Nú á að hafa áhrif á héraðsdóm og Alþingi og freista þess að fella ÁTVR Siv Friðleifsdóttir skrifar 19. mars 2026 12:31 Í dag 19. mars fer fram aðalmeðferð fyrir héraðsdómi Reykjaness í máli ríkisins gegn ágengisnetsölu. Mál sem hefur ríka snertifleti við lýðheilsu, samfélagslega ábyrgð og vernd barna. Í gær birtist frétt um að ESA krefji íslenska ríkið svara um fyrirkomulag áfengissölu. Erindi sem Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sendir nú stjórnvöldum í kjölfar kvörtunar ótilgreinds aðila frá því í nóvember sl. Ótilgreindi aðilinn er líklega netsalan sjálf eða tengdur hagsmunaaðili því í október sl. var upplýst að verjendur netsölunnar hefðu óskað eftir að sambærilegt álit EFTA-dómstólsins yrði gert að dómsgögnum í héraðsdómi. Hafnaði dómurinn þeirri kröfu. Með þessari gjörð vilja væntanlega hagsmunaaðilar netsölu hafa áhrif á héraðsdóm. Einnig á Alþingi því fyrir þinginu liggur nú frumvarp þingmanna Viðreisnar um að lögfesta þá áfengisnetsölu sem nú stendur styr um og er fyrir dómstólum. Ríkið svari fyrir 20. apríl Í erindi Eftirlitstofnunar EFTA, sem svara á fyrir 20. apríl, er farið fram á að íslenska ríkið a) leggi mat á áhrif þess að leyfa sölu áfengis á framleiðslustað, b) lýsi hvaða sjónarmið lágu til grundvallar útboði á sölu áfengis í fríhöfnum og c) gefi afstöðu stjórnvalda til netverslana með áfengi og hvernig ríkið réttlætir slíka undanþágu frá einokun ÁTVR og hvort ríkið geti yfir höfuð réttlætt ríkiseinokun með vísan til lýðheilsu. Allt eru þetta kunnugleg stef úr umræðunni og hafa forvarnarsamtök og fleiri lýðheilsuþenkjandi beitt sér sérstaklega með upplýsingagjöf til almennings og gagnrýni á stjórnvöld varðandi lið a) um sölu á framleiðslustað og b) uppgangi áfengisnetverslana. Sala á framleiðslustað Þegar sala á framleiðslustað var leyfð með lögum á Alþingi var skýrt tekið fram í greinagerð dómsmálaráðherra með frumvarpinu að …” að markmið þessara lagabreytinga sé ekki að hrófla við hlutverki Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins né þeirri áfengisstefnu sem hingað til hefur verið við lýði.” Einnig tók meirihluti þingnefndarinnar, sem fjallaði um málið, fram tvö atriði sem urðu forsenda þess að meirihluti skapaðist á Alþingi fyrir samþykkt nýju laganna. Lýðheilsumat Hið fyrra var að fram þyrfti að fara lýðheilsumat á vegum dómsmálaráðherra og svo grípa til mótvægisaðgerða ef þyrfti sbr. nefndarálit meirihlutans “Til fjölda ára hefur takmörkun á aðgengi áfengis vegna lýðheilsusjónarmiða verið leiðarljósið við sölu á áfengi hérlendis. Brýnt er að þessi sjónarmið gleymist ekki samhliða því að opnað verði fyrir sölu á áfengi frá framleiðslustað með þeim hætti sem hér er lagt til. Meiri hlutinn beinir því til ráðherra að embætti landlæknis verði falið að framkvæma lýðheilsumat á áhrifum breytinganna og farið verði í mótvægisaðgerðir er slíkt mat liggur fyrir.” Forvarnarsamtök spurðu heilbrigðisráðherra um hvar lýðheilsumatið væri statt í desember sl. Svarið var á þá leið að að þingið beindi matsgerðinni til annars ráðherra. Forvarnarsamtök hafa því beint fyrirspurninni til fjármála- og efnahagsráðherra, sem tók við hluta áfengislöggjafarinnar af dómsmálaráðherra í nýju ríkisstjórninni, en ekki fengið svar enn. Ljóst er að stjórnvöld verða að hysja upp um sig buxurnar og klára lýðheilsumatið og mögulegar mótvægisaðgerðir hið fyrsta. Slíkt ætti að vera auðvelt því hægt er að leita í smiðju Svía sem gerðu slíkt lýðheilsumat áður en þeir leyfðu sölu á framleiðslustað með miklum takmörkunum í tilraunaskyni fyrir skömmu. Magntakmarkanir (fríhafnarkvóti) í lögum Hið seinna var að sett var í lög ákvæði um magntakmarkanir (fríhafnarkvóta) skv. tillögu meirihluta nefndarinnar sbr. “Í ljósi markmiða sem tiltekin eru í greinargerð frumvarpsins, sem eru að veita þrönga undanþágu frá einkaleyfi ríkisins á smásölu áfengis og með hliðsjón af lýðheilsusjónarmiðum, telur meiri hluti nefndarinnar rétt að mæla fyrir um það að ráðherra skuli setja reglugerð sem kveði á um hámarksmagn drykkja sem heimilt er að selja í smásölu á framleiðslustað hverju sinni. Telur meiri hlutinn eðlilegt að vísa til þess fyrirkomulags sem viðhaft er í fríhöfnum á Íslandi, sem takmarkar magn með reiknireglu sem byggist á áfengiseiningum. Meiri hlutinn telur nauðsynlegt í ljósi þeirra lýðheilsusjónarmiða sem komu fram við umfjöllun nefndarinnar, m.a. frá embætti landlæknis, að magntakmarkanir séu þær sömu og finna má í 4. gr. reglugerðar nr. 630/2008.” Forvarnarsamtök hafa ekki séð þess stað að búið sé að setja magntakmarkanir í reglugerð eins og lögin kveða skýrt á um. Í desember sl. lögðu þau fram skriflega fyrirspurn til fjármála- og efnahagsráðherra hvort verið væri að vinna að slíku og þá hvenær þær magntakmarkanir tækju gildi. Ekkert svar hefur borist enn. Ljóst er að stjórnvöld verða að hysja upp um sig buxurnar og klára að setja magntakmarkanir á sölu frá framleiðslustað hið fyrsta. Slíkt verk er mjög auðvelt og fljótlegt. Hver mun svara? Nú þurfa ráðherrar að svara Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) á harðaspretti. Hverjir svara? Þeir ráðherra sem bera mesta ábyrgð á fyrirkomulagi áfengissölu, lýðheilsu og afleiðingum neyslunnar, eru fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra. Þeir þurfa að svara með einhverju móti í sameiningu. Svarið þarf að endurspegla þann vilja Alþingis að ekki átti að hrófla við hlutverki Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins né þeirri áfengisstefnu sem hingað til hefur verið við lýði með samþykkt laga um sölu á framleiðslustað eins og fram kom í frumvarpi dómsmálaráðherra. Ef svikk er á þeim lögum þarf ríkisstjórnin að leggja fram nýtt frumvarp með lagfæringum þ.a. ÁTVR falli ekki. Það var jú ekki vilji löggjafans að fella ÁTVR með lagasetningunni eins hér hefur verið rakið. Svo þarf að klára dómsmálið um netsöluna sem legið hefur á borðum stjórnvalda allt frá kæru ÁTVR fyrir brátt 6 árum síðan. Forvarnarsamtök hafa staðið vaktina Forvarnarsamtök s.s. Fræðsla og forvarnir – félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-samstarf félagasamtaka í forvörnum, hafa lagt vinnu í að upplýsa almenning um stöðu áfengismála í langan tíma. Þau hafa verið í góðu samstarfi við heilbrigðisstéttir og SÁÁ í málinu og þar hefur samvinnan verið til fyrirmyndar Forvarnarsamtök hafa lagt mjög mikla vinnu í að hotta á stjórnvöld í þessum málum en fengið dræm viðbrögð. Stjórnvöldum virðist standa sama. Það er áhyggjuefni. Forvarnarsamtök hafa staðið vaktina með sóma. Þau trúa því ekki að stjórnvöld muni ganga gegn lýðheilsustefnu samþykktri á Alþingi, tilmælum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, gagnreyndum lýðheilsurannsóknum og ályktunum heilbrigðisstétta og forvarnar- og foreldrasamtaka. Við trúum því að heilbrigð skynsemi ráði og að lýðheilsa, afkoma ríkissjóðs og velferð barna og ungmenna verði sett í fyrsta sæti. Höfundur er félagi í Fræðslu og forvörnum – félagi áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu og fyrrum heilbrigðisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Siv Friðleifsdóttir Netverslun með áfengi Mest lesið Barnamorðingjar eru velkomnir til Íslands Björn B. Björnsson Skoðun Beðið eftir aðgerð þar sem kvóti er búinn Dóra Lind Pálmarsdóttir Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason Skoðun Hvað varð um planið? Pétur Óskarsson Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Mannréttindi þarf ekki að endurhugsa — þau þarf að virða Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvalveiðar sem vopn til að berjast gegn aðild að ESB Micah Garen Skoðun Ríkisvaldið féll á lyfjaprófi Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað varð um planið? Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi þarf ekki að endurhugsa — þau þarf að virða Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðar sem vopn til að berjast gegn aðild að ESB Micah Garen skrifar Skoðun Beðið eftir aðgerð þar sem kvóti er búinn Dóra Lind Pálmarsdóttir skrifar Skoðun Vandinn talaður burt Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Stór-Ísrael Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Barnamorðingjar eru velkomnir til Íslands Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Hvenær verða sjóðir mikilvægari en félagsmenn? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason skrifar Skoðun Viljum við kvótavæða sjókvíaeldið? Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun ESB eða efnahagsmálin, hvað á að vera forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sveitarfélög sem nýta gervigreind vel gætu umbreytt þjónustu sinni Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson skrifar Skoðun Verkin tala Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Brexit og Ísland - Hvað getum við lært – og hvert eigum við að stefna? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Barnahús er sameiginlegt verkefni Paola Cardenas skrifar Skoðun Ríkisvaldið féll á lyfjaprófi Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað fengu þau – og hvað gáfu þau eftir? Lærdómur frá löndum sem gengu í ESB Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Hvalveiðar: Bláa pillan eða sú rauða? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Mikilvægt framfaraskref fyrir allt landið Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Hver á sér fegurra föðurland? Marta Eiríksdóttir skrifar Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Telur stjórnsýslu Íslands allt of litla Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verður valdagræðgi Flokks fólksins honum að falli? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Tengsl eru innviðir samfélagsins Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Börnin fyrst, en þau bíða enn Steindór Þórarinsson,Jón K. Jacobsen skrifar Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir skrifar
Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason skrifar
Skoðun ESB eða efnahagsmálin, hvað á að vera forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Sveitarfélög sem nýta gervigreind vel gætu umbreytt þjónustu sinni Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson skrifar
Skoðun Brexit og Ísland - Hvað getum við lært – og hvert eigum við að stefna? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað fengu þau – og hvað gáfu þau eftir? Lærdómur frá löndum sem gengu í ESB Bjarndís Helena Mitchell skrifar
Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar