Flugumferðarstjórar að bugast og dregið úr ferðum innanlands Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 6. nóvember 2025 07:36 Farþegaþota frá Southwest flugfélaginu undirbýr flugtak frá flugvellinum í Nashville. AP Photo/George Walker IV Ráðherra samgöngumála í Bandaríkjunum, Sean Duffy, varar við því að frá og með morgundeginum gæti komið til þess að draga þurfi úr fjölda þeirra flugferða sem farnar eru frá fjörutíu stórum flugvöllum í Bandaríkjunum svo nemur tíu prósentum.
Rekstur ríkisstofnana Bandaríkjanna er nú í algjörum lamasessi þar sem fjárveitingar hafa ekki verið samþykktar á þinginu. Þetta hefur aukið álag á þá ríkisstarfsmenn sem enn eru í vinnu og segir Duffy að nú sé farið að bera á þreytu hjá flugumferðarstjórum í Bandaríkjunum svo að nauðsynlegt verði að draga úr flugferðum til að minnka álagið. Að auki hafa flugumferðarstjórar ekki fengið greidd laun sín í rúman mánuð og því mun vera farið að bera á því að menn hringi sig inn veika eða fari jafnvel í önnur störf. Reuters fréttaveitan segir að niðurskurðurinn í fjölda ferða eigi aðeins við innanlandsflug og að hann hefjist á morgun þannig að í næstu viku veðri búið að minnka álagið um tíu prósent. Þetta gæti haft áhrif á um það bil 4500 flugferðir á hverjum degi í Bandaríkjunum. Þá er fullyrt að þetta sé aðeins fyrsta skref aðgerða af þessu tagi, ef ekki tekst að leysa hnútinn og koma ríkisstofnunum aftur í samt lag.
Bandaríkin Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira