Rússnesk flygildi rufu lofthelgi NATO Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 13. september 2025 19:44 Árásarflygildi af gerðinni Shahed sem Rússar nota mikið. Myndin tengist ekki fréttinni beint. AP Rússnesk fylgildi rufu lofthelgi Rúmeníu í dag. Þau fóru að sögn úkraínskra stjórnvalda um það bil tíu kílómetra inn fyrir landamæri Rúmeníu og voru þar í um fimmtíu mínútur.
Vólódímír Selenskí forseti Úkraínu greindi frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum í kvöld. Hann segir Rúmena hafa gert út herþotur til að bregðast en flygildið er sagt hafa horfið af ratsjám Rúmena áður en til kastanna kom. Varnarmálaráðuneyti Rúmeníu hefur staðfest að lofthelgi sín hafi verið rofin. Herþotur í Póllandi voru einnig ræstar út fyrr í dag í svokallaðri forvarnaraðgerð vegna ógn sem þótti stafa af rússneskum flygildum sem notuð voru til árása í vesturhluta Úkraínu. Flugvöllinum í borginni Lublin í austanverðu Póllandi var lokað. Aukið hættustig var í gildi í um tvær klukkustundir. „Rússneski herinn veit nákvæmlega hvert flygildi sín stefna og hve lengi þau eru virk í loftinu. Leiðir þeirra eru alltaf fyrirfram ákveðnar. Þetta getur ekki verið tilviljun, mistök, eða frumkvæði einhverra undirmanna. Þetta er augljós stigmönun stríðsins af hálfu Rússa,“ segir Selenskí í færslunni. Hann segir þörf á virkum forvörnum. Engin ögrun frá Rússlandi sé lítilsvæg. Rússar rufu lofthelgi Póllands á miðvikudaginn síðasta. Fjöldi flygilda svifu inn fyrir landamærin og eitt þeirra olli talsverðum skemmdum á íbúðarhúsi.
Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Pólland Rúmenía Úkraína NATO Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Sjá meira