Erlent

Lést á sjúkra­húsi mánuði eftir harm­leikinn

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Minnisvarða hefur verið komið fyrir fyrir utan skemmtistaðinn Le Constellation sem brann á nýársnótt með þeim afleiðingum að tugir ungmenna létust.
Minnisvarða hefur verið komið fyrir fyrir utan skemmtistaðinn Le Constellation sem brann á nýársnótt með þeim afleiðingum að tugir ungmenna létust. AP

Átján ára gamall svissneskur ríkisborgari sem slasaðist alvarlega í eldsvoða á skíðasvæðinu Crans-Montana í Sviss á nýársnótt lést á sjúkrahúsi í gær.

Frá þessu greinir Beatrice Pilloud, saksóknari í Valais-kantónu, í tilkynningu til fjölmiðla en með andlátinu hefur tala látinna hækkað í 41. Pilloud veitti ekki nánari upplýsingar um hinn látna.

Eldur kviknaði á skemmtistaðnum Le Constellation á nýársnótt. Talið er að svokölluð yfirtendrun skýri hversu hratt eldurinn breiddi úr sér. Tugir létust og meira en hundrað slösuðust. Hin látnu voru á aldrinum fjórtán til 39 ára.

Sakamál hefur verið höfðað á hendur rekstraraðilum skemmtistaðarins, sem hafði ekki verið skoðaður af eftirlitsmönnum í fimm ár þegar slysið varð. Þeir eru grunaðir um manndráp af gáleysi, líkamsmeiðingar af gáleysi og íkveikju af gáleysi. Lögregla rannsakar enn tildrög slyssins. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×