Innlent

Lög­regla leitar manns

Atli Ísleifsson skrifar
Lögregla vill ná tali af þessum manni.
Lögregla vill ná tali af þessum manni. Lögreglan

Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir að ná tali af manninum sem sjá má á myndinni að ofan. 

Í tilkynningu segir að hann sé vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.

„Ef einhver þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hin sömu einnig beðin um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is

Þótt myndin sé eilítið óskýr má ætla að hún geti gefið góða vísbendingu um hver maðurinn er,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×