06:33 Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Victor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur sakað yfirvöld í Úkraínu um að skipuleggja árásir á fjölskyldu sína. Andstæðingar Orban segja ásakanirnar lið í kosningabaráttu Orban. 12. mars 2026 11:56 Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja Ráðamenn í Evrópu hafa varað kollega sína í Belgíu við því að standi þeir áfram í vegi þess að hald verði lagt á frysta sjóði Rússa, sem eru að miklu leyti í belgískum banka, verði mögulega komið fram við þá eins og Ungverja í framtíðinni. Til stendur að reyna að samþykkja aðgerðirnar á leiðtogafundi eftir viku en Bandaríkjamenn hafa einnig reynst Þrándur í götu Evrópumanna. 11. desember 2025 15:23 Mest lesið Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Fleiri fréttir Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Sjá meira
Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur vakið mikla reiði meðal Evrópuleiðtoga eftir að hann gekk á bak orða sinna. Orbán hafði í desember sagst myndu samþykkja 90 milljarða evra lán til Úkraínu svo lengi sem Ungverjar yrðu ekki meðal lánveitenda en hefur nú dregið það til baka. 20. mars 2026 06:33
Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Victor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur sakað yfirvöld í Úkraínu um að skipuleggja árásir á fjölskyldu sína. Andstæðingar Orban segja ásakanirnar lið í kosningabaráttu Orban. 12. mars 2026 11:56
Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja Ráðamenn í Evrópu hafa varað kollega sína í Belgíu við því að standi þeir áfram í vegi þess að hald verði lagt á frysta sjóði Rússa, sem eru að miklu leyti í belgískum banka, verði mögulega komið fram við þá eins og Ungverja í framtíðinni. Til stendur að reyna að samþykkja aðgerðirnar á leiðtogafundi eftir viku en Bandaríkjamenn hafa einnig reynst Þrándur í götu Evrópumanna. 11. desember 2025 15:23