Íranar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip Samúel Karl Ólason skrifar 3. febrúar 2026 16:58 Íranar hafa áður notasdt við smáa hraðbáta, búna stórum vélbyssum til að stöðva skip á Hormuz-sundi eða reyna það. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty/Fatemeh Bahrami, Anadolu Íranskir sjóliðar um borð í sex vélbyssubúnum hraðbátum reyndu í morgun að stöðva danskt olíuflutningskip, sem siglt er undir bandarískum fána, á Hormuz-sundi í Persaflóa. Stjórnendur skipsins juku hraða þess og komust þannig undan þegar írönsku sjóliðarnir skipuðu þeim að stöðva skipið. Seinna í dag var olíuflutningaskipinu svo fylgt eftir af bandarísku herskipi.
Skipinu er siglt undir bandarískum fána en er, samkvæmt frétt Wall Street Journal, í eigu danska fyrirtækisins Stena Bulk. Verið var að sigla skipinu frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum til Barain, þar sem Bandaríkjamenn reka stóra flotastöð. Íranar hafa áður stöðvað skip eða reynt að stöðva þau á Hormuz-sundi en gífurleg spenna er á svæðinu. Bandaríkjamenn hafa sent umtalsverðan herafla og herskip til Mið-Austurlanda og hefur Donald Trump, forseti, gefið til kynna að árásir gegn klerkastjórninni í Íran komi til greina. Er það í kjölfar umfangsmikilla mótmæla í Íran þar sem öryggissveitir klerkastjórnarinnar eru sakaðar um að hafa banað þúsundum mótmælenda. Viðræður milli erindreka frá Íran og Bandaríkjunum eiga að fara fram í Tyrklandi á föstudaginn. WSJ segir klerkastjórnina hafa hótað því í dag að hætta við viðræðurnar, en þær eru meðal annars sagðar snúast um kjarnorkuvopnaáætlun Íran en ráðamenn annarra ríkja í Mið-Austurlöndum komu að því að skipuleggja þær, með því markmiði að koma í veg fyrir stríð. Hafa stöðvað skip úr skuggaflota sem Íranar nota Bandaríkjamenn hafa á undanförnum vikum stöðvað og lagt hald á þó nokkur olíuflutningaskip sem tilheyrðu svokölluðum „skuggaflota“ Rússa. Þann flota notuðu ríki eins og Rússland, Íran og Venesúela til að komast hjá viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum. Frakkar stöðvuðu einnig skip úr flotanum á dögunum og hafa fregnir borist af því að sambærilegar aðgerðir séu til skoðunar víðar. Hundruð skipa tilheyra skuggaflotanum en þeim hefur fjölgað mjög á undanförnum árum. Flotinn er talinn hafa flutt um 3,7 milljarða tunna af olíu í fyrra eða um sex til sjö prósent af heildarmarkaði síðasta árs. Mörg skipanna eru orðin gömul og eru slys nokkuð tíð. Þá eru mörg skipanna einnig ótryggð. Sjá einnig: Svona virkar „skuggaflotinn“ Samkvæmt alþjóðasamþykktum um skipaflutninga eiga skip að vera skráð í tilteknum ríkjum og bera fána þeirra. Skip eru þá bundin reglum og lögum þeirra ríkja þar sem þau eru skráð. Kerfið var þróað til að tryggja að flutningaskip séu tryggð og að komið sé vel fram við áhafnarmeðlimi. Svokölluð skuggaskip notast oft við fána fátækra smáríkja og í mörgum tilfellum í skiptum fyrir greiðslur til þessara ríkja.
Íran Bandaríkin Skipaflutningar Hernaður Tengdar fréttir Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Æðstiklerkur Íran hótar að hvers konar árás af höndum Bandaríkjamanna gæti hrint að stað svæðisstríði. Spenna milli ríkjanna tveggja hefur aukist til muna eftir miklar óeirðir í Íran síðustu vikur. 1. febrúar 2026 10:25 Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Bandarískur herskipafloti nálgast Íran og hótar Bandaríkjaforseti því að tíminn sé að renna út fyrir írönsk stjórnvöld að semja um kjarnorkuvopnaáætlun þeirra. Íranar segjast reiðubúnir til viðræðna en þeir séu einnig að verjast af festu. 28. janúar 2026 15:00 Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Hernaðaryfirvöld í Bandaríkjunum hafa greint frá því að þau hyggist halda margra daga heræfingar í Mið-Austurlöndum, til að sýna fram á hernaðargetu Bandaríkjanna á svæðinu. 28. janúar 2026 06:51 Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Heilbrigðisstarfsmenn og starfsfólk sjúkrahúsa í Íran segja allt að 30 þúsund hafa verið drepna í aðgerðum stjórnvalda gegn mótmælendum í landinu. Yfirvöld hafa gefið út að um 3.000 hafi látist, á meðan mannréttindasamtök segja fjöldann að minnsta kosti yfir 6.000 og þá séu 17.000 dauðsföll til viðbótar til rannsóknar. 27. janúar 2026 08:47 Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Fleiri fréttir Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Sjá meira
Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Æðstiklerkur Íran hótar að hvers konar árás af höndum Bandaríkjamanna gæti hrint að stað svæðisstríði. Spenna milli ríkjanna tveggja hefur aukist til muna eftir miklar óeirðir í Íran síðustu vikur. 1. febrúar 2026 10:25
Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Bandarískur herskipafloti nálgast Íran og hótar Bandaríkjaforseti því að tíminn sé að renna út fyrir írönsk stjórnvöld að semja um kjarnorkuvopnaáætlun þeirra. Íranar segjast reiðubúnir til viðræðna en þeir séu einnig að verjast af festu. 28. janúar 2026 15:00
Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Hernaðaryfirvöld í Bandaríkjunum hafa greint frá því að þau hyggist halda margra daga heræfingar í Mið-Austurlöndum, til að sýna fram á hernaðargetu Bandaríkjanna á svæðinu. 28. janúar 2026 06:51
Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Heilbrigðisstarfsmenn og starfsfólk sjúkrahúsa í Íran segja allt að 30 þúsund hafa verið drepna í aðgerðum stjórnvalda gegn mótmælendum í landinu. Yfirvöld hafa gefið út að um 3.000 hafi látist, á meðan mannréttindasamtök segja fjöldann að minnsta kosti yfir 6.000 og þá séu 17.000 dauðsföll til viðbótar til rannsóknar. 27. janúar 2026 08:47