Börn, foreldrar og skólar í vanda: Hvernig eigum við að nálgast verkefnið? Margrét Sigmarsdóttir, Bergljót Gyða Guðmundsdóttir, Arndís Þorsteinsdóttir og Edda Vikar Guðmundsdóttir skrifa 2. apríl 2025 13:31 „Hún var fyrirmyndarnemandi;“ „brot gegn kennurum verða skráð fyrst;“ „börn eru lamin í frímínútum;“ „fara í átak gegn ofbeldi á skólaskemmtunum“. Lýsingar á alvarlegum reynslusögum forráðamanna og fagfólks í tengslum við hegðunar- og aðlögunarerfiðleika barnanna okkar hafa verið áberandi að undanförnu. Hér er ekki vitnað í tölfræðilegar staðreyndir um aukningu vandans heldur fremur bent á tíðari skrif og viðtöl sem lýsa hættulegri stöðu vegna ofbeldishegðunar meðal barna og unglinga. Hegðunarerfiðleikar eru ein algengasta ástæða þess að börnum er vísað til sérfræðinga, eins og t.d. skólasálfræðinga eða til heilbrigðiskerfisins. Ætlunin hér er ekki að rýna sérstaklega í orsakir heldur fremur að varpa fram hugmyndum um það hvernig bregðast megi við svo hægt sé að takast á við aðstæður og ná árangri. Rannsóknir sýna endurtekið að hegðunarvandi í æsku leiðir til þróunar á alvarlegri vanda, þar á meðal til þunglyndis, skerts námsárangurs og brottfalls úr skóla, aukinnar hættu á fóstri utan heimilis, vímuefnaneyslu, afbrotahegðunar og fjölgunar alvarlegra afbrota. Sökum þessa er nauðsynlegt að vinna með vandann snemma á lífsleiðinni og nota til þess aðferðir sem sýnt hefur verið fram á með vísindalegum og óyggjandi hætti að beri árangur. Í lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna er kveðið á um mikilvægi þess að bregðast við á skilvirkan hátt um leið og þörf krefur og er þá einkum horft til foreldra/forráðamanna, skóla og annarra sem koma að uppeldi barna. Mikilvægt er að hafa það hugfast að foreldrar eru alltaf AÐAL-kennarar barna sinna og því þarf að hafa það að leiðarljósi við forgangsröðun í þáguvelferðar allra barna. Leik- og grunnskólar eru á ábyrgð sveitarfélaga, sem og skólaþjónusta og barnavernd. Ákveðin þjónusta við tiltekna hópa og heilbrigðiskerfið í heild sinni er hins vegar rekið af ríkinu og því ljóst að skipulag þjónustu við börn og þá sem þeim tengjast er á hendi margra kerfa, sem undirstrikar nauðsyn þess að skýra vel ábyrgð og hlutverk hvers og eins og ferli þeirra mála sem þarfnast sérstakrar aðstoðar. Víkjum að þjónustu við foreldra til að efla foreldrafærni, með það að markmiði að bæta aðlögun barna og ungmenna. Foreldrafærni og vinna með foreldrum: Foreldrum er almennt mikið í mun að börn þeirra þrói með sér góða sjálfsmynd og trú á eigin getu, ásamt því að ráða yfir góðri sjálfstjórn í krefjandi aðstæðum. Foreldrar vilja einnig að börnin læri að sýna öðrum samkennd og kunni að bera kennsl á og hafa áhrif á eigin tilfinningar. Straumar, stefnur og tíðarandi hverju sinni hafa gjarnan áhrif á hvaða uppeldisaðferðir foreldrar velja að nota. Í flestum tilvikum er lítið út á það að setja, nema ef áherslur hindra að notaðar séu leiðir sem studdar eru með vísindalegum rannsóknum, einkum ef barnið skortir ákveðna félags- og tilfinningalega færni og á erfitt með sjálfstjórn. Uppeldisaðferðir sem ala á ótta foreldra við að kenna börnum leikni og færni á skipulagðan hátt, hafa mikið og gott eftirlit með hegðun þeirra og líðan eða við að setja þeim mörk til að stöðva erfiða hegðun, geta verið skaðlegar fyrir þennan hóp barna. Börn sem alast upp í fjölskyldum í viðkvæmri stöðu, þar sem aðstæður auka líkur á mikilli streitu og áföllum, eru í sérstakri hættu, þar sem slíkar aðstæður veikja m.a. foreldrafærni og þar með er aukin hætta á hegðunar- og tilfinningalegum erfiðleikum. Mikilvægt er að bjóða úrræði sem styrkja og efla foreldrafærni einkum fyrir foreldra barna í áhættuhópum og/eða þegar um er að ræða fjölskyldur í viðkvæmri stöðu. Nauðsynlegt er að foreldrafærniúrræði hvíli á sterkum grunni rannsókna þar sem sýnt hefur verið fram á með óyggjandi hætti að þau skili árangri. Dæmi um slíkt úrræði er PMTO-foreldrafærni, sem var upprunalega þróað í Bandaríkjunum og hefur svo breiðst út í Evrópu og á sér langa sögu á Íslandi. Í dag veita níu sveitarfélög hér á landi PMTO-þjónustu sem miðar að því að efla foreldra barna á leik- og grunnskólaaldri sem eru í áhættu eða glíma við hegðunar- og tilfinningalega erfiðleika. Foreldrar fá meðal annars þjálfun í því að: Gefa skýr fyrirmæli, nýta hvatningu markvisst til að kenna nýja færni og efla sjálfstraust, setja mörk til að stöðva óæskilega hegðun og auka sjálfstjórn, nota lausnaleit til að takast á við vanda með lýðræðislegum hætti, efla jákvæð tengsl heimilis og skóla og hafa virkt eftirlit. Auk þess er unnið með leiðir til að efla tilfinningastjórn, nota virk samskipti og auka jákvæða samveru og afskipti í fjölskyldum. Niðurstöður rannsókna á Íslandi og erlendis sýna m.a. að aðferðin dregur verulega úr hegðunarerfiðleikum meðal barna, auk þess sem félagsfærni og námsárangur eykst og líðan bæði foreldra og barna verður betri. Samskiptamynstur innan fjölskyldunnar styrkist auk fleiri þátta sem sýna bætta aðlögun og velgengni hjá barninu. PMTO er stigskipt allt eftir eðli og umfangi vandans. Boðið er upp á einstaklingsmeðferð þegar vandinn er verulegur og í öðrum tilfellum er unnið er með foreldrum í hópi. Úrræðið getur skipt sköpum í lífi barna og fjölskyldna, ekki síst þegar kemur að þróun andfélagslegrar hegðunar eins og ofbeldis. Samvinna skóla, foreldra og annarra mikilvægra aðila í lífi barnsins fléttast inn í PMTO-vinnuna og styrkir verndandi þætti. Aðferðin hefur verið aðlöguð fyrir hópa í viðkvæmri stöðu, eins og fyrir foreldra á flótta í Evrópu undir heitinu SPARE (Strengthening Parenting Among Refugees in Europe) og hefur þegar verið sýnt fram á að úrræðið er fýsilegt fyrir úkraínsku- og arabískumælandi foreldra. Eins er verið að skoða aðlögun fyrir foreldra barna sem eiga erfitt með skólasókn með það að markmiði að auka skólasókn og vellíðan allra. PMTO er skilgreint sem svokallað „módel plús“ (þ.e. hæsta mögulega gæðamat) úrræði hjá Blueprints for Healthy Youth Development sem er alþjóðlegt mat á gæðum úrræða fyrir börn og ungmenni. The California Evidence-Based Clearinghouse gegnir hliðstæðu hlutverki og gefur PMTO einnig hæstu einkunn þegar kemur að sterkum rannsóknagrunni varðandi árangur aðferðarinnar, einnig þegar kemur að málum innan barnaverndar. Úrræðið er vel aðlagað að íslenskum aðstæðum og hefur hjálpað fjölda fjölskyldna í meira en tvo áratugi hérlendis. Það byggist einnig á vönduðu innleiðingarferli sem getur náð til allra foreldra á landsvísu ef sveitarfélög, ríkisreknar stofnanir og ráðuneyti kjósa að leggja áherslu á slíka uppbyggingu. Eins og staðan er í dag þá er þörf á margfalt meiri og markvissari PMTO-þjónustu í íslensku samfélagi. Áherslur í skólum: Leik- og grunnskólar eru ekki í stöðu til að veita börnum með hegðunar- og tilfinningaerfiðleika meðferð og eiga heldur ekki að bera þá ábyrgð. Hins vegar er mikilvægt að stuðla að samstillingu og samvinnu milli leik- og grunnskóla og milli heimila og skóla varðandi sameiginlegar væntingar til barna um hegðun, jákvæða og hvetjandi nálgun, skýr mörk og virkt eftirlit, ásamt markvissri notkun aðferða sem auka færni í tilfinningum og samskiptum. Vegna þekkingar á börnum og þörfum þeirra er einna nærtækast að fagfólk innan leik- og grunnskóla komi að því að vísa málum barna og fjölskyldna sem á þurfa að halda til sérfræðinga sem veita meðferð vegna hegðunar- og tilfinningavanda, og þá jafnvel með aðkomu sérfræðinga skóla- og félagsþjónustu sveitarfélagsins. Skilvirkt kerfi þar sem bein tengsl eru á milli fagfólks skóla og meðferðaraðila eru því mikilvæg. Dæmi um slíkt kerfi er SMT-skólafærni sem er útfærsla af því sem kallað hefur verið á íslensku heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun (Positive Behavior Interventions and Supports; PBIS) og er vel rannsökuð og þekkt heildarskólanálgun á heimsvísu. SMT-skólafærni/PBIS snýst um að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda með samræmdum viðbrögðum starfsfólks og byggja þannig undir styðjandi starfshætti og jákvæða menningu í skólasamfélaginu. SMT-skólafærni aðgreinir sig frá PBIS með því að vera innleitt undir merkjum PMTO. Lögð er áhersla á að allir SMT-skólar hafi aðgang að fagefni samofnu PMTO og að tiltekið fagfólk innan skólanna fái þjálfun í að veita foreldrum styttri ráðgjöf og vísa þeim í viðeigandi PMTO-þjónustu þegar þörf er á. Um 25 leik- og grunnskólar landsins styðjast við SMT/PBIS þar sem markmiðið er að tryggja öryggi og velferð bæði nemenda og starfsfólks. Meðal lykilþátta eru uppbyggileg félagsfærniþjálfun, hvatning fyrir æskilega hegðun og samræmd viðbrögð starfsfólks, til þess að koma í veg fyrir og draga úr óæskilegri hegðun. Þar skiptir máli að bekkjarstjórnun sé markviss og einkennist af því að laða fram jákvæða hegðun og ýta undir hana – auk þess leika lausnaleit, æfing í streitu- og mótlætisþoli, samskiptafærni og heilbrigðri tilfinningastjórn mikilvægt hlutverk. Mikil áhersla er lögð á að stuðningskerfi sé komið á til að tryggja notkun aðferðarinnar til lengri tíma. Fjöldi gildra aðferða sem beinast að því að auka og viðhalda félagsfærni og góðri aðlögun nemenda hafa verið notaðar hérlendis í gegnum tíðina en hætta er á að notkun þeirra minnki með tímanum vegna erfiðleika við innleiðingu. Ástæðan er því ekki alltaf takmarkaður árangur, heldur skortur á stuðningskerfum til að viðhalda aðferðunum. Hér hefur verið stiklað á stóru um hvernig megi fyrirbyggja vanda og bregðast við erfiðleikum meðal barna, foreldra og í skólum. Verkefnið er aðkallandi og krefst hárfínnar samstillingar fræða og vettvangs, þar sem besta vísindalega þekking er höfð að leiðarljósi. Höfundar eru sálfræðingar og sérfræðingar í sálfræði. Margrét Sigmarsdóttir er prófessor og Bergljót Gyða Guðmundsdóttir dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Arndís Þorsteinsdóttir og Edda Vikar Guðmundsdóttir starfa fyrir Keðjuna á velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Börn og uppeldi Grunnskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Yfirlýsing frá Kára Stefánssyni um hrakfarir hans í samskiptum við íhaldssaman blaðamann Kári Stefánsson Skoðun Þétting byggðar er ekki vandamálið Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Ert þú drusla? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir,Elísa Rún Svansdóttir,Lilja Íris Long Birnudóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Margrét Baldursdóttir,Silja Höllu Egilsdóttir Skoðun Þið voruð í partýinu líka! Gísli Sigurður Gunnlaugsson Skoðun Hverjir eru komnir með nóg? Nichole Leigh Mosty Skoðun Þrengt að þjóðarleikvanginum Þorvaldur Örlygsson Skoðun Að leigja okkar eigin innviði Halldóra Mogensen Skoðun Köllum Skjöld Íslands réttu nafni: Rasískt götugengi Ian McDonald Skoðun Swuayda blæðir: Hróp sem heimurinn heyrir ekki Mouna Nasr Skoðun Veimiltítustjórn og tugþúsundir dáinna barna Viðar Hreinsson Skoðun Skoðun Skoðun Yfirlýsing frá Kára Stefánssyni um hrakfarir hans í samskiptum við íhaldssaman blaðamann Kári Stefánsson skrifar Skoðun Þétting byggðar er ekki vandamálið Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Þrengt að þjóðarleikvanginum Þorvaldur Örlygsson skrifar Skoðun Ert þú drusla? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir,Elísa Rún Svansdóttir,Lilja Íris Long Birnudóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Margrét Baldursdóttir,Silja Höllu Egilsdóttir skrifar Skoðun Sameiginleg yfirlýsing 28 ríkja um málefni Palestínu, hvers virði er hún? Einar Ólafsson skrifar Skoðun Alltof mörg sveitarfélög á Íslandi! Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Öryggi betur tryggt – fangelsismál færð til nútímans Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Lýðheilsan að veði? Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Evrópusambandsaðild - valdefling íslensks almennings Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Köllum Skjöld Íslands réttu nafni: Rasískt götugengi Ian McDonald skrifar Skoðun Hverjir eru komnir með nóg? Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Að leigja okkar eigin innviði Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Málþóf sem valdníðsla Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Klaufaskapur og reynsluleysi? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig spyr ég gervigreind til að fá besta svarið? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu bitur? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Er hægt að læra af draumum? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Afstæði ábyrgðar Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Klassapróf fína fólksins – eða hvernig erfingjar kenna okkur að lifa Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Fjárhagslegt virði vörumerkja Elías Larsen skrifar Skoðun Við ákærum – hver sveik strandveiðisjómenn? Kjartan Páll Sveinsson skrifar Skoðun Þið voruð í partýinu líka! Gísli Sigurður Gunnlaugsson skrifar Skoðun Af hverju varð heimsókn framkvæmdastjóra ESB að NATO-fundi? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Veimiltítustjórn og tugþúsundir dáinna barna Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Bragðefni eru ekki vandamálið - Bann við þeim myndi skaða lýðheilsu Abdullah Shihab Wahid skrifar Skoðun Swuayda blæðir: Hróp sem heimurinn heyrir ekki Mouna Nasr skrifar Skoðun Skattar fyrst, svo allt hitt – og hagræðingin sem gleymdist Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Áfangasigur í baráttunni við hernaðinn gegn heimkynnum villta laxins Ingólfur Ásgeirsson,Árni Baldursson skrifar Skoðun Þetta er allt hinum að kenna! Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Þjóðþrifamálin sem stjórnarandstaðan fórnaði á altari útgerðanna Heimir Már Pétursson skrifar Sjá meira
„
Yfirlýsing frá Kára Stefánssyni um hrakfarir hans í samskiptum við íhaldssaman blaðamann Kári Stefánsson Skoðun
Ert þú drusla? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir,Elísa Rún Svansdóttir,Lilja Íris Long Birnudóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Margrét Baldursdóttir,Silja Höllu Egilsdóttir Skoðun
Skoðun Yfirlýsing frá Kára Stefánssyni um hrakfarir hans í samskiptum við íhaldssaman blaðamann Kári Stefánsson skrifar
Skoðun Ert þú drusla? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir,Elísa Rún Svansdóttir,Lilja Íris Long Birnudóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Margrét Baldursdóttir,Silja Höllu Egilsdóttir skrifar
Skoðun Sameiginleg yfirlýsing 28 ríkja um málefni Palestínu, hvers virði er hún? Einar Ólafsson skrifar
Skoðun Öryggi betur tryggt – fangelsismál færð til nútímans Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Klassapróf fína fólksins – eða hvernig erfingjar kenna okkur að lifa Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Bragðefni eru ekki vandamálið - Bann við þeim myndi skaða lýðheilsu Abdullah Shihab Wahid skrifar
Skoðun Skattar fyrst, svo allt hitt – og hagræðingin sem gleymdist Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Áfangasigur í baráttunni við hernaðinn gegn heimkynnum villta laxins Ingólfur Ásgeirsson,Árni Baldursson skrifar
Skoðun Þjóðþrifamálin sem stjórnarandstaðan fórnaði á altari útgerðanna Heimir Már Pétursson skrifar
Yfirlýsing frá Kára Stefánssyni um hrakfarir hans í samskiptum við íhaldssaman blaðamann Kári Stefánsson Skoðun
Ert þú drusla? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir,Elísa Rún Svansdóttir,Lilja Íris Long Birnudóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Margrét Baldursdóttir,Silja Höllu Egilsdóttir Skoðun