Fótbolti

Svona var blaðamannafundurinn fyrir seinni leikinn gegn Kósovó

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta.
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta. Vísir/Sigurjón

Vísir var með beina útsendingu klukkan hálf sex frá blaðamannafundi íslenska landsliðsins fyrir leik morgundagsins gegn Kósovó.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari og Orri Steinn Óskarsson landsliðsfyrirliði sátu fyrir svörum.

Þar var meðal annars rætt um leik morgundagsins, meiðslastöðu leikmanna, áherslurnar sem Arnar leggur upp með og hvernig hann kemur upplýsingum til skila, og þá þúsund íslenska áhorfendur sem verða viðstaddir leikinn.

Upptöku frá fundinum má finna hér fyrir neðan.

Klippa: Arnar og Orri sátu fyrir svörum

„Síðustu dagar hafa farið í að laga það sem fór úrskeiðis. Og það var ekkert, hvort sem fólk trúir því eða ekki, þá var ekkert stórvægilegt sem fór úrskeiðis… Þetta var nokkuð góð frammistaða á erfiðum útivelli. 2-1 er enginn heimsendir þannig að við eigum góðan möguleika á að halda okkar sæti í B-deildinni“ sagði Arnar meðal annars um tapið síðast og sigurinn sem Ísland stefnir að á morgun.

Seinni leikur Ís­lands og Kó­sovó í um­spili fyrir sæti í B-deild Þjóða­deildarinnar verður sýndur í beinni út­sendingu og opinni dag­skrá á Stöð 2 Sport á morgun, sunnudag, og hefst klukkan fimm. Upp­hitun fyrir leikinn hefst hálftíma fyrr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×