„Auðvitað er forgangsröðun jarðganga vonbrigði fyrir mig“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 8. desember 2025 12:55 Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi. vísir/vilhelm Mikil reiði og vonbrigði einkenndu fjölmennan fund á Seyðisfirði í gær þar sem ný samgönguáætlun var til umræðu að sögn forseta bæjarstjórnar Múlaþings. Viðreisn stóð fyrir fundinum en þingmaður flokksins segir breytta forgangsröðun jarðganga vonbrigði.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, og Ingvar Þóroddsson, þingmaður flokksins í Norðausturkjördæmi, ræddu við íbúa Seyðisfjarðar um nýja samgönguáætlun í félagsheimilinu Herðubreið í gærkvöld. Þó nokkur óánægja ríkir á Austurlandi vegna samgönguáætlunar sem var kynnt á miðvikudag. Fjarðarheiðargöng voru tekin af lista forgangsröðunar jarðganga og Fljótagöng sett þeirra í stað í fyrsta sæti. Fjarðagöng eru nú í öðru til þriðja sæti á listanum. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra las ekki skýrslu Rannsóknarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri sem var birt sem fylgiskjal með samgönguáætlun. Stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt það harðlega en Eyjólfur segist vísa í önnur gögn breyttri forgangsröðun til stuðnings. Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitastjórnar Múlaþings og varaþingmaður Framsóknarflokksins, var á fundinum í gær og segir mikinn hita hafa verið í fundargestum. „Þó hann hafi farið sómasamlega fram að mestu þá fór það ekki á milli mála að fólki var heitt í hamsi. Það var mikil reiði, mikil vonbrigði. Fólk upplifir mikil svik og fólk var eins samstíga og einn salur getur orðið og talaði einu máli og það fór ekkert á milli mála hjá fundargestum hvað fólki finnst um þessa forgangsröðun jarðganga. Við skulum bara átta okkur á því að Austurland var næst í því að fá jarðgöng. Nú eru engin jarðgöng næst á Austurlandi.“ Ekki einhugur meðal stjórnarliða vegna málsins Ingvar Þóroddsson segist skilja vonbrigði á Austurlandi vel. Hann setti áherslu á Fjarðarheiðargöng í jómfrúarræðu sinni sem þingmaður á sínum tíma. „Auðvitað er forgangsröðun jarðganga vonbrigði fyrir mig. Ekki af því að ég telji að þessar jarðgangaframkvæmdir ekki brýnar en ég hef alltaf talað máli þess að Fjarðarheiðargöng verði áfram fremst eins og þau hafa verið síðustu fimm árin.“ Hann segir það ekki gott að Austurland sé ekki í fyrsta sæti þegar það kemur að jarðgangagerð. „Fjarðarheiðargöng eru fullhönnuð og tilbúin til útboðs. Það eru þau göng se mvið höfum tilbúin til að hefjast handan strax. Það er ekki bara það að Austurland sé fært neðar í forgangsröðuninni heldur erum við að setja göng þarna inn í forgang sem eru ekki tilbúin og það seinkar því hvenær við munum hefjast handan.“ Hefðir þú viljað hafa Fjarðarheiðargöng ennþá í fyrsta sæti? „Já það er náttúrulega það sem ég talaði um í minni jómfrúarræðu. Hins vegar styð ég markmið ríkisstjórnarinnar um að verameð fullfjármagnaða samgönguáætlun sem hægt er að ráðast í en ekki eitthvað svona áformaplagg sem er óskarlisti.“ Bara já eða nei spurning, er samhugur meðal stjórnarþingmanna vegna þessarar forgangsröðunar? „Mín svör við þeirri spurningu eru kannski svör við þessari spurningu líka.“ Semsagt nei eða blendnar tilfinningar? „Já.“ Breytt forgangsröðun langt frá því að vera einu vonbrigðin Jónína vonast til að einhver viðbrögð eða framkvæmdir fylgi fundinum. „Ég skora á forsætisráðherra að koma hér og eigi milliliðaluast samtal við okkar samfélag. Ég skora líka á innviðaráðherra að gera slíkt hið sama. Ég held það sé mjög mikilvægt að fólk gefi sér tíma og komi hér austur.“ Hún segir íbúa vænta þess að samgönguáætlun verði endurskoðuð. „Ef menn ætla að fara í jarðgöng hér er það mitt mat að það verði ekki gert á þessu kjörtímabili nema með því að bjóða Fjaðrarheiðargöng út. Það eru einu göngin sem eru tilbúin og einu göngin sem hægt er að segja með vissu að verið sé að rjúfa stopp í jarðgangagerð.“ Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitastjórnar Múlaþings.Aðsend Jónína segir breytta forgangsröðun jarðganga langt því frá að vera einu vonbrigði nýrrar samgönguáætlunar fyrir Austurland. „Það er hægt að segja að samgönguáætlun eins og hún liggur fyrir í heild sinni er stórkostleg vonbrigði fyrir Austurland. Þar er ekki að sjá neinar framkvæmdir hvorki fara framar né breytast. Öxi er enn þá PPP-verkefni. Suðurfjarðavegur er ekkert framar. Við erum ekki að sjá neinar framkvæmdir hér að ráði. Það er verið að skerða framlög til Egilsstaðarflugvallar um helming og svo er sett á hringtorg hérna við Egilsstaði sem enga peninga kostar en samt er verið að dreifa því á tvö ár. Samgönguáætlun eins og hún liggur fyrir núna er vanvirðing í garð Austurlands,“ segir hún og bætir við: „Ég bara hvet utanríkisráðherra til að taka upp samtal við ríkisstjórnarborðið eftir fundinn í gær. Það er okkar einlæga ósk að á okkur verði hlustað og ég hvet hana til að fara áfram með þetta samtal innan ríkisstjórnarinnar.“
Jarðgöng á Íslandi Samgöngur Viðreisn Múlaþing Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samgönguáætlun Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Sjá meira