Næsta skref að úttekt verði gerð á umfangi bælingarmeðferða Smári Jökull Jónsson skrifar 4. mars 2026 21:00 Víðir Reynisson er þingmaður Samfylkingar og formaður allsherjar- og menntamálanefndar. Vísir/Vilhelm Þingmanni Samfylkingarinnar varð heitt í hamsi í ræðustól Alþingis í dag þegar hann ræddi málefni samkynhneigðra innan kaþólsku kirkjunnar. Formaður allsherjar- og menntamálanefndar segir ástæðu til að skoða framkvæmd laga um bann við bælingarmeðferðum.
Í viðtali við Jakob Rolland, kanslara kaþólsku kirkjunnar, um samkynhneigð sagði hann að guðs lög giltu ef þau stönguðust á við landslög. Stefna Jesú væri að samkynhneigðir þyrftu að breytast og samtöl ættu sér stað innan kirkjunnar í þá átt. Bælingarmeðferðir, sem miða að því að bæla eða breyta kynhneigð einstaklings, eru bannaðar samkvæmt lögum og kallaði Helga Vala Helgadóttir, einn flutningsmanna frumvarpsins á sínum tíma, eftir rannsókn lögreglu vegna ummælanna. Formaður allsherjar- og menntamálanefndar segir ummælin sérstök, þó hér ríki trú- og málfrelsi þurfi allir að halda sig innan ramma laganna. „Sérstaklega þegar kemur að ungmennum og þau eru auðvitað í viðkvæmri stöðu þegar kemur að kirkjunni. Þegar fólk vill koma í kirkjuna, leita þar verndar, leita þar ásjónar og öðlast jafnvel frið í sinni stöðu,“ sagði Víðir Reynisson þingmaður Samfylkingar í viðtali í kvöldfréttum Sýnar. Skoða þurfi hvernig löggjafinn hugsaði sér framkvæmd laganna Sjálfur vildi Víðir ekki dæma um hvort ástæða væri fyrir lögregluna að skoða málið og sagði eðlilegt næsta skref að framkvæma úttekt á umfangi bælingarmeðferða líkt og meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar kallaði eftir árið 2023. Einnig að skoða hvernig málum sé háttað hjá öðrum trúfélögum sem hann telji flest taka á málinu af ábyrgð. „Auðvitað hefur fólk bent á að þarna sé hugsanlega um hegningarlagabrot að ræða, en ég held alla vega að það sé, alveg eins og oft eftir að mál koma upp, full ástæða til þess að skoða það umhverfi sem löggjafinn setti og hvernig hann hugsaði sér framkvæmdina.“ Þingmaður æsti sig í ræðustól Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar, tók málið upp á þingi í dag og sagði kaþólsku kirkjuna semja sig úr lögum við Ísland með því sem hann sagði ömurleg ummæli. Þau ætti ekki að líða. Sigmundu Erni var mikið niðri fyrir í ræðustól Alþingis í dag.Vísir/Anton Brink „Hver eru skilaboðin til samkynhneigðs fólks og hinsegin fólks í landinu? Hver eru skilaboð til fjölskyldna þeirra? Hver eru skilaboðin til bandamanna þeirra? Hver eru skilaboðin til allra Íslendinga sem vilja búa í frjálsu og lýðræðislegu samfélagi sem trúir á mannréttindi og setur lög til að tryggja mannréttindi?“ „Þau eru, skammist ykkar. Skammist ykkar fyrir kynhneigð ykkar,“ sagði Sigmundur Ernir og sagði Íslendinga aðra þjóð en þá sem kaþólska kirkjan væri að segja.
Jafnréttismál Trúmál Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Lögreglumál Hinsegin Tengdar fréttir „Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Kanslari kaþólsku kirkjunnar segir að lög guðs gildi þegar þau stangist á við landslög og að engar skipulagðar bælingarmeðferðir fyrir samkynhneigða séu stundaðar innan kaþólsku kirkjunnar hér á landi. Hann segir lög sem banna fólki að breyta um líferni ekki forsvaranleg. 3. mars 2026 19:09 Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna 78, telur að öllu hinsegin fólki sárni að heyra orð Jakobs Rollands, kanslara kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, um að hann álíti kynlíf samkynja einstaklinga syndugt. Þá telur hún, miðað við orð kanslarans, að svokallaðar bælingarmeðferðir séu stundaðar á vegum kirkjunnar þrátt fyrir að þær séu ekki sérlega skipulagðar. 3. mars 2026 21:32 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri fréttir Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Sjá meira
„Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Kanslari kaþólsku kirkjunnar segir að lög guðs gildi þegar þau stangist á við landslög og að engar skipulagðar bælingarmeðferðir fyrir samkynhneigða séu stundaðar innan kaþólsku kirkjunnar hér á landi. Hann segir lög sem banna fólki að breyta um líferni ekki forsvaranleg. 3. mars 2026 19:09
Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna 78, telur að öllu hinsegin fólki sárni að heyra orð Jakobs Rollands, kanslara kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, um að hann álíti kynlíf samkynja einstaklinga syndugt. Þá telur hún, miðað við orð kanslarans, að svokallaðar bælingarmeðferðir séu stundaðar á vegum kirkjunnar þrátt fyrir að þær séu ekki sérlega skipulagðar. 3. mars 2026 21:32