Fyrirsjáanlegar deilur: Valdamesti maður heims og sá ríkasti hnakkrífast Samúel Karl Ólason skrifar 6. júní 2025 07:27 Elon Musk og Donald Trump í október í fyrra, þegar allt lék í lyndi. AP/Alex Brandon Forseti Bandaríkjanna, valdamesti maður heims, og auðugasti maður heims, sem hafa unnið náið saman á undanförnum mánuðum, skutu föstum skotum hvor að öðrum í gær. Hvor á sínum eigin samfélagsmiðli. Donald Trump kallaði Elon Musk meðal annars klikkaðan og Musk sagði að bola ætti Trump úr embætti og stakk upp á því að stofna nýjan stjórnmálaflokk, svo eitthvað sé nefnt.
Musk hefur varið undanförnum dögum í að gagnrýna umfangsmikið fjárlagafrumvarp Trumps og ýmsa Repúblikana sem studdu það en forðaðist þó að gagnrýna Trump með beinum hætti. Þá hafði Trump sjálfur ekki stigið inn í hringinn, ef svo má segja, fyrr en í gær. Umrætt frumvarp kalla Repúblikanar hið „stóra og fallega“ frumvarp en það var samþykkt með naumindum í fulltrúadeildinni og er nú til umfjöllunar í öldungadeildinni. Það inniheldur meðal annars mikið af áherslumálum Trumps en talið er að það muni auka skuldir ríkisins verulega á næstu árum. Sjá einnig: Musk hraunar yfir „stórt og fallegt“ frumvarp Trumps Það er Musk mjög ósáttur við en hann er einnig sagður, af Repúblikönum, vera ósáttur við að ívilnun til framleiðenda rafmagnsbíla er felld niður með frumvarpinu og það að Trump dró nýverið til baka tilnefningu vinar Musks í stöðu yfirmanns Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna. Vert er að taka fram að Musk hefur lengi sagst hlynntur því að fella niður ívilnanir til rafmagnsbílaframleiðenda þar sem það komi meira niður á samkeppnisaðilum Tesla. Virði hlutabréfa fyrirtækisins lækkaði um fjórtán prósent í gær. Reyndu að forðast deilur við Musk Samkvæmt heimildum Wall Street Journal úr Hvíta húsinu er staðan núna nákvæmlega sú sem ráðgjafar Trumps reyndu að forðast. Þeir eru sagðir hafa reynt að koma í veg fyrir deilur milli Trumps og Musks. Rétt tæplega vika er síðan Trump og ráðgjafar hans héldu lítinn viðburð í Hvíta húsinu þar sem Trump þakkaði Musk fyrir vel unnin störf, gaf honum gylltan lykil og kvaddi hann. Þá höfðu ráðgjafarnir sagt Trump frá ásökunum um meinta fíkniefnaneyslu Musks og undirbúið hann fyrir væntanlegar spurningar blaðamanna um hana á viðburðinum, svo Trump gæti verið tilbúinn til að koma Musk til varnar. Allt fram á miðvikudagskvöld er Trump sagður hafa gert lítið úr gagnrýni Musks á frumvarpið og Repúblikana, segja öldungadeildarþingmenn sem ræddu málið við Trump. Forsetinn sagðist í vikunni ekki vilja deila við Musk fyrir opnum tjöldum. Það breyttist svo hratt í gærkvöldi. „Vonsvikinn“ út í Musk Á blaðamannafundi með Friedrich Merz, kanslara Þýskalands, steig Trump inn í hringinn og gagnrýndi Musk í fyrsta sinn. Trump sagðist vonsvikinn út í Musk fyrir gagnrýni hans á frumvarpið. „Mér hefur alltaf verið vel við Elon. Þið sáuð þessi orð hans um mig. Hann hefur ekkert sagt slæmt um mig. Ég vildi frekar að hann gagnrýndi mig heldur en frumvarpið því þetta frumvarp er magnað. Þetta er stærsti niðurskurður í sögu landsins,“ sagði Trump. „Sjáiði til, við Elon áttum frábært samband. Ég er ekki viss um að við munum eiga það héðan í frá.“ Þá sagði Trump að enginn hefði þekkt umrætt frumvarp betur en Musk. Það hafi ekki verið fyrr en eftir að hann hætti störfum sínum fyrir Trump sem Musk hafi fundið eitthvað að frumvarpinu. „Og ef þið lítið á það sem hann hefur sagt um mig, hann hefur sagt fallegustu hluti um mig og hefur ekkert sagt ljótt um mig persónulega, en ég er viss um að það er næst á dagskrá. Ég er mjög vonsvikinn út í Elon. Ég hef hjálpað Eloni mikið,“ sagði Trump. Musk sagði í kjölfarið að hann hefði aldrei fengið að sjá frumvarpið og ítrekaði að það hefði verið samþykkt af Repúblikönum um miðja nótt og svo hratt að nánast enginn þingmaður hafi getað lesið það. Sagði Musk klikkaðan Þá skrifaði Trump í gær þrjár færslur um Musk á Truth Social, hans eigin samfélagsmiðil. Þar sagðist hann hafa verið orðinn þreyttur á Musk og því hafi hann beðið hann um að hætta störfum fyrir ríkisstjórnina. Hann hafi einnig tekið ívilnanirnar af Musk og við það hafi auðjöfurinn orðið „KLIKKAÐUR“. Trump segist hafa beðið Musk um að hætta störfum fyrir ríkisstjórnina. Musk sagði þetta augljósa og sorglega lygi. Trump sagði einnig að honum væri svo sem sama að Musk hefði snúist gegn sér en sagði að auðjöfurinn hefði átt að gera það fyrir löngu síðan. Trump sagði „stóra og fallega“ frumvarpinu ætlað að bjarga Bandaríkjunum. „Ég skapaði ekki þetta klúður, ég er bara hérna til að laga það.“ Forsetinn sagði einnig að auðveldasta leiðin til að spara opinbera peninga væri að segja upp samningum ríkisins við fyrirtæki Musks. Það hefði komið sér á óvart að Joe Biden hefði ekki gert það. Trump talar um að rifta samningum ríkisins við fyrirtæki Musks. Tók undir það að bola ætti Trump úr embætti Fyrir sitt leyti hefur Musk ekkert gefið eftir og fór um víðan völl um Trump og Repúblikana í gærkvöldi. Hann tók til að mynda saman gömul ummæli þeirra um mikilvægi þess að draga úr skuldum ríkisins, ítrekaði að ef hann hefði ekki varið tæplega þrjú hundruð milljónum dala í kosningabaráttu Trumps og Repúblikana í fyrra sæti Demókrati í Hvíta húsinu og sagði að Demókratar hefðu meirihluta í fulltrúadeildinni. „Þvílíkt vanþakklæti.“ Trump gaf lítið fyrir það í gær og sagði að hann hefði unnið kosningarnar án stuðnings Musks. Musk sagði einnig að ástæða þess að Epstein-skjölin svokölluðu hefðu ekki verið opinberuð væri að nafn Trumps væri í þeim. Musk hefur einnig tekið undir ummæli um að bola ætti Trump úr embætti og sett í gang skoðanakönnun um það hvort stofna eigi nýjan stjórnmálaflokk í Bandaríkjunum. Við eina færslu þar sem áhrifamikill íhaldsmaður velti vöngum yfir því að Repúblikanar þyrftu að velja milli Musks og Trumps skrifaði auðjöfurinn að fólk ætti að hafa í huga að Trump ætti þrjú og hálft ár eftir í embætti en hann sjálfur yrði til staðar næstu fjörutíu árin. Musk segir nafn Trumps í Epstein-skjölunum svokölluðu. Manaði Trump að rifta samningum við SpaceX Stephen Bannon, sem var á árum áður bandamaður Trumps og hefur áfram stutt Trump eftir að forsetinn sleit á samskipti sín við Bannon, hefur kallað eftir því að Musk verði vikið úr landi og að yfirvöld í Bandaríkjunum ættu að taka SpaceX yfir. Musk sagði í kjölfarið að Bannon væri „þroskaheftur“ og kommúnisti. Þá manaði Musk Trump í rauninni til að segja upp samningum ríkisins við SpaceX. Fyrirtækið stendur í raun öðrum framar þegar kemur að geimferðum og er bandaríska ríkið mjög háð SpaceX. bæði NASA og varnarmálaráðuneytið hafa gert umfangsmikla samninga við fyrirtækið. Áður en SpaceX kom til, þurftu Bandaríkjamenn til að mynda að leita til Rússa til að koma mönnum út í geim. Fyrirtækið kemur farmi á braut um jörðu með töluvert minni kostnaði en önnur fyrirtæki. Musk manar Trump að rifta samingum við SpaceX. Stigmögnunin kom Trump á óvart Áðurnefndir heimildarmenn WSJ úr Hvíta húsinu segja það hafa komið Trump í opna skjöldu hve hratt deilan við Musk stigmagnaðist. Hann taldi sig ekki hafa talað um Musk með harkalegum hætti og áttaði sig ekki á markmiðum Musks. Í samtali við aðstoðarmenn sína sagði Trump að Musk væri að haga sér eins og krakki. Þegar Trump og Musk hófu samstarfið og urðu nánari í kosningabaráttunni í fyrra voru margir sem töldu óhjákvæmilegt að samband þeirra myndi einn daginn springa í loft upp, ef svo má segja. Það hefur lengi þótt fyrirsjáanlegt að auðjöfrarnir tveir, sem hafa báðir ítrekað í gegnum árin deilt við samstarfsmenn sína og bandamenn, myndu ekki eiga í ævilangri vináttu. Nú er ein af stóru spurningunum þó sú hvort að valdamesti maður heims og sá ríkasti finni einhverja leið til að lappa upp á samband þeirra, sem hefur reynst gífurlega áhrifamikið. Gerist það ekki er erfitt að spá fyrir um úrslitin og áhrifin á bandarísk stjórnmál og bandarískt samfélag. Musk með skoðanakönnun um stofnun nýs stjórnmálaflokks.
Bandaríkin Donald Trump Elon Musk Tengdar fréttir Segir nafn Trumps vera í Epstein-skjölunum Elon Musk, fyrrverandi samstarfsfélagi Bandaríkjaforseta, segir nafn forsetans vera í skjölum sem varða rannsókn á auðkýfingnum Jeffrey Epstein. 5. júní 2025 19:46 Trump segist „mjög vonsvikinn“ út í Elon og ekki viss um að þeir geti átt gott samband Donald Trump Bandaríkjaforseti segist verulega svekktur út í Elon Musk, auðugasta mann heims og einn nánasta samstarfsmann sinn til langs tíma. Gagnrýni hans á fjárlagafrumvarp sem Trump og félagar reyna nú að fá samþykkt virðist hafa fallið í grýttan jarðveg hjá forsetanum. 5. júní 2025 17:02 Sagður verulega ósáttur við gagnrýni Musks Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður verulega ósáttur við Elon Musk, auðugasta mann heims, og gagnrýni hans á fjárlagafrumvarp sem Trump og leiðtogar Repúblikanaflokksins eru að reyna að koma gegnum þingið. Musk hefur farið hörðum orðum um frumvarpið og sagst ætla að beita sér gegn þeim þingmönnum sem greiða atkvæði með því. 5. júní 2025 11:35 Musk hraunar yfir „stórt og fallegt“ frumvarp Trumps Elon Musk, auðugasti maður heims, sem staðið hefur dyggilega við bak Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, segir hið „stóra og fallega“ fjárlagafrumvarp sem Trump vill að Repúblikanar samþykki sé „viðurstyggilegur hryllingur“. Hann segir alla þá sem hafa stutt það eiga að skammast sín. 4. júní 2025 07:24 Störfum Musk lokið hjá DOGE Elon Musk hefur tilkynnt um það að störfum hans hjá DOGE, hagræðingar- og niðurskurðarstofnun Bandaríkjastjórnar, sé lokið. Donald Trump réði Musk til starfa í 130 daga sem sérstakan ráðgjafa um niðurskurð innan stjórnkerfisins. 29. maí 2025 15:17 Ætlar að eyða mun minna í pólitíkina Elon Musk, auðugasti maður heims og náinn bandamaður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, ætlar að draga úr fjárútlátum sínum til stjórnmálamanna og vegna málefna sem honum eru hugfangin. Hann segist búinn að gera nóg, í bili. 20. maí 2025 20:33 Mest lesið Erlendur ferðamaður féll í Brúará Innlent Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Innlent Slævandi lyf og lágt sætisbak dráttarvélar orsakir banaslyss Innlent „Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“ Innlent Stafræn skírteini hætta í símaveskjum Innlent Íbúar leiti réttar síns vegna flautsins: „Þetta er lýðheilsuógn“ Innlent Fær bætur 45 árum eftir föðurmissinn: „Varð eiginlega tíu ára aftur“ Innlent Ein á móti rýmkuðu sorgarleyfi Innlent Dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir að nauðga tugum skjólstæðinga Erlent Ásthildur Lóa skammar þingheim Innlent Fleiri fréttir Var fluttur óvart úr landi en er snúinn aftur Engin sátt í sjónmáli: Trump vill selja Tesluna Klóra sér í kollinum yfir stórri reikistjörnu á braut um litla stjörnu Reyna að stilla til friðar með símtali Dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir að nauðga tugum skjólstæðinga Bras á breska Umbótaflokknum þrátt fyrir velgengnina Brotlentu öðru einkafari á tunglinu Fyrirsjáanlegar deilur: Valdamesti maður heims og sá ríkasti hnakkrífast Eldar loguðu í Kænugarði eftir umfangsmiklar árásir Rússa Segir nafn Trumps vera í Epstein-skjölunum Trump segist „mjög vonsvikinn“ út í Elon og ekki viss um að þeir geti átt gott samband Ákærð fyrir að myrða táning en líkið enn ófundið Sagður verulega ósáttur við gagnrýni Musks Fíll ruddist inn í matvöruverslun Bannar nú erlenda nemendur í Harvard á grunni þjóðaröryggis Felldu tillögu um að olíusjóðurinn sniðgengi fyrirtæki á hernumdu svæðunum Krefst fimm prósenta til varnarmála: „Allir þurfa að leggja hönd á plóg“ Endurvekur ferðabannið Telja rúmensk glæpagengi smygla matarsendlum inn í Ósló Birtir þrisvar sinnum fleiri færslur en áður Svíar leigja fangelsispláss í Eistlandi Reyndi að bragðbæta baneitruðu máltíðina Musk hraunar yfir „stórt og fallegt“ frumvarp Trumps Rýming í Köln vegna þriggja sprengja frá seinni heimsstyrjöldinni Aftur hafin leit að Madeleine McCann Andstæðingi forsetans brottrekna spáð sigri í forsetakosningum Brúnni milli Rússlands og Krímskaga lokað eftir sprengingar Forsætisráðherra Hollands segir af sér Fjórir ákærðir í tengslum við morðið á C.Gambino Mun þingið fara fram hjá Trump? Sjá meira
Segir nafn Trumps vera í Epstein-skjölunum Elon Musk, fyrrverandi samstarfsfélagi Bandaríkjaforseta, segir nafn forsetans vera í skjölum sem varða rannsókn á auðkýfingnum Jeffrey Epstein. 5. júní 2025 19:46
Trump segist „mjög vonsvikinn“ út í Elon og ekki viss um að þeir geti átt gott samband Donald Trump Bandaríkjaforseti segist verulega svekktur út í Elon Musk, auðugasta mann heims og einn nánasta samstarfsmann sinn til langs tíma. Gagnrýni hans á fjárlagafrumvarp sem Trump og félagar reyna nú að fá samþykkt virðist hafa fallið í grýttan jarðveg hjá forsetanum. 5. júní 2025 17:02
Sagður verulega ósáttur við gagnrýni Musks Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður verulega ósáttur við Elon Musk, auðugasta mann heims, og gagnrýni hans á fjárlagafrumvarp sem Trump og leiðtogar Repúblikanaflokksins eru að reyna að koma gegnum þingið. Musk hefur farið hörðum orðum um frumvarpið og sagst ætla að beita sér gegn þeim þingmönnum sem greiða atkvæði með því. 5. júní 2025 11:35
Musk hraunar yfir „stórt og fallegt“ frumvarp Trumps Elon Musk, auðugasti maður heims, sem staðið hefur dyggilega við bak Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, segir hið „stóra og fallega“ fjárlagafrumvarp sem Trump vill að Repúblikanar samþykki sé „viðurstyggilegur hryllingur“. Hann segir alla þá sem hafa stutt það eiga að skammast sín. 4. júní 2025 07:24
Störfum Musk lokið hjá DOGE Elon Musk hefur tilkynnt um það að störfum hans hjá DOGE, hagræðingar- og niðurskurðarstofnun Bandaríkjastjórnar, sé lokið. Donald Trump réði Musk til starfa í 130 daga sem sérstakan ráðgjafa um niðurskurð innan stjórnkerfisins. 29. maí 2025 15:17
Ætlar að eyða mun minna í pólitíkina Elon Musk, auðugasti maður heims og náinn bandamaður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, ætlar að draga úr fjárútlátum sínum til stjórnmálamanna og vegna málefna sem honum eru hugfangin. Hann segist búinn að gera nóg, í bili. 20. maí 2025 20:33