Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Samúel Karl Ólason skrifar 5. febrúar 2026 16:53 Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu. AP/Sergei Grits Að minnsta kosti 55 þúsund úkraínskir hermenn hafa fallið í átökum við Rússa, samkvæmt Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Átökin hafa staðið yfir í tæp fjögur ár en Selenskí segir að margra til viðbótar sé saknað. Fjöldi fallinna hermanna er líklegal mun hærri, eins og forsetinn viðurkenndi sjálfur.
Selenskí nefndi þessa tölu í viðtali við franskan fjölmiðil í gær. Eins og fram kemur í frétt BBC sagði forsetinn síðast frá mannfalli meðal úkraínskra hermanna í desember 2024 og var fjöldinn þá 43 þúsund. Tölur um mannfall í átökunum hafa ávallt verið á miklu reiki og tölur sem bæði Úkraínumenn og Rússar gefa upp um mannfall hjá hvorum öðrum þykja ekki áreiðanlegar. Sérfræðingar bandarísku hugveitunnar Center for stategic and international studies gáfu í janúar út greiningu þar sem farið var í saumana á mannfalli í stríðinu í Úkraínu. Þar kom fram að nærri því 1,2 milljónir rússneskra hermanna hefðu særst eða fallið. Um 325 þúsund voru taldir hafa fallið. Hvað varðar Úkraínumenn áætla sérfræðingar CSIS að á milli hundrað og 140 þúsund Úkraínumenn séu fallnir. Í heildina hefðu tæplega sex hundruð þúsund hermenn særst eða fallið. Sjá einnig: Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Fyrir um hálfu ári var áætlað innan innanríkisráðuneytis Úkraínu að rúmlega sjötíu þúsund manna væri saknað. Sé tölunni sem Selenskí nefndi í áðurnefndu viðtali bætt við stemmir það nokkuð við greiningu CSIS. Erfiðar viðræður Selenskí talaði einnig um viðræður við Rússa sem hafa átt sér stað í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þar var komist að samkomulagi í dag um skipti á 314 stríðsföngum en það voru fyrstu slíku skiptin í fimm mánuði. Selenskí hefur sagt viðræðurnar erfiðar en uppbyggilegar og hefur hann kallað eftir meiri hraða. Rússar hafa lagt áherslu á að úkraínskir hermenn hörfi frá stórum hluta Dónetsk-héraðs sem þeir halda enn. Svæðið þykir mjög víggirt en Pokrovsk og aðrar borgir eru á því. Úkraínumenn vilja ekki láta þetta svæði af hendi og segja að með því gætu Rússar öðlast skotpall lengra inn í Úkraínu.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Tengdar fréttir Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Rússar gerðu árásir á orkuinnviði og íbúðarhúsnæði í Úkraínu í nótt. Fjórir særðust í árásunum, bæði í Kænugarði og Kharkív. Að sögn vitna mátti heyra háværar sprengingar og þá kviknuðu eldar. Skemmdir urðu á innviðum á fimm svæðum, meðal annars á byggingu þar sem rekinn er leikskóli. 3. febrúar 2026 07:00 Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Rússneskur dróni hæfði farþegarútu sem flutti námuverkamenn úr vinnu til borgarinnar Dnípró í dag. Fimmtán hið minnsta eru sagðir hafa látist. 1. febrúar 2026 17:28 Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefði heitið því að gera tímabundið hlé á loftárásum sínum á Kænugarð, sem hafa miðað að því að valda skemmdum á orkuinnviðum og svipta íbúa hlýju í vetrarkuldanum. 30. janúar 2026 06:55 Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Sjá meira
Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Rússar gerðu árásir á orkuinnviði og íbúðarhúsnæði í Úkraínu í nótt. Fjórir særðust í árásunum, bæði í Kænugarði og Kharkív. Að sögn vitna mátti heyra háværar sprengingar og þá kviknuðu eldar. Skemmdir urðu á innviðum á fimm svæðum, meðal annars á byggingu þar sem rekinn er leikskóli. 3. febrúar 2026 07:00
Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Rússneskur dróni hæfði farþegarútu sem flutti námuverkamenn úr vinnu til borgarinnar Dnípró í dag. Fimmtán hið minnsta eru sagðir hafa látist. 1. febrúar 2026 17:28
Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefði heitið því að gera tímabundið hlé á loftárásum sínum á Kænugarð, sem hafa miðað að því að valda skemmdum á orkuinnviðum og svipta íbúa hlýju í vetrarkuldanum. 30. janúar 2026 06:55